Mannlegi þátturinn

FÍH í Covid, fjármál við starfslok og póstkort frá Spáni


Listen Later

Gunnar Hrafnsson bassaleikari og formaður félags hljómlistarmanna kom í þáttinn í dag. Hljómlistarfólk eins og flest sviðslistafólk hefur ekki getað sinnt sinni vinnu í heimsfaraldrinum og við heyrðum hvernig staðan er og hvað kom fram á aðalfundi félagsins sem haldin var í gærkvöldi.
Við fræddumst aðeins um fjármál við starfslok í þættinum í dag, enda er það eitthvað allir þurfa að huga að þegar að því kemur og í rauninni borgar sig að huga að því talsvert fyrr. Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka, stendur fyrir námskeiði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands þar sem farið er yfir það sem er mikilvægast að hafa á hreinu í sambandi við fjármálin þegar starfsævi lýkur. Björn kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá þessu.
Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni á Spáni og í póstkorti dagsins segir frá því að það hefur verið slakað aðeins á reglum vegna covid 19 í Valensíuhéraði. Nú mega veitingastaðir til að mynda hafa opið til tíu á kvöldin. Smit hefur ekki greinst lægra í Alicante frá því í júní í fyrra, ellefu manns smituðust í gær en það búa rúmar tvær milljónir manna í sýslunni. Það var sagt meira frá þessu í póstkorti dagsins og frá miklum húsnæðisvandræðum í Alicante borg, pólitík í Madrid og frá skógarverðinum sem kveikti í skógi til þess að fá hrós fyrir að slökkva eldinn. Það fór ekki alveg eins og til stóð.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners