Undanfarin ár hefur sést til grátrönur víða um landið, en grátrönur hafi lengi verið flækingsfuglar hér á landi. Fæstir áttu von á því að grátrönur tækju upp á því verpa hérlendis en þær hafa samt sem áður orpið hér á landi í nokkur ár. Þetta vakti áhuga okkar, við hringdum til Húsavíkur í Yann Kolbeinsson náttúrufræðing hjá Náttúrustofu Norðausturlands og fengum hann til að fræða okkur um flækingsfugla á Íslandi í þættinum.
Við vorum einu sinni sem oftar að grúska í gullkistu útvarpsins og fundum áhugaverða frásögn af því þegar síðasti geirfuglinn var drepinn árið 1844 og þegar Eldey var klifin í fyrsta sinn af þremur ungum Vestmanneyingum. Leiðangurinn út í Eldey var ekki einfalt mál á þessum tíma, eða árið 1894. Það var Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi sem tók saman og las pistil um þessi efni í þáttröðinni: Eyjar við Ísland - Eldey sunnan Reykjaness, árið 1962.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var Ingibjörg Gréta Gísladóttir, leikkona og framkvæmdastjóri Reykjavík International Film Festival, eða RIFF, sem verður sett í þessari viku. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON