Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að fánaborginni við Ráðhús Reykjavíkur. Á fundi borgarráðs í dag verður nefnilega líklega tekin fyrir tillaga borgarstjóra um að flagga grænlenska fánanum við ráðhúsið. Hugmyndin með tillögunni er að sýna nágrönnum okkar táknræna samstöðu, eins og borgarstjóri orðaði það í Facebook-færslu, en fáni Grænlands yrði þá dreginn að húni við hlið úkraínska þjóðfánans og þess palestínska sem þar eru þegar af sömu ástæðu.
Viðmælendur:
Henry Alexander Henryson, siðfræðingur
Hörður Lárusson, grafískur hönnuður og sérfræðingur um íslenska fánann
Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen, Nuuk
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson