Mannlegi þátturinn

Erfðagjafir, Elínora bakar og Viðar sauðfjárbóndi


Listen Later

Víða í Evrópu er algengt að fólk ánafni hluta af arfi til góðra málefna. Á Íslandi hafa erfðagjafir ekki náð að ryðja sér til rúms að sama marki. En samkvæmt nýlegri könnun er um helmingur Íslendinga jákvæður gagnvart því að einstaklingar ánafni hluta af arfi sem erfðagjöf til góðgerðarstarfs. Könnunin var framkvæmd fyrir verkefnið Gefðu framtíðinni forskot, sem er samstarfsverkefni margra af stærstu góðgerðarsamtaka á Íslandi um að auka vitund almennings á þeim möguleika að ánafna hluta af erfðafé til góðgerðarstarfs. Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir, fjáröflunar- og markaðsstjóri Krabbameinsfélagsins, kom í þáttinn og sagði meira frá þessu átaki.
Elinora Rós Georgsdóttir ákvað 14 ára gömul að hún vildi verða bakari og nú þegar hún er orðin 19 ára hefur hún gefið út bók um súrdeigsbakstur, brauð og kökur og þessi bók hefur setið inná lista yfir 10 mest seldu bækurnar og er núna uppseld hjá útgefanda. Elinora segist gráta yfir vel heppnuðum bakstri og bakstursblogg hennar á Instragram er mjög vinsælt. Við heyrðum í henni í þættinum í dag.
Viðar Guðmundsson og Barbara Guðbjartsdóttir eru meðal fárra ungra bænda á Ströndum, en sauðfjárbændum fer fækkandi hér eins og annars staðar á landinu. Viðar hefur mikla gleði af búskapnum eins og auðheyrt var af spjalli hans og Kristínar Einarsdóttur, okkar konu á Ströndu, á dögunum.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners