Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • Flakk um Ægisíðu, Sörlaskjól og Faxaskjól - fyrri þáttur
    Gengið frá Ægisíðu 123 og sagt frá horfnum byggingum og búðum, skipulagi, fólki o.fl. í fylgd Péturs Ármannsson byggingalistfræðings og arkitekts. Síðan farið í Sörlaskjól á göngustíg milli gatnanna, gengið í austurátt að Faxaskjóli. Litið í heimsókn á nýlegan veitingastað sem heitir Borðið og er við Ægisíðu 123, þar sem áður var m.a. verslunin Straumnes. Einnig farið í heimsókn til Guðbjargar Björgvinsdóttur ballettkennara sem býr í Sörlaskjóli 3, en hún og bróðir hennar unnu sjóflugvél í happdrætti SÍBS um miðjan fimmta áratuginn og eftir sölu á henni tókst föður hennar að klára að byggja húsið.
    48 min
  • Flakk um Landsbókasafn Háskólabókasafn 3. þáttur
    Farið í heimsókn í Landsbókasafn Háskólabókasafn í Þjóðarbókhlöðunni í þriðja og síðasta sinn. Að þessu sinni er rætt við nokkra notendur safnsins, m.a. Pétur Gunnarsson rithöfund, Ásu Kristínu Guðmundsdóttur sagnfræðinema og fl. Tónlistarsafn Íslands heimsótt en safnið flutti í Þjóðarbókhlöðuna í fyrra og rætt við Bjarka Sveinbjörnsson. Að lokum er farið í fylgd Ingibjargar Steinunnar Sverrisdóttur landsbókavarðar í Handritasafnið og rætt við Braga Þorgrím Ólafsson sagnfræðing um gersemar, handrit, einkasöfn og fl.
    52 min
  • Flakk um Landsbókasafn Háskólabókasafn 2. þáttur
    Farið í heimsókn í Landsbókasafn Háskólabókasafn öðru sinni, en safnið er 200 ára í ár. Ólafur Engilberts kynningarstjóri segir frá núverandi og væntanlegum sýningum vegna afmælisárs en um 14 sýningar eru nú vítt og breytt um safnið. Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður þekkir hvern krók og kima hússins, og fylgir okkur í kjallarann þar sem Helgi Braga ljósmyndari sér um að skanna inn nýtt og gamalt efni, m.a. timarit.is þar sem ótrúlega margt er að finna frá fyrri tíð. fyrir 25 árum var talið að míkrófilman væri framtíðar geymsluform allrar útgáfu og þetta var skoðað þegar Manfreið Vilhjálmsson arkitekt var að hanna húsið, en Anna Kristín Gunnarsdóttir kann á græjurnar. Kvennafrídagurinn 24. október 1975 er enn vinsæll, en Rakel Adolfsdóttir forstöðukona Kvennasögusafnsins svara bæði Íslendingum og útlendingum um sögu dagsins, en að uppistöðu er Kvennasögusafnið safneign Önnu Sigurðardóttir sem hóf söfnun um sögu íslenskra kvenna árið 1975.
    48 min
  • Flakk um Landsbókasafn Háskólabókasafn 1. þáttur
    Gengið um safnið í fylgd Ingibjargar Steinunnar Sverrisdóttur landsbókavarðar, en hún segir frá sögu safnsins sem er 200 ára í ár, og því ein elsta stofnun landsins. Farið er í heimsókn á ýmsar deildir safnsins, rætt við Helgu Kristínu Gunnarsdóttur um fræðitímarit og önnur tímarit og innkaup þeirra. LItið við hjá Bryndísi Vilbergsdóttur sem sér um tónlistarsöfnun, bæði prentað og hljóðritað efni. Rætt við Hallfríði Baldursdóttur sem sér um skilduskilin, en öllu útgefnu efni ber að skila til safnsins. Einnig rætt við Hildi Ploder Vigfúsdóttur nema í forvörslu og Hjört Hjörtþórsson bókbindara.
    50 min
  • Flakkað um Tómasarhaga síðari þáttur
    Gengið frá horni Tómasarhaga og Dunhaga að Hjarðarhaga. Rætt við Pétur Ármannsson arkitekt hjá Minjastofnun um byggingar, fólk sögu og fl. Farið í heimsókn til Bjarna Felinxsonar og konu hans Álfheiðar Gísladóttur sem búa að Tómasarhaga 39, en þar bjó Sigurður heitinn Pálsson skáld hjá móður sinni um tíma, Sigurður les úr Táningabók. Einnig farið í heimsókn til Sveins Bragasonar arkitekts og Unnar Styrkársdóttur líffræðings sem búa í húsi nr. 55 sem er eftir Hannes Kr. Davíðsson, en húsið var í algerri niðurníðslu þegar þau keyptu það rétt fyrir aldamót.
    1 hr
  • Flakk um Tómasarhaga fyrri þáttur
    Grímstaðaholtið var fyrst byggt á miðri 19 öld, um aldamótin 1900 voru tómthúsbýlin 20, og um 90. íbúar. Tómasarhagi er ein af götum holtsins. Pétur Ármannsson arkitekt segir frá byggingum, sögu og arkitektúr við Tómasarhaga, sem áður hét Garðavegur. Farið í heimsókn til Hilmars Þórs Björnssonar arktekts og konu hans Svanhildar Sigurðardóttur en þau byggðu hús við Tómasarhaga 7 árið 1980. Friðað hús Gísla Halldórssonar stendur við Tómasarhaga 31, þar býr Margrét Leifsdóttir arkitekt en hún er barnabarn Gísla.
    53 min
  • Flakk um Aðalstræti þriðji þáttur
    Rætt við Guðfinnu Eydal sálfræðing sem býr efst í Grjótagötunni og hefur gert frá 1980, húsið var nánast endurbyggt, skipt um glugga, kjallari dýpkaður og litir fundnir. Afar fallegt í dag og Guðfinna getur ekki hugsað sér að búa annars staðar.
    Gengið með Guðjóni Friðrikssyni niður Grjótagötu, sagt frá fólki, sögu og byggingum.
    Guðbrandur Benediktsson safnstjóri Borgarsögsafns gengur með okkur um Landnámssýninguna, en nýjar mannvistarleifar hafa fundinst undanfarin ár sem breyta öllu varðandi landnám Íslands, líklega var landið numið töluvert miklu fyrr, og ekki einu sinni víst að Ingólfur Arnarson hafi verið til.
    52 min
  • Flakkað um Aðalstræti annar þáttur
    Gengið í fylgd Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings frá Aðalstræti 7, upp Fishersund og Mjóstræti í Grjótaþorpinu. Rætt um sögu, verslanir, íbúa og fleira. Staldrð við í Gröndalshúsi, sem nýlega var flutt í Grjótaþorpið og rætt við Kristínu Viðarsdóttir annan tveggja staðarhaldara, um húsið, hlutverk og Benedikt Gröndal. Í Mjóstræti 6 er farið í heimsókn til Tómasar Andrésar Tómassonar kenndan við Tommaborgara, nú Búlluna.
    52 min
  • Flakk um Aðalstræti
    Umsjón: Lísa Pálsdóttir.
    Flakk um Aðalstræti. Fyrsti þáttur.
    Í fylgd Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings er farið í gamla Víkurkirkjugarð við Aðalstræti og gengið Fishersundi. Rætt um sögu götunnar, m.a. er sagt frá Innréttingunum, íbúum, verlunarsögu, en gatan er talin fyrsta gata í þéttbýli á Íslandi. Farið í heimsókn í Aðalstræti 10, sem er talið elsta hús borgarinnar fyrir utan Viðeyjarstofu. Rætt við Þorstein Bergsson hjá Minjavernd sem hafði umsjón með uppgjöri hússins, en nú stendur til að tengja nýja sýningu um þróun og sögu Rvk. við Landnámssýninguna í Aðalstræti 16.
    50 min
  • Flakkað um almenningsgarða - síðari þáttur
    Austurvöllur hefur verið og er aðal samkomustaður þjóðarinnar í Reykjavík. Þar tjölduðu menn fyrr á öldum bæjarferðum, þar var leikið á lúðra reglulega, það var skautað og hátíðahöld voru og eru á Austurvelli, jaft og mótmæli. Það tók tugi ára að koma Hljómskálagarðinum á laggirnar, enda er hann byggður á ruslahaugum og norðangjólan stóð gróðri fyrir þrifum, auk þess var þekking á ræktun af skornum skammti. Einar Helgason garðyrkjubóndi var einn af þeim fyrstu til að gera tilraunir með matjurta- og trjárækt, síðan er Einarsgarður kenndur við hann, garðurinn er neðan við Laufásveg. Bragi Bergsson sagnfræðingur segir frá. Umhverfissálfræðingurinn Páll Jakob Líndal segir græn svæði lífsnauðsynleg andlegru heilsu borgarbúa, og þessi grein skipulagsfræðinnar þyrfti stærra pláss í skipulagi.
    52 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.