Í dag beinum við sjónum okkar að fámennasta sveitarfélagi landsins, Tjörneshreppi í Suður-Þingeyjarsýslu þar sem íbúar eru á sjötta tug, og óvæntu 248 milljón króna fólksfækkunarframlagi sem barst hreppnum nýlega frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Hreppsnefndin vildi afþakka framlagið, en nú hefur komið í ljós að hún má það ekki - og því stendur til að boða til íbúafundar í næsta mánuði til að ákveða hvað eigi að gera við milljónirnar.
Viðmælandi: Aðalsteinn J. Halldórsson
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson