Mannlegi þátturinn

Erfið eftirköst, mjólk og ostar og Lára lesandi vikunnar


Listen Later

„Við fengum COVID-19“ heitir hópur á facebook með um 800 meðlimi, sem eins og nafn hópsins gefur til kynna hafa öll fengið COVID-19. Á síðu hópsins hafa mörg þeirra tjáð sig um erfið eftirköst og afleiðingar sjúkdómsins, jafnvel þótt margir mánuðir séu síðan þau veiktust. Mun fleiri glíma við eftirköst COVID-19 en búist var við, segir forstöðumaður lyflækninga og endurhæfingarþjónustu Landspítalans. Við fengum þær Rósu Björk Gunnarsdóttur og Margréti Gauju Magnúsdóttur, sem báðar eru í hópnum, til þess að segja okkur betur frá þessum eftirköstum og sínum reynslum.
Við fengum í dag annan þáttinn í smáþáttaröðinni Heimur ostanna, í umsjón matgæðingsins Svavars Halldórssonar og ostasérfræðingsins Eirnýar Sigurðardóttur þar sem þau leiða hlustendur um undraveröld ostanna. Í öðrum þætti tala þau um mjólk sem að sjálfsögðu er undirstaða allrar ostagerðar í heiminum. Kúamjólk, geitamjólk, sauðamjólk og kaplamjólk. Hvað er líkt og hvað er ólíkt? Hvaða máli skiptir mjólkin við að skapa leyndardóma ostanna?
Lesandi vikunnar í þetta sinn var söng- og tónlistarkonan Lára Rúnarsdóttir. Hún er önnur stofnenda Andagiftar, sem stendur fyrir margvíslegum námskeiðum og uppákomum sem stuðla að andlegu heilbrigði og vellíðan. Við fengum að vita hvaða bækur eru á náttborðinu hjá henni, hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina.
Umsjón: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners