Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • Flakkað um við- og tengibyggingar
    6. febrúar 2016
    Flakkað um við- og tengibyggingar
    Umsjón: Lísa Pálsdóttir
    Farið í miðbæ Reykjavíkur og nokkrar eldri og yngri við- og tengibyggingar skoðaðar í fylgd Péturs Ármannssonar arkitekts. Einnig er viðbygging við Hverfisgötu 71 skoðuð og farið í heimsókn til eiganda og hönnuðar.
    Rætt við Pétur Ármannsson arkitekt um Dómkrikjuna, Kringluna við Alþingishúsið og fl. um menningarpólitík, hvaða áherslur eigi að vera í við- og tengibyggingum og fl.
    Rætt við Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndara, en hann á Hverfisgötu 71 og gerði upp og byggði við, sagt frá húsinu og fl.
    Rætt við Margréti Harðardóttur arkitekt hjá Studio Granda sem hannaði uppgjör og viðbyggingu að Hverfisgötu 71, um áherslur og byggingastíl nútímans, það smáa og það stóra.
    Rætt aftur við Pétur Ármannsson og gengð að Lækjargötu og rætt um viðbyggingu við gamla Landsjrórahúsið á Bernhöftstorfunni við Amtmannsstíg (Humarhúsið) um fleiri við byggingar í borginni svo sem Elliheimilið Grund og fl.
    53 min
  • Flakk með Götufólki - Seinni þáttur um heimilislausa
    Flakkað með götufólki - fjórði þáttur í þáttaröðu um sjoppur og götufólk (róna)
    Umsjón: Lísa Pálsdóttir.
    Flakkað með götufólki öðru sinni og fjallað um stöðu hópsins í höfuðborginni. Rætt við fólk í Hjálpræðishernum, formann velferðarráðs, forstöðukonu Konukots og götumann.
    Rætt við Ingva Skjaldarson hjá Hjálpræðishernum um götufólk og þeirra framlag, mat, listasmiðju, flutning o.fl.
    Rætt við Ilmi Kristjánsdóttur form. velferðarráðs borgarinnar um stefnu, stöðu og áætlanir.
    Rætt við Svenna, sem hefur lengi búið á götunni, en býr nú í „opnu fangelsi“ eins og hann kallar það úrræði sem honum er boðið uppá, í sambýli með 7 öðrum og ákveðinn útivistartíma.
    Rætt við Svölu Jóhannesdóttur verkefnastjóra hjá Rauða krossinum, um Konukot, götukonur, skaðminnkandi meðferð, úrræði í húsnæðismálum og fleira.
    52 min
  • Flakkað með götufólki - Fyrri þáttur um heimilislausa
    Flakkað um Hafnarstræti með Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi og eldri tími Hafnarstrætisróna rifjaður upp, rætt um horfna staði og fleira.
    Rætt við Vörð Levý Traustason framkv.stj. Samhjálpar og Magnús Tryggvason fyrrverandi drykkjumann og starfsmann Samhjálpar um Kaffistofuna, Samhjálp, fólkið sem þangað kemur, úrræði o.fl.
    Rætt við Sigþrúði Erlu Arnardóttur framkv.stj. þjónustumiðstöðvar miðborgar og Hlíða um húsnæðisúrræði götufólks hjá borginni og áherslur í þeim málum o.fl.
    Rætt við Grím Hjartarson sem var á götunni í mörg ár áður en hann fékk íbúð fyrir tveimur árum, um lífið á götunni, en hann svaf stundum á ferðaklósettum borgarinnar. Hann segir úrræðin lítil sem engin og borgin standi sig ekki í stykkinu
    53 min
  • Flakkað um sjoppur - annar þáttur
    Flakkað um sjoppur ýmis konar öðru sinn í fylgd Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings, rætt um Adlon, Langabar, Íshallir og fl. Hverjir sóttu þessa staði og ráku. Rónar og ástandið kemur við sögu og fl.
    Farið í heimsókn til Bjargar Ísaksdóttur myndlistarkonu sem rifjar upp stríðsárin, dansstaðina, ástandið og andrúmsloft stríðs- og eftirstríðsára.
    Vitnað í Stríðsminningar Jóns Kristófers Sindin er lævís og lipur eftir Jónas Árnason
    Vitnað í greinargerðir Jónasar Árnasonar á þingi um byggingu Æskulýðshallar í Reykjavík og sömuleiðis takmörk á umgengni hermanna við Íslendinga en þeir þurftu að fara fyrir kl. 10 á kvöldi 6 daga vikunnar og eitt kvöld, miðvikudaga máttu þeir vera í bænum til miðnættis.
    47 min
  • Sjoppuflakk í Reykjavík
    Flakkað um nokkrar sjoppur í Reykjavík og spurningunni velt upp, hvað orðið hefur um þær. Bæði nýtt og endurtekið efni.
    Rætt við Pétur Gunnarsson rithöfund um orðið "sjoppa" sjopphangs fyrri tíma, félagsmiðstöðina sjoppu og fleira - nýtt
    Rætt stuttlega við Ögmund Skarphéðinsson arkitekt um Sunnusjoppu og hann segist aldrei hafa þorað inn, þegar hann var strákur, því mamma bannaði það. (úr flakki á Laugarásnum)
    Rætt við Ingva Eysteinsson afgreiðslumann í Sunnusjoppu en hann er alinn upp í hverfinu (einnig úr flakki á Laugarásnum)
    Rætt við Önnu Dóru Ármannsdóttur kaupmann í Vikivaka á Laugavegi, um sjoppuna, kúnna og breytingar sem eru fyrirhugaðar - nýtt
    Rætt við Michael Hannes Zontag eigansa Mikka Refs við horn Vesturgötu og Garðastrætis, en hann kemur frá Texas - hálfur Íslendingur og dreymdi um að flytja hingað og verða kaupmaðurinn á horninu (áður í Mannlega þættinum í haust)
    Rætt við Guðmund Ingólfsson ljósmyndara en hann tók myndir af sjoppum árið 1989, sem allar eru horfnar nema Sunnusjoppa - rætt um myndirnar og fl. - nýtt
    51 min
  • Flakkað um Valhúsahæð - síðari þáttur
    Flakkað um Valhúsahæð á Seltjarnarnesi öðru sinni í fylgd Stefáns Bergmann líffræðings. Gengið að Valhúsabraut, rætt um byggingar, náttúruminjar, fólk og fleira.
    Farið í heimsókn að Valhúsabraut 2 þar sem Vilhjálmur Lúðvíksson efnaverkfræðingur og Áslaug Sverrisdóttir sagnfræðingur og tógvinnusérfræðingur búa. Rætt um búsetu, ullarþvott, ræktun, námsár og heilmikið meira.
    Farið í heimsókn til Ólafs Egilssonar lögmanns og fyrrverandi sendiherra í Peking, París og Moskvu og fl. Rætt um byltinguna í Rússlandi, sendiráðslífið, búsetu á Nesinu og fl.
    51 min
  • Flakkað um Valhúsahæð á Seltjarnarnesi - fyrri þáttur
    Gengið um Valhúsahæð í fylgd Stefáns Bergmann líffræðings, rætt um náttúrfar, jarðlög, fólk og sögu.
    Farið í heimsókn í Mýrarhúsaskóla og rætt við starfandi skólastjóra Ólínu Thoroddsen um skólastarfið sögu og fleira en Mýrarhúsaskóli er einn elsti skóli landsins, en hann var stofnaður árið 1874 og fyrsta veturinn voru 18 nemendur í skólanum.
    Farið í heimsókn til Kristjáns Steingríms Jónssonar myndlistarmanns og deildarforsta myndlistar í Listaháskóla Íslands, en han býr að Krikjubraut 7 sem liggur utan í Valhúsahæðinni, rætt um búsetu, sérstakt heimili og vinnustofa hans heimsótt og rætt um listina og fl.
    48 min
  • Flakkað um Lyfjafræðisafnið í Nesi, síðari þáttur um Nesstofu
    Forvitnilegt safn í eigu Lyfjafræðingafélagsins er staðsett í gamla fjósinu við hlið Nesstofu, safnið er í eigu Lyfjafræðingafélagsins og er sjálfseignarstofnun. Það er opið á sumrin, en hægt er að skoða það eftir pöntun. Kristín Einarsdóttir lyfjafræðingur og stjórnarformaður safnsins þekkir nánast hvern hlut í safninu. En þeir koma víða að og frá mörgum tímabilum í sögunni.
    Endaði ævina 60 ára og geðveikur
    Björn Jónsson var fyrsti íslenski lyfjafræðngurinn og bjó í Nesi við Seltjörn í sambýli við Bjarna Pálsson landlækni, en Björn kom þangað árið 1768. Sambúðin var erfið og þröngt var í húsinu, en þar bjuggu um 40 manns er talið. Björn reyndi fyrir sér í ýmissi ræktun eftir að landlæknir dó, og jörðinni var skipt upp. En hann lést aðeins sextugur, eftir veikindi sem stóðu yfir í nokkur ár, og þá hafði hann misst lyfsöluleyfið.
    Urtagarðurinn í Nesi
    Guðmundur Lúðvíksson efnaverkfræðingur með meiru, er vel fróður um þær urtir sem vaxa í garðinum, sumar eru nytjajurtir, aðrar notaðar til lækninga, og sumar bæði.
    Húsa- og safnamálin við Nestofu eru í biðstöðu
    Eftir bankahrunið var nýtt hús sem ætlað var til notkunar á læknaminjum gert fokhelt og því hefur enn ekki verið fundið hlutverk. Málið er hjá Mennta- og menningarmálaráðuneyti segir Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarness, en er sannfærð um að málið leystist og það komi safn í húsið, en kannski verður það ekki læknaminjasafn.
    50 min
  • Flakkað um Nesstofu
    Nesstofa heimsótt í fylgd Þorsteins Gunnarssonar arkitekts og leikara. Þorsteinn hafði umsjón með uppgjöri Nesstofu, eins og með Viðeyjarstofu, Sjórnarráðinu og Hólakirkju svo eitthvað sé nefnt. Húsið er í eigu Þjóðminjasafnsins og er safngripur í sjálfu sér en vantar kannski hlutverk, eitt sinn var Læknasafnið í húsinu en nú er það í geymslu.
    Haraldur Jóhannsson heildsali/athafnamaður heimsóttur, en hann er sonur síðustu ábúenda Nesstofu, foreldrar hans voru Jóhann Ólafsson magnaravörður hjá Ríkisútvarpinu og Ólöf Gunnsteinsdóttir, Haraldur býr hinum megin við túnið í Neströð 7. Rætt við hann um æskuárin og fleira.
    51 min
  • Flakkað um húsnæðismál á höfuðborgarsvæðinu síðari þáttur
    Það eru um 2400 íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu, en þörfin er 3000 - 3600 íbúðir, við náum ekki að saxa á uppsafnaðan vanda á næstu árum. Þetta segja fróðir menn hjá Samtökum iðnaðarins. Flakkað um húsnæðismarkaðinn á morgun kl. 1500 á Rás 1.
    Bæði með belti og axlabönd
    Háir vextir og verðtrygging gerir það að verkum að húsnæðiskerfi okkar er bæði með belti og axlabönd segir Ásgeir Brynjar Torfason rektarhagfræðingur og vill að bæði fjármálafyrirtæki og yfirvöld setjist niður og spyrji sig hvernig við viljum hafa þetta til framtíðar.
    Ekki fleir einbýlishús
    Nafni hans Jónsson hagfræðingur hjá Háskóla Íslands telur að ekki verði byggð fleiri einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu á næstunni, hann segir meiri þörf á minni íbúðum og rannsóknum á þörfum markaðarins.
    Þurfum að opna umræðu um íbúðagerðir
    Anna María Bogadóttir arkitekt tók þátt í Hægri breytilegri átt, þar sem fjallað var um nýjungar í byggingu íbúða og skipulag. Anna María stýrði einni Málstofunni á málþingi borgarinnar og taldi að flestir horfi nú björtum augum til framtíðar, en við verðum að vanda til verka og spyrja hvernig samfélagi við viljum búa í.
    52 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.