Fílalag
Download on the App Store

Fílalag episodes

  • Dream On (Gestófíll: Árni Vil) – 18 tommu munnur
    Aerosmith er tekið fyrir í nýjasta þætti Fílalags. Þar er fjallað um kjaftana, leðrið, hattana og músíkina. Sérstakur gestófíll er Árni Vilhjálmsson, sem flaug alla leið frá Reykjavík til Toronto fyrir þessa 28 mínútna fílun. Aerosmith eru með þeim seigustu í bransanum. Þeir hafa teygt á sér höfuðleðrin, elskast á trommuhúðum og þuklað á gítarhálsum […]
    32 min
  • Guiding Light – Ómenguð rockabilly þráhyggja
    Hvað gera Bandaríkjamenn ef að bíll selst vel? Þeir framleiða meira af honum? Hvað þýðir að framleiða meira af honum? Framleiða fleiri eintök en líka að láta vera meira í hverju eintaki. Stærri vél, fleiri hestöfl, fleiri glasahaldarar, stærri stuðarar, dekkri rúður, þykkari leðurinnrétting o.s.frv. Þetta er saga amerískrar neyslumenningar og þetta er líka saga […]
    45 min
  • Popular – Að éta eða vera étinn
    „Þetta lag er kirsuberið á toppi þeirrar köku sem amerísk 90s unglingamenning gekk út á. Boðskapurinn var: ekkert skiptir máli nema vinsældir, sem eru í eðli sínu köld skilaboð sem hafa þá lógísku niðurstöðu að í raun skiptir ekkert máli í lífinu nema að éta eða vera étinn.“ Þetta kemur fram í nýjasta þætti Fílalags […]
    45 min
  • Sweet Dreams – Alvara poppsins
    Árið 1983 var popp farið að taka á sig alvarlega mynd. Fullt af poppstjörnum voru dánar langt fyrir aldur fram vegna ofneyslu. Fleetwood Mac var byrjað að vaða kókaínsnjóskafla upp á nafla, Ozzy var búinn að fara í sína fyrstu meðferð, John Lennon var myrtur af brjáluðum aðdáenda. Það hefur enginn sagt að poppið sé […]
    1 hr 8 min
  • 2 H.B. – Roxy Music útkall
    Mikið uppnám varð í herbúðum Fílalags í vikunni. Snorri sendi Bergi Ebba skilaboð. Í þeim stóð orðrétt: „Trommarinn í Roxy Music var að senda mér e-mail. Þurfum að taka upp þátt NÚNA“. Málið er útskýrt betur í þættinum. Lagið sem er tekið fyrir er af fyrstu Roxy plötunni frá 1972. Strákarnir fara yfir allt það […]
    1 hr 2 min
  • The Bad Touch – Tveir mínusar verða plús
    Fílalag endurflytur nú þátt sinn frá 2014 um lagið „The Bad Touch“ með Bloodhound Gang. Hér er allt gert rangt tónlistarlega. Bandarískt frat-boy band með söngvara sem hefur raddsvið upp á tvær nótur að spreyta sig á euro-poppi. Hvað gæti hugsanlega farið úrskeiðis? Allt.
    37 min
  • Don’t Try To Fool Me – Ekki reyna að djóka í mér
    Hann var ljóðskáld, hann var myndlistarmaður og hann var einn af fremstu lagahöfundum Íslands. Jóhann G. Jóhannsson er til umfjöllunar í þessum nýjasta þætti Fílalags og hvað annað verður tekið fyrir en 1973 neglan „Don’t Try To Fool Me“.Við erum ekki að reyna að djóka í ykkur. Lagið er svo stórt að það er eiginlega […]
    55 min
  • 99 Luftballons – Gasblöðrur. Gaman. Tortíming. Ást.
    Allir þekkja 99 Luftballons. Það er eitt frægasta 80s lagið. Fílgúdd með synthum og allir glaðir. Og lagið er kannski fyrst og fremst um gleði, æsku og fjör. En blaðran er blásin stærra en það. Lagið er líka um kalda stríðið, tortímingu, völd, græðgi, kommúnisma en reyndar fyrst og síðast um ástina. Gasblöðrurnar 99 eru […]
    37 min
  • Wicked Game – Ljóti leikurinn
    Árið er 1990. Rockabilly endurvakning ríður röftum í Los Angeles. David Lynch er að dúndra út skrítnum kvikmyndum með sætum krökkum og 50s músík. Ef þú ert stelpa er málið að vera í hvítri blússu og helst líta út eins og Andésína Önd. Ef þú ert strákur áttu að vera með barta, sunburst litaðan Gibson […]
    33 min

About Fílalag

From the publisher's feed

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur.

More shows like Fílalag

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

215 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Besta platan by Hljóðkirkjan

Besta platan

9 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

12 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners