Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • Flakk um almenningsgarða í Reykjavík 1. þáttur
    Bannað að ganga á grasinu.
    Hallargarðurinn í Reykjavík, Mæðragarðurinn í Lækjargötu og Alþingisgarðurinn heimsóttur í fylgd Braga Bergssonar sagnfræðings. Rætt um sögu þessara garða og vitnað í mastersritgerð Braga um garðana . Einnig er Fríkirkjuvegur 11 heimsóttur, Thor Jensen byggði húsið 1907 og Bjögólfur Thor Björgólfsson keypti það og verið að gera það veglega upp. Ásgeir Ásgeirsson arkitekt hjá Tark arkitektum hefur umsjón með verkinu.
    49 min
  • Fegurð og ljótleiki í borgarskipulagi
    Haldið áfram að fjalla um skipulagsmál. Rætt við Bjarna Reynarsson skipulags- og landfræðing um Flugvöllinn í Vatnsmýri og Landspítalalóðina, svæði sem menn eiga erfitt með að vera sammála um.
    Ólöf Örvarsdóttir sviðstjóri skipulagssviðs Reykjvíkur segir uppbyggingu í borginni vera afar spennandi og þétting byggðar skipti öllu máli þegar talað er um sjálfbærni, og að borgarlínan verði komin eftir 5 ár.
    Helga Bragadóttir arkitekt hjá Kanon arkitektum rekur framkvæmdaáætlun á Landspítalalóðinni, en hafist verður handa við fyrsta áfanga á næsta ári.
    Gunnar Ólafur Haraldsson hagfræðingur Gunnar Ólafur Haraldsson hagfræðingur færir fyrir því rök í bók Bjarna Reynarssonar, Reykjavík á tímamótum að í hagfræðilegum skilningi sé ljótleiki mengun af manna völdum. Útsýni til Esjunnar sé verðmætt og þá megi spyrja hver beri ábyrgð á skipulagi sem rýrir útsýni.
    51 min
  • Flakk um skipulagsmál - fyrri þáttur
    Fjallað um skipulagsmál í Reykjavík og borgarmyndun. Rætt við Bjarna Reynarsson skipulags- og landfræðing um bækur hans Borgir og borgarsamfélög frá 2014 og Reykjavík á tímamótum frá því í ár. Setið á Arnarhóli og horft yfir nýja byggð á Hafnartorgi, rætt um þéttingu, stefnu og strauma. Einnig gengið í nýuppgert Hafnarstræti með Bjarna.
    Rætt við Sigríði Björk Jónsdóttur byggingalistfræðing hjá Skipulagsstofnun Íslands um fyrirbærið Nordic built sem er samtarfsverkefni norðurlanda og styrkt af norrænu ráðherranefndinni. Rætt um Höfðabakka 9 og svæðiið þar í kring en íslensk skipulagstillaga um endurnýtingu bygginga og vistvæna byggð hlaut 1.verðlaun fyirr nokkrum árum fyirr þetta svæði.
    Gengið Fjölnisveg og Sjafnargötu í gamla bænum í fylgd Hrafnkells Á. Proppé skipulagsfræðings, rætt um borgarmyndun, gott og vont skipulag, og hvernig við eigum að fjölga þjóðinni svo við getum eignast aðra borg á landinu.
    51 min
  • Flakk Fjallað um Manfreð Vilhjálmsson arkitekt síðari þáttur
    Fjallað um Manfreð Vilhjálmsson arkitekt öðru sinni, hann hefur hannað ýmislegt annað en hús, bæði stór og smá, svo sem innréttingar, stóla, leikföng og fl. Þekktar byggingar Manfreðs eru margar, má þar nefna Skálholtsskóla og Kröflu. Einnig hefur hann hannað þekkt einbýlishús í Mávanesi og Blikanesi í Garðabæ, en sjálfur býr hann í tilraunahúsi eftir sjálfan sig á Álftanesi. Manfreð hannaði einnig tengibyggingu milli húsa í safni Ásmundar Sveinssonar sem þykir afar vel heppnuð, og hann hannaði einnig ferðamannaðastöðu á tjaldstæðinu í Laugarda. Rætt við Mannfreð í þættinum.
    Pétur Ármannsson arkitekt fylgir okkur að Ásmundarsafni og að tjaldstæðinu í Laugardal
    Farið heimsókn til Karenar Vilhjálmsdóttur kennarar og systur Manfreðs og manns hennar Þorvaldar Óskarssonar fyrrverandi skólastjóra, en þau búa að Hellulandi 20 í Fossvogi, í húsi eftir Manfreð, en Fossvogurinn er eina skipulagsverkefni Manfreðs, sem menn eru sammála um að hafi lukkast afar vel.
    51 min
  • Flakk um Manfreð Vilhjálmsson arkitekt - fyrri þáttur
    Fjallað um nokkrar byggingar Manfreðs Vilhjálmssonar arkitekt í tveimur þáttum í fylgd Péturs Ámannssonar byggingalistfræðings. Í þessum fyrri þætti er fjallað um Þjóðarbókhlöðuna, Nesti bensínstöði í Fossvogi sem var hans fyrsta verk og nú er búið að rífa, og einbýlishús hans sjálfs á Álftanesi og einbýlishús Kristjáns Davíðssonar í Barðavogi.
    Farið í heimsókn til Manfreðs að Brekkuskógi 10 á Álftanesi, húsið heitir Smiðshús en faðir hans var smiður. Húsið er tilraunahús. Rætt við Manfreð um námsárin, og fl.
    Farið heimsókn í Barðavog 13 í hús Kristjáns Davíðssonar listmálara, en nú býr í húsinu sonur hans Björn Davíð Kristjánsson þverflautuleikari. Húsið hefur verið tekið í gegn og Birni er umhugað um varðveislu þess.
    48 min
  • Flakkað um Hellusund og Bergstaðastræti - síðari þáttur í röð
    Gengið með Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi upp Hellusund og síðan út Bergstaðastræti að Spítalastíg. Rætt um íbúa, sögu og byggingar.
    Farið í heimsókn til Vilhjálms Knudsen í Red Rock Cinema (Volcano show) rætt um kvikmyndirnar og f.
    Farið í heimsókn í Hótel Holt og rætt við Geirlaugu Þorvaldsdóttur eiganda hótelsins sem var opnað af föpur hennar Þorvaldi Guðmundssyni í Síld og Fisk árið 1965. Saga hótelsins sögð og ekki síður mynlistarinnar sem prýðir alla veggi hótelsins.
    52 min
  • Flakkað um Grundarstíg í Reykjavík - fyrri þáttur
    Gengið frá horni Skálholtsstrígs og Bjargarstígs, suður Gundarstíg að Hellusundi í fylgd Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings, hann segir frá listamönnum, svo sem Ríkarði Jónssyni, rithöfundum eins og Einari Benediktssyni og Jóni Trausta sem allir bjuggu við Grundarstíg, hann segir frá byggingasögu og öðru fólki við götuna. Litið í heimsókn uppá fimmtu hæð í hús nr. 11 til Brynhildar Pálsdóttur vöruhönnuðar, en hún stendur í stórræðum við að gera upp íbúð sína.
    48 min
  • Flakkað um Ingólfsstræti og fleira - síðari þáttur
    Gengiið um Ingólfsstræti með Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi, og rætt um sögu fólks og bygginga, fyrsta kastið að Spítalastíg og farið í heimsókn í Lífspekifélagið sem áður hét Guðspekifélagið í húsi nr. 22.og rætt við Kristinn Ágúst Friðfinnsson forseta félagsins. Síðan gengið Grundarstíg, niður Skálholtsstíg að Fríkirkjuvegi 3, þar sem Aðalheiður Magnúsdóttir og hennar maður reka Fossa. Þau gerðu húsið upp frá grunni og er það afar vel gert.
    52 min
  • Flakkað um Ingólfsstræti - fyrri þáttur
    Gengið Ingólfsstræti frá Bankastræti að horni Spítalastígs. Rætt við Guðjón Friðriksson sagnfræðing um sögu húsa og fólks í götunni. Farið í heimsókn í kirkju Aðventista og rætt vð Eric Guðmundsson prest um söfnuðinn og starfið. EInnig farið í heimsókn til Þóru Andrésdóttur stöðumælavörð sem býr í bakhúsi í litlum botlanga makvið kirkjuna.
    50 min
  • Fjallað um Louisu Matthíasdóttur listmálara
    Farið á slóðir Louisu Matthíasdóttur listmálara, fyrst í Höfða sem var æskuheimili hennar í fylgd Jóns Proppé listheimspekings, hann segir frá æskuárum hennar, brennandi áhuga á myndlist, foreldrum, ferðalögum, námsárum erlendis og fl. síðan farið á Hverfisgötu í Reykjavík en þar eignaðist Louisa íbúð á fimmtu hæð, og naut þess að mála á svölunum, sem og dóttir hennar Temma Bell sem einnig er listmálari, rætt við hana um móður hennar og fl.
    50 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.