Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • Flakk - Flakk um viðlagasjóðshúsin í Keilufelli
    Farið í Keilufell í Breiðholti en þar voru byggð nokkur viðlagasjóðshús á mettíma árið 1973 - 74. Í dag eru fáir frumbyggjar eftir í húsunum en hverfið orðið gróið og vinalegt. Farið í heimsóknir til þriggja íbúa í hverfinu, rætt um búsetu, gos og mögleika á slíkum húsum í dag, húsin í Keilufelli eru sænsk, innflutt einingahús.
    Rætt við Ernst Kettler og Ágústu Óskarsdóttur en þau hafa búið í Keilufelli frá 1974 og líkað vel. Þau lýsa stemmingu í upphafi og segja frá hvernig hverfið hefur breyst og fl.
    Rætt við Pétur Eggertz leikara og leiðsögumann en hann og Alda konan hans keyptu viðlagasjóðshús um síðustu aldamót.
    Rætt við Dagnýju Bjarnadóttur landslagsarkitekt sem býr í Keilufelli, rætt um möguleika á að byggja slík hús í dag til að leysa húsnæðisvandann, nálægð við náttúruna og f
    53 min
  • Flakk - Flakkað meðal spámanna
    Þátturinn var áður á dagsrkrá í febrúar 2009
    Hverju spáðu spámiðlar um hrunið fyrir um framvindu mála árið 2009?
    Fjórir spámenn heimsóttir og spurt um aðferðir þeirra við að spá, spurt um horfur í fjármálum, atvinnumálum og hvernig kosningar munu mögulega fara í vor hér á landi.
    Rætt við Ólaf Hraundal spámiðil hjá Sálarrannsóknarfélaginu, hann spáir því að kreppan taki styttri tíma en flestir álíta, að þetta fari að lagast í sumar eða haust. 8.33
    Rætt við Evu Hauksdóttur í Nornabúðinni og rýnt í hennar völvuspá fyrir árið og er hún ansi svartsýn á ástandið 10.47
    Rætt við Ingibjörgu Magnúsdóttur (Spákonunafnið er Yrsa sem hún gengur undir) Hún spáir í Tarot og segir þetta eiga eftir að lagast hægt og bítandi. 12.34
    Rætt við Bjarndísi Arnardóttur stjörnuspekisálfræðing og hún telur þessar miklu breytingar sem íslenska þjóðin er og þarf að ganga í gegnum taki allt að 5 ár.
    Þátturinn var áður á dagskrá 21. febrúar 2009
    53 min
  • Flakk - Flakk um Hlemm - Síðari þáttur
    Farið á Hlemm öðru sinni í fylgd Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings, rætt um fortíð, nútíð og framtíð. Hann segir frá búskap, spilavítinu Ásinum og fl.
    Rætt við Nokkra frumkvöðla í Setri skapandi greina sem er við Hlemm um samskiptanet, gin og tölfræði íþróttamanna.
    Rætt við Jón Gnarr sem hékk á Hlemmi
    Rætt við fólk á Hlemmi hvernig því lýst á breytingarnar og Mathöllina
    Rætt við Dagnýju Bjarnadóttur landslagsarkitekt og ein hönnuðu á nýju torgi á Hlemmi.
    57 min
  • Flakk - Flakk um Hlemm fyrri þáttur
    Flakkað um Hlemm og umhverfi í fylgd Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings og farið í heimsókn á Hlemmur Square og Rauða kross búðina. Einnig er fjallað um Strætó og rætt við Hlemmara en þeir unglingar sem héngu á Hlemmi í eina tíð fengu slíkt viðurnefni.
    Rætt við Jóhannes Svavar Rúnarsson framkvæmdastjóra Strætó bs um Mathöllina, biðstöðina og framtíðarpælingar.
    Rætt við Þröst Leó Gunnarsson leikara en hann er gestakokkur nú um stund á Hlemmur Square
    Rætt við 2 afgreiðslustúlkur í Rauða kross búðinni við Hlemm.
    Rætt við Birgittu Jónsdóttur fyrrverandi þingmann og Hlemmara um unglingsárin á Hlemmi.
    52 min
  • Flakk - Flakk um Pósthúsið í miðbænum
    Nú lokar pósthúsið í Pósthússtræti líklega um áramót og flyst þjónusta þess og pósthússins á Seltjarnarnesi í Bændahöllina vestur í bæ.
    Björn Ólafsson var með erindi í útvarpinu 1955 þar sem hann minntist 175 ára póstþjónustu á Íslandi, brot af erindinu flutt í þættinum.
    Rætt við Ingimund Sigurpálsson forstjóra Íslandspósts um lokun afgreiðslunnar í Pósthússtræti og minnkun þjónustu svo sem heillaskeyta, sem einnig verðu hætt.
    Rætt við 2 starfsmenn í pósthúsinu í Pósthússtræti.
    Rætt við Guðjón Friðriksson sagnfræðing um sögu pósthúsanna í Pósthússtræti.
    Rætt við Gísla Geir Harðarson formann félags frímerkjasafnara á Íslandi, um frímerkjasöfnun og ýmislegt varðandi söfnun, svo sem verðmæti og fl.
    50 min
  • Flakk - Flakkað um Eiðistorg á Seltjarnarnesi
    Í kjölfar Flakks um verslunarkjarna í Breiðholti verður farið á Eiðistorg á Seltjarnarnesi. Eins og flestir verslunarkjarnar í borginni hefur það líka farið í gegnum niðurlægingar tímabil, en nú er öflug starfsemi í byggingunni.
    Rætt við Sunnevu Hafsteinsdóttir framkvæmdatjóra Handverks og hönnunar, sem nýkomin á Eiðistorg, og er Seltirningur í húð og hár, hún segir frá uppbyggingu Eiðistorgs og frá Handverki og hönnun.
    Rætt við Maríu Þorgeirsdóttur framkvæmdastjóra Vivaldi sem er frumkvöðlasetur á þriðju hæð hússins, þar er fjöldi frumkvöðla að störfum,
    Rætt við þrjá frumkvöðla í Innovasion house um þeirra fyrirtæki
    Rætt við Bryndísi Ploder annan rekstaraðila Örnu kaffi- og ísbar sem er rekið í samstarfi við Örnu mjólkurbú á Ísafirði.
    Rætt við Guðmund Ara Sigurjónsson forst.mann æskulýðs- og tómstundamiðstöðvar í Nesinu og býr á Eiðistorgi.
    Rætt við Hafstein Egilsson eiganda Rauða ljónsins, sem er bar á Eiðistorgi.
    52 min
  • Flakk - Flakkkað um Fella- og Hólahverfi - síðari þáttur
    111 Reyjavík
    Það hafa margir tattúerað á sig póstnúmerið í Breiðholti. Þetta er svona vörmerki eða "statement" segir Spessi ljósmyndari, en nýlega kom út ljósmyndabókin 111. Allar myndirnar eru úr Breiðholtinu. Flakk um Hólahverfi kl. 1500 á laugardag á Rás 1.
    Hólagarðar er fjölbreyttur verslunarkjarni
    Ólíkt kjarnanum í Drafnarfelli er fjöldi verslana í Hólagörðum, hvers vegna er erfitt að segja. Þarna er að finna barinn Búálfinn, Bónus, Dominos, bakarí og síðast en ekki síst tvær framandi búðir eins og Fiska.is Asian market og Afro zone auk fleiri fyrirtækja. Breiðholtið er að hluta til fjölmenningarhverfi, og það skilar okkur m.a. fjölbreyttari verslunum með vörum sem ekki eru í boði alla jafna í öðrum verslunum.
    Verið að leggja lokahönd á nýtt hverfisskipulag
    Dr. Ævar Harðarson er verkefnastjóri yfir nýju hverfisskipulagi í eldri hverfum borgarinnar. Árbæjarhverfi klárast núna í haust og síðan Breiðholtið undir vor á næsta ári. Munurinn á hverfisskipulagi og deiliskipulagi felst aðallega í því að byggðin og svæðið er endurskoðað og leitað að möguleikum til að breyta húsnæði, stækka og þétta byggðina. "Það er ýmislegt hægt að gera" segir Ævar t.d. er hægt að endurskoða grænu svæðin og möguleika til útiræktunar fyrir íbúa og breytinga á húsnæði t.d. byggja ofan á blokk og setja lyftur, sem aftur gæti sparað hjúkrunarrými, því fólk gæti mögulega búið lengur heima. Stefnt er að því að einfalda leiðir borgaranna til að breyta og byggja.
    53 min
  • Flakk - Flakk um Fella- og Hólahverfi - fyrri þáttur
    Þetta er langhlaup
    Segir Óskar Dýrmundur Ólafsson hverfisstjóri í Breiðholti. Borgin hefur keypt upp nokkrar eignir í Drafnarfelli og hyggst reyna að vekja verslunarkjarnan aftur til lífs
    Brauðtertur í boði á sunnudögum
    Unnur Arna Sigurðurdóttir rekur Gamla kaffihúsið í Drafnarfelli og hefur gert það í 3 ár ásamt fjölskyldu. Hún heillaðist af lókalinu og sá hvernig hún gæti gert það kósý. Brauðtertur, heitir brauðréttir og rómakökur á kaffihlaðborði hafa slegið í gegn á sunnudögum. Annars er glæsilegur matseðill og staðurinn hefur vínveitngaleyfi.
    Hann heima, hún í tveimur vinnum
    Aron Choeipho var 8 ára gamall þegar hann kom ásamt móður sinni frá Thailandi. Hann býr í leiguíbúð í nýrri blokk við Eddufell ásamt kærustu og ungum syni. Hann er heimavinnandi og segir að í hans samfélagi sér fjölskyldan um ung börn að minnsta kosti að tveggja og hálfs aldri barnsins, Elías Nói er eins árs, svo Aron verður heimavinnandi áfram. Kærastan, sem kemur frá Filippseyjum nemur lyfjatækni, og vinnur við heimaþjónustu hjá Reykjavíkurborg frá kl. fjögur alla daga.
    Pólska búðin í Breiðholti er vel þekkt
    Pjotr Jakubic hefur rekið pólsku búðina í þó nokkur ár, og lét ekki deigan síga þó kviknað hafi í henni fyrir nokkru, því hann fékk mikla hvatningu frá íbúum hverfisins, ekki síst frá löndum sínum. Búðin er stór og glæsileg og býður uppá ýmislegt spennandi, sem ekki finnst í íslenskum matvöruverslunum.
    49 min
  • Flakk um listskreytingar á byggingum
    Farið í heimsókn í Ásmundarsal á Skólavörðuholti en húsið var nýlega opnað á ný eftir uppgjör og smávægilegar breytingar. Aðalheiður Magnúsdóttir er núverandi eigandi og hefur hug á að opna fyrir alls konar listsköpun í húsinu svo sem leiklist, tónlist og myndlist. Rætt við hana og Pétur Ármannsson arkitekt og byggingalistfræðing.
    Gengið að Austurbæjaskóla en lágmyndir eftir Ásmund Sveinsson skreyta húsið. Spjallað vítt og breytt við Pétur um listskreytingar á byggingum fyrr og nú.
    52 min
  • Flakk - Flakk um Miðstræti, Bókhlöðustíg og Laufásveg - síðari þáttur
    Gengið spöl um Miðstræti, síðan Bókhlöðustíg niður úr og inná Laufásveg að Miðbæjarskóla. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur segir frá bygginga- og íbúasögu, en frá mörgu er að segja í þessum eldri borgarhluta. Stöðlakot er steinbær frá því á 19 öld, Einar Ben, Jón Árnason, Þosteinn Ö, Stephensen, Anna Borg, Jón Leifs, allt þetta fólk og fleiri koma við sögu. Farið í heimsókn til Vilborgar Dagbjartsdóttur skáldkonu að Bókhlöðustíg 6 og rætt um lífið, skáldskapinn og fl. Farið í heimsókn til Vilhjálms Hjálmarssonar arkitekts og konu hans Borghildar Óskarsdóttur myndlistarkonu en þau búa við Laufásveg 3. Húsið var í slæmu standi í upphafi og þurfti margt að gera árið 1980, vesen með hundinn, því hundahald var bannað í borginni í þá daga. Nú er allt fínt og falleg sýning Borghildar á vegg framan við húsið sýnir íbúa fyrri tíma í húsinu.
    56 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.