MANNLEGI ÞÁTTURINN MÁNUDAGINN 4.JÚNÍ - KYNNING Á EFNI
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Lísa Pálsdóttir
Miklar líkamlegar breytingar verða á meðgöngu og eftir fæðingu, algjört kraftaverk hvernig kvenlíkaminn aðlagast breyttum aðstæðum. Eftir fæðinguna er kvenlíkaminn mjög viðkvæmur og mikilvægt að hann fái að jafna sig hægt og rólega. Nokkuð hefur borið á því að konur sem fara í leikfimi sem þær ráða ekki við stuttu eftir meðgöngu og fæðingu, hafi þurft að leita til sjúkraþjálfara. Helstu afleiðingar af slíkri þjálfun eru vandamál í grindarbotni eins og sig á grindarholslíffærum og þvagleki en einnig verkir frá mjóbaki, mjaðmagrind og jafnvel rófubeini. þær Þorgerður Sigurðardóttir og Halldóra Eyjólfsdóttir eru sérfræðingar í meðgöngu- og fæðingarsjúkaþjálfun og segja okkur nánar frá hér á eftir.
Margir hafa áhuga á að koma sér upp krydd og matjurtum á þessum árstíma en skortir kannski þekkingu til að byrja. Grasagarður Reykjavíkur, Garðyrkjufélag Íslands, og Seljagarður - borgarbýli bjóða gestum og gangandi að fræðast um sáningu, útplöntun og umhirðu krydd- og matjurta auk þess sem góð ráð verða gefin varðandi smádýrin í matjurtagarðinum.
Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarfræðingur er lesandi vikunnar að þessu sinni.