
Sign up to save your podcasts
Or


Kæru endalínu hlustendur,
Síðasti þáttur ársins er nú kominn í loftið. Umdeild umferð að baki og breytingar að fara að eiga sér stað hjá liðunum nú þegar nýtt ár gengur í garð.
Enn og aftur er ekki fullmannað í bátnum, þar sem Rúnar þurfti að spila bingó.
En Gunni og Dóri fara yfir það mikilvægasta úr þessari 11. umferð og renna létt yfir körfuboltaárið.
Allt, eins og venjulega, í boði okkar besta fólks hjá Viking Lite (Léttöl) og Cintamani. Sérstakar þakkir fær okkar fólk á Brons, sem er nýr skemmtistaður í Keflavík sem hýsti Endalínu quiz fyrir El Classico sem fram fór í gærkveldi.
Takk fyrir að hlusta á árinu, lifið heil!
I love this game!
Hó hó hó , kæru hlustendur afsakið biðina.
Ekki eftir neinu að bíða en að hlusta á þáttinn og fara í alvöru körfuboltastuði inní jólin allt í boði Viking Lite og Cintamani.
#Endalinan #VikingLite #Cintamani
Kæru hlustendur , enn og aftur er Endalínan ekki fullmönnuð en í þetta skiptið fengum við glænýjan leikmann inn af bekknum , hann var ekki með sleeve í þetta skiptið en hann var sjóðandi heitur eins og hann var iðulega inná vellinum , Ágúst Orrason !
Við fórum yfir nokkrar Föstudagsfullyrðingar að loknum 9 umferðum í Subway Deild Karla. Fullyrðingar , rökræður og almennar umræður og að sjálfsögðu fastir liðir eins og venjulega í boði Cintamani og Viking Lite
Kæru hlustendur , Endalínan er í takt við liðin í deildinni , ekki fullmönnuð enn og aftur en við hins vegar mætum tilbúnir til leiks og viljum enga vorkunn.
Tveir vinir og annar í jólum var það nú en Rúnar og Gunnar fóru yfir ítarlega yfir málin og svörum stóru spurningunum sem hafa kviknað eftir 8.umferðina í Subway deild karla.
Eru ÍR að fara í playoffs á meðan Stjarnan gæti setið eftir ? Eru Reykjanesbæjar liðin vöknuð ? Geta Haukar eða Grindavík sett markið á Top 4 ? ERU KR OG ÞÓR Þ AÐ FARA FALLA ?
Já þessi svör og jú nokkuð fleiri í þessum þætti á Endalínunni ásamt föstum liðum í boði Viking Lite , Cintamani og Double Green
Kæru hlustendur!
Nú fer að líða að aðventunni og fólk farið að leggja á sig ferðalög fyrir jólainnkaupin, Endalínan sleppur ekki við það.
Í fjarveru þeirra Rúnars og Gunna fékk Halldór með sér fastagestinn Skúla Sig og heimalettinn Friðrik Stefánsson til að fara yfir allt mögulegt og ómögulegt í körfuboltanum á Íslandi.
Allt í boði Viking Lite (Léttöl), Cintamani og Gulur, Rauður og Grænn.
Góða kvöldið kæru hlustendur!
Það var fámennt en góðmennt á Endalínunni í kvöld þegar farið var yfir 6. umferðina í úrvalsdeild karla.
Eru menn misjafnlega klárir eftir landsleikjahlé?
Misjafnlega er farið fyrir Reykjavíkurliðunum.
Er Keflavík með ofnæmi fyrir Þorlákshöfn?
Heimamenn í Grindavík.
Er Tindastóll að storka reglunum?
Blikznation í skýjunum
Gulur, grænn og blár, Viking Lite (Léttöl) og Cintamani færir þér þetta allt og margt fleira.
Kæru hlustendur,
Endalínan mætir í kjölfar svekkjandi taps gegn Georgíu og fer yfir það sem var gott og allt það sem var slæmt.
Einnig tókum við smá umræðu um liðinn í úrvalsdeild karla og settum þau öll í flokka A,B,C og D.
Kæru hlustendur Endalínunnar , sjaldan koma öll kurl til grafar en við gerum okkar bestu tilraun.
Eins venjan er mættum við í Rebbagrenið og fórum yfir hlutina eftir 5.umferðina og þá síðustu fyrir landsleikjahlé. Tímarnir breytast og mennirnir með en Endalínan breytist ekkert og fer yfir landslagið í deildinni eins og vanalega. Öll vötn renna til sjávar og við förum yfir allt það helsta úr umferðinni og þema þáttarins er að sjálfsögðu íslenskir málhættir og orðatiltæki. Glymur hæst í tómri tunnu ? Adam var ekki lengi í Paradís og fleiri séríslenskir frasar eru tengdir leikjunum 6 ásamt því að frétt vikunnar , Viking Lite spurningin og aðrir liðið eru á sínum stað.
Endalínan í boði , pallettunnar Rauður Grænn og Blár , Viking Lite og Cintamani , Við þekkjum tilfinninguna.
Kæru hlustendur , Endalínan er mætt í Rebbagrenið enn eitt föstudagskvöldið og fer yfir málin eins og þau eru eftir 4 umferðir í Subway Deild Karla. Við höldum áfram að vinna með ákveðin þemu og þar sem hrekkjavakan er á næsta leiti þá tengjum við leiki umferðarinnar við Hryllingsmyndir eða Spennutrylli.
The Shining , Silence Of the Lambs , I know what you did last summer , Sixth Sense , Paranormal Activity og The Exorcist , segir þetta ekki allt sem segja þarf ? Viking Lite Spurningin á sínum stað og auðvitað margt margt fleira.
Endalínan í boði Blár og Grænn , Cintamani og Viking Lite
Kæru hlustendur,
Endalínan kom saman þetta kvöldið og vottaði einum af sínum uppáhalds listamönnum, Prins Póló, Svavari Pétri Eysteinssyni virðingu sína. Hvíldu í friði Prinsinn okkar.
Umræðuefni kvöldsins voru tengd við lög sem Svavar kom að og skapaði.
Hverjir fara Niðrá strönd?
Eru Draumaprinsessurnar mættar?
Hvar er Maðkur í mysunni?
Heyrum við Raddir efans einhverstaðar?
Líf ertu að grínast?
Eins og alltaf í boði Viking Lite léttöls, Cintamani og Grænn, blár og rauður!
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

5 Listeners

140 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

17 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

67 Listeners

21 Listeners

17 Listeners

15 Listeners

12 Listeners

1 Listeners