Mannlegi þátturinn

Farsæld barna, kórahátíð og Þorleifur Gaukur


Listen Later

Við fræddumst í dag um ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna sem hafa tekið gildi hér á landi. Þessi lög eru ný nálgun í þjónustu við börn og barnafjölskyldur og eiga að tryggja að börn og fjölskyldur þeirra falli ekki milli kerfa. Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri Farsældarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, kom í þáttinn í dag og sagði okkur meira frá þessum nýju lögum.
Svo heyrðum við um kórahátíð sem fer fram í Hörpu um helgina. Hingað til lands kemur til dæmis ein stærsta stjarna kórtónlistar í heiminum í dag, Eric Whitacre, sem hefur meðal annars byggt upp kórasamfélag á netinu sem hefur fengið gífurlega þáttöku og áhorf. Það er Landssamband blandaðra kóra og Félag íslenskra kórstjóra sem stendur að hátíðinni og Margrét Bóasdóttir mun sagði okkur meira frá henni í þættinum.
Þorleifur Gaukur Davíðsson kom svo til okkar. Hann fór til Bandaríkjanna í hinn virta Berklee tónlistarháskólann í Boston á fullum styrk og var fyrsti munnhörpuleikarinn sem fékk slíkan styrk við skólann. Í dag býr hann í Nashville og starfar sem tónlistarmaður í þessari borg þar sem nánast allt snýst í kringum tónlistarbransann. Í kjölfar föðurmissis samdi hann tónlist til að vinna úr sorginni og tilfinningunum sem komu í kjölfarið. Um helgina verður frumsýnd stuttmyndin Sorgarstig, þar sem Þorleifur Gaukur spilar þessa tónlist ásamt píanóleikaranum Davíð Þór Jónssyni og bassaleikaranum Skúla Sverrissyni. Þorleifur Gaukur kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá stuttmyndinni, lífinu í Nashville, munnhörpunni og spilað fyrir okkur í beinni lag úr myndinni.
Tónlist í þættinum
Mikki / Stuðmenn (Jakob Frímann)
Glad calypso om våren / Glenn Sundberg (Olle Adolphson)
Það sýnir sig / Una Torfadóttir (Sigurður Guðmundsdóttir)
Pabbavals / Þorleifur Gaukur Davíðsson (Þorleifur Gaukur Davíðsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners