Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • Flakkað um Vogabyggð - nýtt hverfi
    Mynd með færslu
    Margt og mikið hefur verið rætt um húsnæðismál á landinu, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Fyrsta hverfið sem við mögulega sjáum rísa er Vogabyggð, vestan við Elliðaárvoginn. Flakkað um nýtt hverfi og möguleika í borgarlandinu laugardag kl. 1500 á Rás 1.
    Ótrúleg ruslasöfnun á Gelgjutanga
    Sigríður Magnúsdóttir arkitekt hjá Teiknistofunni Tröð og hollensku teiknistofurnar Jvantspijker og Felixx unnu til 1. verðlauna í samkeppni um hverfið og hafa unnið saman að endanlegu skipulagi. Það sem fyrir er á svæðinu eru mörg smá og stór fyrirtæki og mörgum þeirra hefur fylgt ótrúlegt drasl, sem þarf að flytja burt. Byggðar verð 1300 íbúðir, en einnig er reiknað með að fyrirtæki verði enn á svæðinu. Sigríður tók þátt í málfundi um húsnæðismál hjá Reykjavíkurborg um helgina ásamt fjölda annara.
    Gott að búa í Súðarvogi
    Þorbergur Halldórsson gullsmiður rekur verkstæði sitt í uppgerðu húsi við Súðarvog 44 - 48 og unir sér vel í sambýli við aðra, sem þarna búa og starfa. Erlingur (Elli) Valgarðsson myndlistarmaður og kennari, býr ásamt eiginkonu í haganlegri uppgerðri íbúð á sama stað, hann opnaði nýlega sýningarsal við hlið heimilisins og segist alls ekki vera á leiðinni eitthvert annað.
    Klasi þróar íbúðabyggð hinum megin við Voginn
    Ingvi Jónasson hjá Klasa tekur þátt í málfundi borgarinnar í Ráhúsinu um helgina, þar segir hann frá þróunarstarfi um uppbyggingu við Sævarhöfða og fl.
    51 min
  • Flakkað um hótel í Reykjavík - síðari þáttur
    Síðari þáttur um uppbygginu og hótelvæðingu í Reykjavík. Farið í heimsókn á tvö ný hótel, Center hótel Miðgarð við Hlemm og Foss hótel Reykjavík í Þórunnartúni, í fylgd Hildigunnar Sverrisdóttur arkitekts og kennara við LHÍ, rætt við hótelstjórana, einnig rætt við reynslumikinn hótelrekanda auk formanns umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur.
    Rætt við Davíð Kjartansson hótelstjór á Center hótel Miðgarði við Hlemm og Hildigunni Sverrisdóttur arktekt um hótelið, ónæðið vegna byggingaframkvæmda, framtíðarsýn og fl.
    Rætt við Hjálmar Sveinsson fromann umhverfis- og skipulagsráðs Rvk. Um yfirsýn, reglugerðir og umfang
    Rætt við Jimmy Wallster hótelstjóra á Foss hótel Reykjavík við Þórunnartún og Hildigunni Sverris um hótelið, stærð, arkitektúr, staðsetningu og fl.
    Rætt við Wilhelm Wessmann fyrrv. Hótelstjóra um hvað mætti betur fara í uppbygginu, þjónustustigi, menntun starfsmanna í hótelgeiranum og fl.
    53 min
  • Flakkað um hótel í Reykjavík - 1.þáttur
    31. október 2015
    Flakkað um Hótel í Reykjavík fyrri þáttur
    Umsjón: Lísa Pálsdóttir
    Tæknimaður: Lydia Grétarsdóttir
    Fróðir menn sem þekkja til í hótelrekstri segja að "konseptið" verði að vera í lagi, þegar lagt er upp með nýtt hótel. Mikil uppbygging hótela í Reykjavík er til umfjöllunar í Flakki á morgun kl. 1500 á Rás 1.
    Er hótelið fyrir almenna borgara?
    Flestir eru sammála því að hótel sem rís inní íbúðahverfi verði að ganga upp fyrir borgarana, gott dæmi um slíkt er Icelandair hótelið Marina við Mýrargötu, þar er bar og kaffihús sem margir Íslendingar sækja reglulega. Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt er ánægð með Marina og arkitektinn Freyr Frostason segir þetta hafa verið krefjandi en afar skemmtilegt verkefni.
    Hótel Borg fær mann til að líða eins og heimsborgara
    Segir Hildigunnur um Hótel Borg, en nýlega var ný álma í viðbyggingu tekin í notkun. Ólafur Þorgeirsson hótelstjóri er ánægður með hvernig til hefur tekist en hótelið er í Art deco stíl millistríðsárana. Böllin eru fyrir bí, en einkasamkvæmi eru velkomin í nýja Karólínustofu hótelsins. Óli Gaukur og Kalli Möller rifja upp spilamennsku undir ýmsum kringumstæðum á Borginni hér áður fyrr. Brotið er úr Flakki um Hótel Borg frá því í mars 2010
    "Ég kann allt nema að spila á píanóið"
    Segir Wilhelm Wessmann sem hefur afar víðtæka reynslu af hótelrekstri, en hann hefur starfað í faginu bæði hér heima og víða um heim. Hans segir aðalvandamálið í allri þessari uppbyggingu vera skortur á vel menntuðu fólki í geiranum.
    52 min
  • Fjallað um Gísla Halldórsson arkitekt, seinni þáttur
    Fjallað um Gísla Halldórsson arkitekt, pólitíkus og íþróttafrömuð í öðrum þætti af tveimur. Farið í Laugardalinn og rætt um íþróttamannvirki, skipulag svæðisins, rætt um æfisögu hans og farið á Hótel Loftleiðir eða Hótel Natura en Gísli hannaði hótelið á sínum tíma.
    Rætt við Pétur Ármannsson arkitekt um íþróttamannvirki Gísla, svo sem Laugardalshöllina og gömlu stúkuna. Sagt frá skipulagi og hugmyndum fyrri tíma um svæðið
    Rætt við Jón M Ívarsson sagnfræðing og byggingameistara um ævisögu Gísla, en Jón skrifaði hana sem kom út 2005. Hann segir frá Gísla sem íþróttafrömuði og pólitíkus og manninum sjálfum
    Rætt við Halldór Eiríksson arkitekt hjá Tark arkitektum en hann hannaði hæð ofaná skrifstofubyggingu Icelandair á Flugvellinum, en Gísli hannaði Hótel Loftleiðir á sínum tíma, Tark er 75 ára í ár, Gísli og Sigvaldi Thordarson stofnuðu fyrirtækið undir nafninu Teiknistofan árið 1940. Halldór segir frá modernismanum og byggingastíl Gísla.
    50 min
  • Fjallað um Gísla Halldórssonar arkitekt, fyrri þáttur
    Fjallað um Gísla Halldórsson arkitekt í tveimur þáttum. Í þessum fyrra þætti er farið í miðbæinn og rætt um hús Almanna trygginga í Pósthússtræti, húsið er á milli Reykjavíkurapóteks og Hótel Borgar og hefur verið afar umdeilt síðustu árin. Gengið að gamla Landsímahúsinu, en viðbygging eftir Gísla hefur einnig verið afar umdeild, síðan gengið að Tollhúsinu. Gísli var modernisti, og margar byggingar þess tíma eru umdeildar í dag, hann var afkastamikill arkitekt, samfélagsmeðvitaður og mikill íþróttafrömuður. Hann teiknaði margar lykilbyggingar, svo sem Laugrdalshöll og stúkuna. Hótel Loftleiðir, margar flugstöðvarbyggingar, félagsheimili og í pólitíkinni vann hann ötullega við lausn húsnæðismála í borginni á fimmta, sjötta og sjöunda áratugnum.
    Rætt við Pétur Ármannsson arktitekt um byggingar Gísla Halldórssonar í miðborginni.
    Farið í heimsókn í Arkibúlluna, en stofan er í gömlu teiknistofu Gísla við Tómasarhaga 31, Arkibúlluna reka Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir og Hrefna Björg Þorsteinsdóttir arkitektar auk Margrétar Leifsdóttur arkitekts.
    Farið í Heimsókn á gamla heimili Gísli við Tómasarhaga 31, en þar býr nú barnabarn hans Margrét Leifsdóttir arktitekt ásamt fjölskyldu sinni.
    52 min
  • Flakkað um Stokkhólm - Þriðji þáttur
    Breytir borg um svip
    Í síðustu ferð Flakksins í Stokkhólmi hefur borgin breytt töluvert um svip. Það er sunnudagur, hjólreiðakeppni og götur lokaðar, mótmæli á Sergils torgi og sunnudagstúrar um Skeppsholmen. Flakkað um Stokkhólm í þriðja sinn kl. 1500 10.október á Rás 1.
    Maður verður að skapa sér verkefni sjálfur
    Halla Ólafsdóttir dansari og höfundur, hefur búið í Stokkhólmi í 11 ár. Hún starfar sjálfstætt og líkar vel, þó oft sé erfitt að finna "helvítis tíma" til að skapa. Það togast á í henni ástandið í heiminum vegna flóttamanna sem ekkert eiga og rökstuðningur við að sækja um styrki til að skapa dansverk.
    Skeppsholmen er heillandi staður
    Þessi litli hólmi sem var í eigu hersins þar til um miðja síðustu öld, er afar heillandi, með fjölbreyttum byggingum og náttúrusvæðum. Þarna er Listaakademían, Nýlistasafnið og framsækið leikhús. þar er einnig að finna bátasmíði og skólaskip, hljóðver Benny Andersons úr Abba, veitingastaði og margt fleira. Joakim Carlson sem verið hefur leiðsögumaður Flakksins í Stokkhólmi þekkir söguna jafnvel á Skeppsholmen eins og annar staðar í borginni.
    Íslendingar verða að flytja úr landi um tíma
    Birkir Ingibjartsson nýútskrifaður arkitekt hefur búið í Stokkhólmi í nokkur ár, hann er að leita sér að vinnu og hlakkar til að takast á við verkefni í borginni, því þar eru miklar framkvæmdir um þessar mundir. Hann telur að allir Íslendingar verði að búsetja sig erlendis um tíma, taka inn aðra menningu og þroskast og læra.
    51 min
  • Flakkað um Stokkhólm - annar þáttur
    Gengið um Gamla Stan í Stokkhólmi öðru sinni í fylgd Joakims Calsonar, sem er innmúraður Stokkhólmsbúi, þekki söguna, arkitektúr og fl. Gengið að Konungshöllinni, og niður að höfninni og sagt frá forláta seglsskipi sem nú er farfuglaheimili en silgldi til Ástralíu með grjót hér á öldum áður og heim með hveiti, þetta tók eitt ár.
    Farið á Háskólasvæðið í Stokkhólmi og gengið um þar og grasagarðinum með Árna Sverrissyni prófessor í félagsfræði við háskólann, hann hefur búið í Svíðþjóð í hart nær 30 ár, hann segir frá byggingum og fleiru varðandi skólann og svæðið.
    48 min
  • Flakkað um Gamla stan
    Gengið um hluta Gamla stan í Stokkhólmi í fylgd Joakims Carlssonar og rætt um sögu og byggingar, sagt frá fólki og fleiru. Farið um öngstræti og staldrað við á torgum eins og Járntorginu.
    Rætt við Hrund Skarphéðinsdóttur verkfræðing sem vinnur að hönnun nýrra umferðarmannvirkja í Stokkhólmi m.a. Slussen sem er lestar- og umferðarmiðstöð sem komin er til ára sinna, mikil breyting verður á Slussen, en reiknað er með að breytingar og byggingatími verði um 7 ár. Rætt við Magnús Jökulsson (ynsta son Jökuls Jakopssonar) en hann hefur búið í Stokkhólmi frá því hann var barn. Hann rekur nú nokkur kaffihús í borginni undir nafninu Il-Café, við heimsækjum hann á einu kaffihúsa hans á Södermalm.
    54 min
  • Flakkað um Sjávarklasann á Granda
    Flakkað um Sjávarklasann á Granda. Fyrirtæki í sjávarútvegi bæði nýsköpun, tækni og annað sem kemur sjávarútvegi við hafa sameinast undir einu þaki í Sjávarklasanum, alls 62 fyrirtæki sem samnýta vinnupláss og tengslanet. Gengið um húsið og sagt frá ýmsu sem þarna fer fram og rætt við forsvarsmenn nokkurra þeirra.
    Eva Rún Michelsen framkvæmdastjóri Húss Sjávarklasans segir frá tilurð fyrirtækisins, fyrirtækjunum sem þar eru og fleiru varðandi starfsemina.
    Atli Jósafatsson segir frá fyrirtækinu Pólar sem framleiðir toghlera víða um heim
    Þorsteinn Ingi Víglundsson hjá Thorice segir frá ískrapavélum sem notaðar eru til kælingar á fiski, kjúklingi og meira að segja brauðdeigi.
    Steingrímur Óli Einarsson hjá True Westfjords Trading segir frá Dropa, nýju lýsi sem framleitt er á Bolungarvík, eftir aðferðum landnámsmanna.
    Óskar Þórðarsson hjá Ommnomm súkkulaði segir frá veru þeirra í Sjávarklasanum, en þeir nota t.d. sjávarsalt á eitt sinna súkkulaða.
    Rætt við Ingva Steinar Ólafsson vert há Bergson ER sem er nýr veitingastaður í Sjávaklasanum, aðallega sem hádegisverðarstaður með ferskt hráefni af fiskmarkaði sem er á neðstu hæð hússins.
    51 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.