Mannlegi þátturinn

Fjármál við starfslok, drengir í sjávarháska og Haustgildi á Stokkseyri


Listen Later

Við lok starfsferils er mikilvægt að undirbúa sig fyrir þær breytingar sem verða eftir að störfum lýkur. Með aukinni þekkingu er fengin betri yfirsýn og auðveldara verður að aðlaga sig að breyttu lífsmynstri. Við fengum Lilju Lind Pálsdóttur, viðskipta- og hagfræðing, til þess að fara aðeins yfir þetta með okkur í dag, en hún þekkir vel til lífeyrismála og hefur verið með ráðgjöf og fræðslu til fjölda ára. Hún heldur námskeið á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands, Á tímamótum - fjármál við starfslok og Lilja fór betur yfir þessi mikilvægu mál með okkur í dag.
Mannlegi þátturinn er tíu ára um þessar mundir og við höfum verið að rifja upp efni frá fyrstu dögum þáttarins. Til dæmis viðtal við Ara Ólafsson eðlisfræðing sem komst í hann krappan, ásamt fjórum vinum sínum, allt saman ungir drengir, þegar þeir fóru í ævintýralegan róður á Kópavoginum. Þeir voru aldrinum 12-14 ára og höfðu nokkrum sinnum farið í lystisiglingar á voginum, en í þetta skiptið reið alda yfir og bátnum hvolfdi. Við rifjuðum upp atburðinn með einum þessara drengja, Ara Ólafssyni eðlisfræðingi.
Uppskeruhátíðin Haustgildi, menning er matarkista, verður haldin í fjórða sinn á Stokkseyri um næstu helgi. Á sama tíma verður haldið upp tíu ára afmæli Bókabæjanna austanfjalls. Haustgildi er uppskeruhátíð í víðri merkingu sem fagnar hausti og uppskeru með það að markmiði að tvinna saman menningarviðburði og markað í fjölskylduvæna upplifun við ströndina. Við ræddum í dag við Pétur Má Guðmundsson, einn af aðstandendum hátíðarinnar.
Tónlist í þættinum:
Afi / Björk Guðmundsdóttir og Björgvin Gíslason (Björgvin Gíslason, texti Bjartmar Guðlaugsson)
Hún hring minn ber / Vilhjálmur Vilhjálmsson og hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar (erlent lag, texti Baldur Pálmason)
Capri Catarina / Haukur Morthens og hljómsveit Jörn Grauengard (Jón Jónsson, texti Davíð Stefánsson)
Ég er á leiðinni / Brunaliðið (Magnús Eiríksson)
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners