Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • Flakk - Mannlíf milli húsa - fjallað um arkitektinn Jan Gehl
    Að þessu sinni er fjallað um bók Jan Gehls arkitekts Mannlíf milli húsi, sem kom út árið 1971, en er í fullu gildi í dag og hefur verið þýdd um allan heim. Bókin kom út á íslensku í nóvember á síðasta ári.
    Farið er í Háaleitishverfið í fylgd Önnu Maríu Bogadóttur arkitekts og útgefanda bókarinnar og rætt um skipulag og byggingastíl modernismans, blokkahverfi og bílisma. Lítið hugsað um gæði útirýmis og tengslamyndunar milli manna.
    Síðan er farið á Austurvöll þar sem auðvelt er að tengjast fólki, tala við ókunnuga og mynda ný tengst. En fræði Jan Gehls ganga helst út á það að skipuleggja borgir og útirými þannig að þetta veitist mannfólkinu auðveldara.
    Í stúdíó 12 eru síðan þau Sigurborg Ósk Haraldsdóttir landlagsarkitekt og formaður umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar og Páll Jakop Líndal umhverfissálfrðingur og ræða fræði Jan Gehls.
    49 min
  • 29122018 - Flakk um innbæinn á Akureyri - 3.þáttur
    Flakk - Flakk um innbæinn á Akureyri - 3. þáttur
    Haldið áfram að ganga Aðalstrætið í fylgd Harðar Gestssonar ljósmyndara og starfsmanns Minjasafns Akureyrar. Farið í heimsókn til Hallgríms Indriðasonar skógfræðings, en hann ásamt konu sinni býr í gömlu húsi, sem byggt hefur verið við, eitt af fyrstu húsunum í Innbænum sem gert var upp.
    Saft frá Jóni Sveinssyni Nonna í Nonnahúsi, en Haraldur Þór Egilsson safnstjóri Minjasafnsins rekur sögu hans, en hann var einungis 12 ára þegar hann fór af landi brott, og kom ekki aftur fyrr en mjög fullorðinn maður.
    Litið inná Iðnaðarsafnið á Akureyri og rætt við Jónu Friðriksdóttur um safnið og Iðnsögu Akureyrar, en um tíma voru yfir 70 framleiðslufyrirtæki á Akureyri.
    50 min
  • Flakk - Flakk um innbæinn á Akureyri - 2.þáttur
    Haldið áfram að ganga eftir Fjörunni á AKureyri. Hafnarstræti, Lækjargata og Aðalstræti í fylgd Harðar Gestssonar ljósmyndara og starfsmanns Minjasafnins á Akureyri.
    Farið í heimsókn til Jóhanns Heiðars Sigtryggssonar í Lækjargötu 2, en hann var bílstjóri hjá KEA alla sína tíð.
    Farið í heimsókn til Kristins Björnssonar og Eddu Friðgeirsdóttur sem hafa gert fallega upp gamalt hús eða fleiri en eitt sem amma Kristins átti. Þar er nostrað við allt, gúgglað og pantað héðan og það í heiminum svo allt gangi upp og líti vel út.
    47 min
  • Flakk - Flakkað um innbæinn á Akureyri
    Gengið frá Samkomuhúsinu á Akureyri og fremeftir Aðalstræti að Lækjargötu í fylgd Harðar Geirssonar sem starfar hjá Minjasafni Akureyrar. Hann segir frá fólki fyrr og nú sem býr eða bjó við götuna. Rekur sögu margra húsa, svo Samkomuhússins, Gamla Barnaskólans, sýslumannshússins og fl.
    Rætt við Kristínu Aðalsteinsdóttur fyrrverandi kennara og íbúa við Aðalstræti um bók hennar Inbær. Húsin og fólkið sem hún gaf út árið 2016.
    49 min
  • Flakk - Flakk um framtíðararkitektúr
    Í tilefni af 100 ára fullveldi Íslands, lítum við til framtíðar í byggingalist.
    Hvaða byggingarefni notum við í frímtíðinni, köngulóarvef, vikur, bamus eða nær gegnsætt timbur, eða kannski músteina gerða úr sígarettustubbum.
    Farið í heimsókn á arkitektastofuna Tvíhorf og rætt við Kötlu Maríudóttur og Gunnar Sigurðsson sem eru ungir arkitektar, og sjá fyrir sér endurnýtanleg hús og deilhagkerfi verði meira ráðandi. Einnig rætt við Birki Ingibjartsson sem nýlega hóf störf á Plús arkitektum, en hann segir afar óvistvænt að steypa upp hús á staðnum, í stað þess að steypa kubba og raða þeim saman, sem tekur líka skemmri tíma.
    Farið í heimsókn í Listaháskólann og rætt við tvo nema, þau Haukur Hafliði Nínuson og Júlía Brekkan nema á lokaári í arkitektúr hjá LHÍ. Sipulag og snjallborgin Reykjavík eru ofarlega í huga þeirra.
    52 min
  • Flakk - Fjallað um Anda Reykjavíkur - síðari þáttur
    Gengið frá horni Hafnarstræti gengið frá Aðalstræti, síðan Bankastræti, Laugvegur og endað á Hjartatorgi í fylgd Hjörleifs Stefánssonar arkitekts. Rætt um uppgjör og endurbyggingu útfrá bók hans Andi Reykjavíkur sem kom út árið 2008.
    Rætt við Önnu Kolbeinsdóttur sem bjó áður að Laugavegi 17 og stundaði Hjartagarðinn áður en þar var byggt. Talað um stemmningu og mannvæna staði.
    Farið í heimsókn til Friðriks Ómars Hjörleifssonar söngvara og tónleikahaldara en hann býr að Laugavegi 19, í nýuppgerðu húsi og horfir yfir Hjartatorgið.
    54 min
  • Flakk - Fjallað um anda Reykjavíkur - fyrri þáttur
    Fjallað um bókina Andi Reykjavíkur eftir Hjörleif Stefánsson arkitekt. Bókin kom út ári 2008 en nú rísa nýbyggingar í miðborginni hver á fætur annari. Tekst vel til eða erum við að drepa anda borgarinnar með háhýsum og byggingamagni.
    Gengið frá Víkurkirkjugarði við Aðalstræti að Vesturgötu og niður Norðurstíg. Rætt um eldri og yngri hús, skipulag, samfélagsábyrgð, græðgi og fleira.
    Farið í heimsókn til Höllu Daggar Önnudóttur myndlistarkonu og kennara en hú býr ásamt eiginmanni og 5 börnum að Norðurstíg 5, sem er á baklóð við stíginn. Nýlega var byggt nýtt hótel við götuna auk þess sem nokkur hús hafa verið gerð upp, svo sem Fiskhöllin og Exeterhúsið.
    50 min
  • Flakk - Flakk um Vatnsmýrina - síðari þáttur
    Farið í heimsókn í Vatnsmýrina öðru sinni. Guðjón Friðriksson rifjar upp minningar úr Tívolí. Einnig rætt við Ragnar Bjarnason sönvara um Vetrargarðinn sem var skemmtistaður sem tvennar sögur fara af, Raggi Bjarna spilaði á trommur þar með hljómsveit, hann var sem sagt ekki byrjaður að syngja.
    Flugsögufélag Íslands hefur aðstöðu í einu flugskýlinu í Vatnsmýri, þar hittast menn og spjalla, smiða og gera upp flugvélar, þeir Jón Karl Snorrason fyrrverandi flugstjóri og Baldur Sveinsson fyrrverandi kennari eru báðir félagar, og vilja alls ekki flugvöllinn burt.
    Rætt við Árna Gunnarsson framkvæmdastjóra Air Iceland Connect um slæma aðtöðu flugfélagsins, og deilur sem hafa líklega staðið í vegi fyrir uppbyggingu, en sömu spurningar voru uppi á 1946 og i dag um staðsetningu vallarins.
    50 min
  • Flakk - Flakk um Vatnsmýrina - fyrri þáttur
    Farið í heimsókn í gamla flugturninn á Reykjavíkurflugvelli en hann er friðaður í fylgd Friðþórs Eydal hjá Isavia, turninn er illa farinn og ekki hefur verið ákveðið hvað þar verður eða hvenær. Saga hans rakin og sagt frá flugstrfssemi á vellinum.
    Rætt við Guðjón Friðriksson sagnfræðing um Pólana svokölluðu sem var húsnæði byggt fyrir fátækt fólk á millistríðs árunum, um gullgröft í Öskjuhlíðinni, stórar hugmyndir um íþróttaleikvang Reykjavíkur og fl.
    Rætt við Helga Mána Sigurðsson sagnfræðing um stríðsminjar í Nauthólsvík (viðtal áður í Flakki 2010)
    53 min
  • Flakk - Flakk um braggann í Nauthólsvík
    Farið í heimsókn í Braggann umdeilda í Nauthólsvík. Viðtal við Guðnýju Gerði Gunnarsdóttur endurtekið frá 2010, þegar bragginn var í algerri niðurníðslu, rætt um möguleika á stríðsminjasafni og uppgjöri á bragganum.
    Heimsókn í Braggann eins og hann lítur út í dag með Páli V. Bjarnasyni arkitekt, húsin skoðuð og rætt um hvernig hefur til tekist.
    Daði Agnarsson er rekstrarstjóri Braggans en þar er Stúdentakjallari Háskólans í Reykjavík, auk annara rýma sem ætluð eru fyrir nemendur og starfsfólk HR. Rætt um kjallarann og útivistarsvæðið.
    Rætt við Pétur Ármannsson byggingalistfræðing og sérfræðing hjá Minjastofnun Íslands um lög og reglur varðandi friðun húsa.
    50 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.