Mannlegi þátturinn

Eyrnasuð, kleinuhringjahagfræði og dreifing bóluefna


Listen Later

Eyrnasuð, eða tinnitus, er hvers kyns hávaði eða hljóð sem heyrist inni í eyranu eða í höfðinu og stafar ekki frá umhverfinu. Vægt eyrnasuð er mjög algengt fyrirbæri. Næstum allir finna til dæmis fyrir eyrnasuði eftir mikinn, hvellan hávaða eða jafnvel upp úr þurru. Yfirleitt hverfur svo suðið eftir einhvern tíma. Eyrnasuð er ekki sjúkdómur heldur einkenni einhvers sem truflar starfsemi eyrans eða heyrnartaugarinnar. Orsakir geta verið fjölmargar. Sumar eru þekktar, aðrar óþekktar. Áhyggjur, þunglyndi og reiði eru ekki óalgengir fylgifiskar eyrnasuðs. Kristján Sverrisson, forstjóri Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar var hjá okkur í þættinum og fræddi okkur um eyrnasuð.
Við veltum svo fyrir okkur fyrirbærinu kleinuhringjahagfræði. Auður H. Ingólfsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur skrifaði grein sem birtist á akureyri.net þar sem hún segir að kleinuhringjahagfræði sé uppáhaldshagfræðin hennar og eitt það heitasta í sjálfbærnifræðunum um þessar mundir. En hvað er kleinuhringjahagfræði? Og af hverju skorar Auður á þau sem eru í framboði í sveitastjórnarkosningum á Íslandi í vor að tileinka sér þessa tilteknu hagfræði? Við fengum Auði til að útskýra það fyrir okkur í dag.
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, kom í þáttinn og sagði frá verkefni UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, til að hraða dreifingu og aðgengi að COVID-19 bóluefnum í lág- og millitekjuríkjum. Eins og fréttir greindu frá í vikunni mun Utanríkisráðuneytið verja 250 milljónum króna til að styðja við verkefnið. Birna sagði frá framgangi og mikilvægi þessa verkefnis og svo frá því hversu skelfilegt ástand er enn fyrir börn í Sýrlandi, sérstaklega í norðurhluta landsins.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners