Nú er ljóst hvaða 26 þjóðir munu stíga á svið í Altice Arena í Lissabon annað kvöld þar sem úrslitin munu ráðast í Eurovision keppninni þetta árið. Því miður eigum við Íslendingar ekki fulltrúa þar, en það verður spennandi að fylgjast með og nokkuð ljóst að það verður stíft horft á skjáinn annað kvöld. Því þótti okkur við hæfi að fá góða gesti sem eiga nú heldur betur sterka tengingu við keppnina, en við hefðum líklega ekki getað fengið aðra tvo einstaklinga sem hafa samanlagt staðið oftar á sviðinu og sungið fyrir Íslands hönd í keppninni. Þetta eru þau Regína Ósk Óskarsdóttir og Pétur Örn Guðmundsson. Við ræddum við þau um allar hliðar Eurovision.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, var með sitt vikulega matarspjall hjá okkur í dag. Í þetta sinn sagði hún frá litlu bakaríi í San Nicolo í Flórens sem er í sérlegu uppáhaldi hjá henni og svo stakk hún uppá biscotti kökum með Nutella sem gott væri að hafa til fyrir Eurovision áhorfið.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson