Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • Flakkað um Sigvalda Thordarson arkitekt síðari þáttur
    Í fylgd Péturs H Ármnnssonar arkitekts er farið að fjórum húsum Sigvalda Thordarsonar, Ægisíðu 80, Hjálmholt 12, blokk við Skaftahlíð og að lokum að Kleifarvegi 3. Pétur segir frá hönnun Sigvalda, hversu samfélagsmeðvitaður hann var og upplýstur um þarfir íbúanna. Farið í Heimsókn til Sigurður Ólafssonar og konu hans Margrétar Þorvaldsdóttur í Hjálmholti, en þau eru mjög hrifin af Sigvalda og hafa haldið vel í hans hönnun. Sömuleiðiis eru hjónin Freyja Birigsdóttir og Halldór Magnússon yfir sig ánægð á Kleifarvegi 3, og hafa fengið viðurkenningu fyrir uppgjör hússins.
    53 min
  • Flakkað um Sigvalda Thordarson arkitekt fyrri þáttur
    Fjallað um Sigvalda Thordarson arkitekt 1911 til 1964. Farið að raðhúsum í Skeiðarvogi, í Lindarhverfi i Kópavogi, þar sem hann byggði hús fyrir starfsmenn SÍS og í Hrauntungu í Kópavogi þar sem keðjuhús eftir hann eru, í fylgd dóttur hans Albínu Thordarson arkitekts. Sigvaldi var vinstri sinnaður og var m.a. rekin af Teiknistofu SÍS að því hann vildi ekki verða framsóknarmaður. Hann var afkastamikill á stuttri æfi.
    Farið í heimsókn til Loga Höskuldssonar myndlistarmanns sem hefur mikinn áhuga á Sigvalda og safnar myndum af öllum húsunum hans. Einnig er rifjuð um heimsókn á Vesturbrún 4, en það hús byggði Sigurður Thoroddsen verkfræðingur eftir hönnun Sigvalda.
    51 min
  • Flakkað um matarmenningu á Íslandi
    Umdjón: Lísa Pálsdóttir
    Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir
    Farið í heimsókn í nokkrar framandi, erlendar og íslenskar búðir í Reykjavík, en matarmenning hér hefur breyst mikið undanfarinn áratug, sérstaklega með fjölgun erlendra borgara hér á landi. Dominique Plédel Jónsson mat- og víngæðingur og formaður Slowfood samtakanna, er með í för.
    Rætt er við Josef Koca frá Tyrklandi sem á og rekur Istanbul market í Ármúla 42. Hann segir frá sér og sinni búð.
    Rætt er við Ámunda Óskar Johansen í Johansen Delí í Þórunnartúni 2. Þetta er veitingastaður og búð, sem býður uppá ferskt ofanáleg, hádegismat og margt fleira. Hann, faðir hans og afi reka fyrirtækið saman.
    Rætt er við Ólöfu Einarsdóttur sem á og rekur Krydd og tehúsið í Þverholti við Hlemm ásamt eiginmanni sínum Omra Abraham frá Ísrael. Öll heimsins krydd í boði ásamt íslenskri framleiðslu, þau flytja allt inn sjálf frá framleiðanda. Rætt er við Karen Emelíu Jónsdóttur hjá Matarbúri Kaju Óðinsgötu 8b. Hún selur einungis TÚN vottaðar lífrænt ræktaðar vörur, bæði ferkst og þurrkað og fyrsta íslenska lífrænt ræktað pasta.
    Rætt er við Þórarinn Jónsson bónda á Hálsi í Kjós sem rekur Matarbúrið á Granda. Þar verkar hann kjötið af býlinu og er jafnframt í samstarfi við aðra bændur með sama markmið, þ.e. rekjanlegar vörur.
    Umsjón: Lísa Pálsdóttir.
    52 min
  • Flakkað um miðborgina með Degi B. Eggertssyni, seinni þáttur.
    Gengið með Degi B. Eggertssyni borgarstjóra á Hverfisgötu, upp Vatnsstíg og niður Laugaveg að Lækjargötu. Rætt er um framkvæmdir, hans sýn á borgina og hvernig yfirvöld bregðast við þróun og brotum á reglum og fl. Farið er í heimsókn að Hverfisgötu 69 þar sem HIV Ísland er til húsa og rætt við Einar Þór Jónsson formann samtakanna. Einnig er farið í heimsókn til Marðar Árnasonar íslenskufræðings og Lindu Vilhjálmsdóttur skálds að Laugavegi 49. Þar hafa þau búið frá 1989 en eru ekki alveg sátt við þróun í miðborginni, hvorki blokkarbyggingar við Skúlagötu né túrisma.
    51 min
  • Flakkað um miðborgina, fyrri þáttur
    Fyrri þáttur þar sem Lísa Pálsdóttir flakkar með Degi B. Eggertssyni borgarstjóra um miðborgina. Einnig er rætt við Ottó Tynes, íbúa við Laugaveg og Guðbjörgu Hjálmarsdóttur í versluninni Sigurboganum á Laugavegi.
    51 min
  • Flakkað um Kársnes í Kópavogi síðari þáttur
    Á Kársnesi úir og grúir af alls konar húsum, sum eru ekkert sérlega falleg, en sóma sér vel í margbreytileikanum. Flakkað um Kársnes í Kópavogi öðru sinni laugardag 15.október kl. 1500 á Rás 1.Kann betur við kaos eftir umhugsun
    Kann betur við kaos segir Frímann Ingi Helgason kennari, eftir að hafa staðið og skoðað útilistaverk Gríms Marinós á Kársnesbrautinni, minnir svolítið á hrafnslaup, segir Frímann, en þar með er hann líka sáttari við sundurleiti byggðarinnar vestast á Kársnesinu.
    Spot on Kársnes
    Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt segist vona að hún og tveir félagar hennar í samkeppni um nýtt deiliskipulag Kársnessins að þau fái að taka þátt í áframhaldandi vinnu við nesið. Vissulega er skipulagið óvenjulegt með göngubrúm yfir í Nauthólsvík og yfir á Álftanes, en hún vonar að yfirvöld í Kópavogi hafi þor að framfylgja skipulaginu, sem er með áherslu á blandaða byggð atvinnu- og íbúðarhúsnæðis.
    Ekkert malbik og fáir með síma
    Þegar Þóra Elfa Björnsson setjari og húsfreyja flutti í Skólagerði á Kársnesi fyrir 50 árum, fengu alls ekki allir síma, línurnar lágu ekki á lausu fyrir hvern sem var. Barnavagninn var dreginn í rauðamölinni útí búð, þar sem kaupmaðurinn reyndi að gera öllum í hverfinu til hæfis. Þóra og hennar maður byggðu parhús og það tók þrjú ár, á meðan leigðu þau í Vallargerði, og bjuggu síðan í húsinu um langt skeið með máluð gólf og allt gardínulaust. Húsið kostaði 110 þúsund og 10 árum síðar kostuðu nýir skápar í húsið 110 þúsund.
    49 min
  • Flakkað um Kársnes í Kópavogi fyrri þáttur
    Gengið norður með Kársnesinu í Kópavogi, fjallað um nýtt deiliskipulag, sögu og fólk sem þarna hefur búið í fylgd Frímanns Inga Helgasonar kennara, Kópavogsbúa og meðlim í Sögufélagi Kópavogs. Einnig er rætt við Dagnýju Bjarnadóttur landslagsarkitekt en hún ásamt Anders Egebjerg Trep landslagsarkitekts og Gunnlaugi Johnsson arkitekts voru með vinningstillögu um nýtt deiliskipulag á Kársnesinu, þar sem áhersla er lögð á endurnýtingu bygginga og blöndun atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Einnig er farið í heimsókn til Bjarna Sigurbjörnssonar myndlistarmanns sem innréttaði íbúð og vinnustofu í bílasmiðju föður síns, rætt um breytingar, skipulag og bernskuna á svæðinu.
    50 min
  • Flakkað um Gamla Sjónvarpshúsið og Rúv í Efstaleiti
    Bogi Ágústsson fréttamaður fær ekkert nostalgíukast við að heimsækja gamla vinnustaðinn að Laugavegi 176 farið í heimsókn í húsið sem Saga film hefur haft til umráða um tíma, en er að flytja úr. Gengið um hæðirnar og rifjað upp, síðan farið í gamla stúdíóið sem Stöð 2 hefur nú til umráða.
    Rætt við Vilhjálm Hjálmarsson arkitekt að Útvarpshúsinu Efstaleiti 1 gengið að utan og niður að stúdíó 9, rætt um hugmynd, útlit, tækniútfæslu og fl. Við Vilhjálmf í beinni útsendingu.
    Sýning í tilefni af 50 ára afmæli Sjónvarpsins skoðuð í fylgd sýningarstjórnans Björns G. Björnssonar leikmyndahöfundar. Nokkrir hlutir plokkaðir út og rætt sérstaklega um.
    47 min
  • Flakkað um Marshallhúsið og Marshall hjálpina síðari þáttur
    Einar Benediktsson fyrrverandi sendiherra segir frá afstöðu sinni til Marshall hjálparinnar, sem hann segir hafa breytt öllu. Hann segir frá skömmtun og höftun fyrri tíma og fl.
    Farið í heimsókn í Gallerý i8 og rætt við Börk Arnarson umboðsmann Ólafs Elíassonar listamanns - hann segir frá Ólafi, starfinu í Gallerínu og fl.
    Rætt við Ásmund Hrafn Sturluson arkitekt hjá Kurt og Pí og hönnuð breytinga Marshall hússins, rætt um hugarfarsbreytingu vegna nýtingar gamalla húsa, hann lýsir húsinu og hvað og hvernig það kemur til með að nýtast þeim aðilum sem þarna munu starfa.
    Rætt við Ingibjörgu Sigurjónsdóttur listakonu og meðlim í Kling og Bang, sem hefur verið húsnæðislaust um tíma. Hún segir þetta stórt skref en afar spennandi og þau hlakka til að flytja með starfsemina í húsið.
    52 min
  • Flakkað um Marshallhúsið og Marshallhjálpina fyrri þáttur
    Farið í heimsókn í Marshallhúsið á Granda í fylgd Ásmundar Hrafns Sturlusonar arkitekts, en hann og félagi hans Steinþór Kári Kárson arkitekt hjá Kurt og Pí eiga veg og vanda að uppgjöri hússins, sem að hluta til var byggt fyrir Marshallaðstoðina. Fjallað um húsið og væntanlega listamiðstöð sem verður opnuð eftir áramót.
    Heyrist í Benjamín Eiríkssyni fyrrverandi bankastjóra Framkvæmdabankans, þar sem hann tjáði sig um ágæti aðstoðarinnar.
    Farið í heimsókn í Nýlistasafnið (en það kemur í Marshallhúsið) sem er í Völvufelli og rætt við Þorgerði Ólafsdóttur safnstjóra, um væntanlega flutninga og framtíðarsýn.
    Rætt við Helga Gunnar Þorkelsson fyrrum starfsmann Fiski- og Síldarbræðslunnar, sem var staðsett í Marshallhúsinu en hét Faxi. Hann segir frá fyrri tímum og þegar brætt var í húsinu.
    53 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.