Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • Flakkað um hús í niðurrifshættur í miðbænum
    Flakkað um svokallaðan Barónsreit í miðbæ Reykjavíkur í fylgd Snorra Freys Hilmarssonar leikmundahöfundar og höfundar bókarinnar 101 Tækifæri. Rætt um heillegar götumyndir, hús sem mögulega verða rifinn og hvaða möguleika gömul hús eiga til að lifna við, samanber Kex Hostel við Skúlagötu, gömul kexverksmiðja sem fékk nýtt líf við starfsemi er nú rekin þar. Rætt við Halldór Eiríksson arkitekt hjá Tark arkitektum um deiliskipulag reitsins, hverju skal haldið og hvað skal rifið og hvernig kaupin gerast á eyrinni um byggingarétt og magn. Rætt við Pétur Ármannsson arkitekt hjá Minjastofnun Íslands um mögulega skaðabótaskyldu við friðun húsa.
    51 min
  • Flakkað um Íslenska bæinn í Austur-Meðalholtum
    27. ágúst 2016
    Í Austur-Meðalholtum hefur Íslenski bærinn verið byggður upp auk sýningarskála og kaffihússins Vöðlakoti. Allt hefur þetta verið gert eftir kúnstarinnar reglum og engin svikin af heimsókn þangað.
    Sýningarskáli með fræðandi upplýsingum
    Í sýningarskálanum, sem er nýtt hús við bæjarhólinn, er að finna ýmsar sögulegar heimildir um byggingu torfbæja á Íslandi auk fjölda mynda. Meðal annars eru teikningar af baðstofum, sem nánast allar eru nákvæmlega eins byggðar um allt land, eins konar Ikea pakki segir Kristín Magnúsdóttir lífefnafræðingur, en hún og Hannes Lárusson myndlistarmaður hafa byggt upp bæinn og annað á staðnum á síðustu 30 árum. Í gamla bænum er allt eins og það var þegar bærinn var byggður á sínum tíma, en talið er að búið hafi verið í Austur-Meðalholt allt frá landnámi.
    Syngjandi kokkur í Vöðlakoti
    Eyjólfur Eyjólfsson söngvari rak kaffihúsið í sumar, og telur líklegt að hann taki það að sér aftur næsta sumar. Lummur og hnallþóran Hekla hafa verið einkenni kaffihússins, en allir munir í húsinu koma úr safni Aðalbjargar Egilsdóttur frá Galtarlæk, en húsið sjálft er frá Gaulverjabæ.
    51 min
  • Flakkað um Landspítala - síðari þáttur
    Farið í heimsókn á Landspítala og fjallað um af hverju þarf að byggja upp spítalann við Hringbraut og það sem fyrst. Gengið um sjúkrahúsið, rætt suttlega um sögu hans og fl.
    Rætt við Pál Matthíasson forstjóra Landspítala um nauðsyn þess að byggja núna og alls ekki tefja málið lengur.
    Rætt við Guðmund Þorgeirsson hjartalækni og prófessor í lyflækningum hjá HÍ um aðstöðu á hjartadeild, tengsl spítalans við Háskólann og nauðsyn þess að byggja strax, og kosti þess að ný bráðamóttaka fyrir alla verður á nýja spítalanum.
    Rætt við Önnu Stefánsdóttur fyrrverandi hjúkrunarforstjóra og stjórnarformann samtakann Spítalinn okkar um aðstöðu aðstandenda, sjúklinga og fleira sem er allt af þröngt, og fl.
    Rætt við Ásdísi Hlökk Theódórsdóttur forstjóra Skipulagsstofnunar um umferðarmannvirki, framtíðarskipulag á höfuðborgarsvæðinu, almenningssamgöngur og fl.
    53 min
  • Flakkað með bíladellukörlum
    Fjallað um ameríska bíla frá 1950-1970 og Mercedes Benz, drauma og uppgjör á gömlum bílum.
    Viðmælendur eru:
    Ólafur Gunnarsson rithöfundur um bíladelluna og ferð til Bandaríkjanna.
    Guðmundur Hreiðarsson bifvélavirki hjá Ræsi um nýjustu gerðir Mercedes Benz og viðmið við ameríska bíla.
    Aðalsteinn Ásgeirsson hjá Steina í Svissinum en hann var með Ólafi í Bandaríkjunum og gerir upp gamla bíla fyrir aðra.
    Kristján Jónsson (Stjáni meik) um fyrri áhuga hans á gömlum bílum sem er alveg horfinn.
    50 min
  • Flakkað um Rögnvald Ólafsson arkitekt
    Rögnvaldur Ólafsson var fyrsti íslenski arkitektinn og hafði nóg að gera eftir að hann kom frá námi í tíma heimastjórnar á Íslandi. Það vantaði allt. Kirkjur, skóla og heimili fyrir ráðamenn. Rögnvaldur var afkastamikill á stuttri æfi, en hann lést úr berklum á Vífilstaðaspítala á fertugasta og þriðja aldursári. Síðasta verk hans var spítalinn. Hann hannaði pósthúsið, 30 kirkjur um land allt m.a. Húsavíkurkirkju, skóla vítt og breytt um landið. Staðastað að Sóleyjargötu 1 þar sem skrifstofa forseta er til húsa. Við Tjarnargötuna á hann mörg hús m.a. stækkun og útlit Ráðherrabústaðarins.
    Gengið í fylgd Björns G. Björnssonar leikmyndahöfundar, en hann hefur nýlokið við bók um Rögnvald Ólafsson sem kemur út á vegum hins Íslenska Bókmenntafélags í sumar, gengið frá Torfunni (veitingastaðnum) en hann hannaði turninn á húsinu að Skólabrú, síðan í Tjarnargötu og Krikjustræti yfir Austurvöll að Pósthúsinu. Rætt um feril Rögnvaldar, menntun, störf og fl.
    Farið í heimsókn að Tjarnargötu 22, húsið var byggt fyrir Klemenz Jónsson landritara árið 1906, sama fjölskylda býr enn í húsinu rætt við Bjarna A Agnarsson rannsóknarlækni og meinafræðing, en hann er barnabarn Klemenzar.
    51 min
  • Flakkað um Sigurð Guðmudsson arkitekt
    Sigurður Guðmundsson nam við Listaakademiuna í Kaupmannahöfn og flutti til Íslands þegar hann fékk það verkefni að teikna Austurbæjarskólann, og segja má að skólinn hafi verið lokaverkefni hans í námi. Skólinn var framúrskarandi nútímalegur og með þeim bestu á Norðurlöndunum þó víðar væri leitað. Sigurður teiknaði margar stærri byggingar landisins, svo sem Þjóðminjasafnið, Gamla Garð, Grund, Stýrimannaskólann, Hafnarhúsið, Hallgrímskirkju við Saurbæ, auk fjölda íbúðarhúsa. Gengið frá Austurbæjarskóla, að Freyjugötu, Bergstaðastræti og endað við Þjóðminjasafnið og Hringbraut 26 sem er íbúðarhús eftir hann.
    Rætt við Pétur Ármannsson arkitekt um byggingalist Sigurðar, staldrað við nokkur húsa hans og sagt frá ferli hans í fjórgang
    Farið í heimsókn að Bergstaðastræti 74 a en það hús byggði Jón Stefánsson málari í félagi við Ásgrím Jónsson málara. Birgir Sigurðsson rithöfundur og Elsa Vestmann Stefánsdóttir búa í húsinu nú. Rætt við Elsu og um húsið, sögu og búsetu.
    52 min
  • Flakkað um torg í biðstöðu
    Flakkað um torg í biðstöðu
    Umsjón: Lísa Pálsdóttir
    Gengið um nokkur torg í biðstöðu í Reykjavík, en borgin hefur boðið hygmyndaríkum að breyta ákveðnum svæðum í torg yfir sumartímann. Gengið frá Óðinstorgi að Káratorgi við Frakkastíg, Njálsgötu, Kárastíg, niður Frakkastíg og Laugaveg, staldrað við á Bernhöftstorfu, síðan gengið yfir Lækjargötu og undirgöngin að torgi bakvið Jómfrú og Hótel Borg, framhjá Austurvelli og að Fógetatorgi/Víkurgarði. Rætt um torg, hvernig þau verða til, hvað þarf til að þau heppnist, af hverju þessi torg eru einatt í biðstöðu, skipulag, sögu og fleira.
    Viðmælendur eru Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt og umhverfis- fræðingur hjá Borgarskipulagi og verkefnsstjóri verkefnisins, og Magneu Þór Guðmundsdóttur arkitekt og varaformann Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur.
    52 min
  • Flakkað um Landspítalalóðina
    Gengið um Landspítalalóðina í fylgd Hilmars Þórs Björnssonar arkitekts, rætt um sögu og tilvonandi framkvæmdir. Núverandi byggingar og kaos á lóðinni, eins og hún lítur út núna. Þarna hefur byggingum verið hent niður þegar þurft hefur.
    Litið í heimsókn til Leifs Magnússonar verkfræðings á Barónstíg 80, sagt frá húsinu og hann segir sína afstöðu til byggingaframkvæmda og flugvallarins.
    Guðrún Jónsdóttir arkitekt og íbúi á Bergstaðastræti 81 og nýlega sjúklingur á Landspítala, segir frá reynslu sinni af legu á sjúkrahúsinu, afstöðu sinni til framkvæmda, auk þessi segir hún sögu húss síns og búsetu.
    50 min
  • Flakkað um flokkshollustu
    30. apríl 2016
    Flakkað um flokkshollustu
    Mikið hefur verið fjallað um stuðning við flokka og flokkshollustu í umróti stjórnmálanna undanfarið. Málið skoðað í flakki í samtali við :
    Unni Brá Konráðsdóttur alþingsmann Sjálfstæðisflokki opinberaði aðra skoðun en flokkurinn um kosningar
    Ellert B. Schram fyrrverandi alþingismann, sat fyrir Sjálfstæðisflokk og síðan Samfylkingu, eftir að hann líkaði ekki við stefnu flokksins í kvótamálum og sölu bankanna. Suttlega um hollustu við íþróttafélag
    Huldu Þórisdóttur félagssálfræðing í stjórnmálafræði við HÍ. Rætt um tilhneigingu mannsins til að tilheyra hópi, nánast í öllu lífinu. Hvað veldur, hvernig refsað ef hollusta bregst og s.frv.
    Guðmund Steingrímsson alþingismann Bjartrar framtíðar, en hann byrjaði í Samfylkingu, gekk síðan í Framsókn og að lokum einn stofnanda Bjartar framtíðar, um hollustu, skoðanaskipti og starf alþingismanna o.fl. suttlega um íþróttafélög.
    51 min
  • Flakkað um ættfræði
    Hverra manna ertu?
    Hver hefur ekki fengið þessa spurningu í æsku, þegar komið var í heimsókn til vina í fyrsta sinn. Ættfræði áhugi Íslendinga er mikill, en þó ekki einstakur. Flakkað verður um ættfræði kl. 1500, laugardag á Rás 1. Þátturinn var áður á dagskrá í nóvember 2013.
    Frá Íslandi til Brasilíu
    Oddur Helgason hefur ekki bara verið með nefið ofan í neftóbaksdósinni um æfina, hann er á kafi í ættfræði og rekur ættir Íslendinga til Brasilíu og víðar. Þorsteinn Jónsson sagnfræðingur réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur þegar hann ákvað að gefa út bókaröðina Reykjavík 1910, fólkið sem breytti bæ í borg, hann hefur þegar gefið út fjórar, en þær verða að minnsta kosti tíu, þegar upp verður staðið. Margir nýta sér ættfræðina líka við skrif á sögulegum skáldsögum, það gerði Eyrún Ingadóttir sagnfræðingur, þegar hún skrifaði bókina Ljósmóðirin, en hún hefur einnig haldið námskeið í ættfræðigrúski.
    50 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.