Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • 30032019 - Flakk - Flakkað um Naustreit
    Bæði nýbyggingar og endurbyggingar standa nú á svokölluðum Naustreit vestur í bæ. Þarna er mikil saga útgerðar og alls konar iðnaðar fyrra tíma í Reykjavík. Nú er ristið þarna Hótel Exeter og þangað ætlum við í dag. Sigurður Halldórsson arkitekt hjá Glámu Kím segir okkur frá uppbyggingu á reitnum, endurbyggingu Exeter hússins sem var rifið árið 2016, og uppgjöri á Fiskhöllinni á horni Norðurstígs og Tryggvagötu. Inngarðar eru á lóðinni milli Vesturgötu og Tryggvagöru sem eru öllum opnir, og torg framan við veitingastaðina á jarðhæð hótelsins við Tryggvagötu. Hvort tekist hafi vel til ræða Edda Ívarsdóttir borgarhönnuður hjá Skipulagssviði borgarinnar og Trausti Valsson arkitekt og skipulagsfræðingur.
    49 min
  • 23032019 - Flakk um Brynjureit
    Þingvangur hefur staðið fyrir uppbyggingu á Hljómalindarreit og Brynjureit undanfarin árin. Hljómlindarreitur er klár með uppgerðum húsum og nýbyggingum, Hótel Canopy tekur stóran hluta af reitnum, en einnig íbúðir og þjónusturými, flestum finnst hafa vel til tekist, en torgið kannski ekki farið að virka. Síðan var hafist handa við Brynjureit, en þar er aðallega verið að byggja litlar íbúðir. Þakgarðar hafa ekki tíðkast hér á landi, en inná Brynjureitnum er verið að byggja nokkuð nýstárlegar íbúðir og þar verða þakgarðar og nýr göngustígur milli Laugavegar og Hverfisgötu sem enn sem komið er hefur fengið nafnið Kasthúsastígur. Við eftirgrennslan hjá Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi komst ég að því að þarna munu hafa verið 4 - 6 torfbæir sem voru kallaðir kasthús, en Guðjón var ekki viss hvaðan nafnið kemur. Við ætlum að bregða okkur í heimsókn á byggingasvæðið, sem er komið nokkuð langt arkitektarnir Guðmundur Gunnarsson frá Urban og Guðrún Fanney Sigurðardóttir frá Akstúdíó fylgja okkur þangað og hér í stúdíói eru Kristján Sveinlaugsson fjármála- og mannauðsstjóri Þingvangs og Magnús Skúlason arkitekt.
    51 min
  • Flakk - Flakk um nýjan miðbæ í Mosfellsbæ
    Það er verið að byggja nýjan miðbæ í Mosfellsbæ, en er það hægt? Hvernig fer maður að því að búa til nýjan miðbæ. Það eru ýmsir sem koma að hönnun svæðisins sem er ekki ýkja stórt, og er ofan við þann verslunarkjarna sem þegar er fyrir hendi. Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu gerði deiliskipulag að svæðinu árið 2010, síðan hefur því verið breytt að hluta og þrjár stofur koma að þessum breytingum, en það eru Ólafur Axelsson hjá VA arkitektum, Oddur Víðisson hjá DAP og Páll Gunnlaugsson hjá Ask.  Mosfellsbær fékk kaupstaðarréttindi árið 1987, í janúar 2018 voru íbúar rúmlega 10.500 en eins og í öðrum sveitafélögum hér á höfuðborgarsvæðinu stækkar bærinn og það vantar húsnæði, því verða töluvert margar misstórar íbúðir í nýja miðbænum. Tekið er smá rölt um svæðið með Ólafi Axelssyni arkitekt hjá VA arkitektum, og í stúdíói sitja svo Haraldur Sverrisson bæjarstjóri og Bjarki Bjarnason forseti bæjarstjórnar en hann er einn höfunda um sögu Mosfellsbæjar.
    49 min
  • Flakk - Flakk um Kvosarskipulagið frá 1986
    Unga fólkið sem er að koma undir sig fótunum í dag, finna starfsferilinn, eignast heimili og eiga börn muna ekki eftir Ráðhúslausri Reykjavík, að ekki var hægt að ganga í kringum Tjörnina, muna ekki Hallærisplanið, Fjalarköttinn og Grjótaþorp í niðurníðslu. Þau muna ekki bílastæði og akstur í kring um Austurvöll. Með deiliskipulaginu árið 1986, breyttist margt í Kvosinni í Reykjavík og í dag finnst fólki þetta alltaf hafa verið svona. Guðni Pálsson og Dagný Helgadóttir arkitektar unnu þetta skipulag á sínum tíma. Í ljósi breytinga í borginni í dag ætlum við að rýna aðeins í þetta skipulag og skoða hverju var breytt í gamla bænum og hverju var hent úr þessu skipulagi, því eins og alltaf gengur ekki allt upp. Hér í stúdíó sitja Hilmar Þór Björnsson og Páll Hjaltason arkitektar en við skulum byrja með Pétri Ármannssyni arkitekt í Krikjuhvoli í Reykjavík.
    Gengið með Pétri Ármannssyni frá Dómkirkjunni inní Skólabrú, yfir Austurvöll að Ingólfstorgi og Austurstræti og rætt um hvað breyttist í Kvosinni við þetta nýja skipulag. Rætt áfram við þá Hilmar Þór Björnsson og Pál Hjaltson arkiteka um Kvosarskipulagið og framtíð Kvosarinnar.
    50 min
  • Flakk - Flakk um Barónsreit
    Bakvið gamla Landsbankann að Laugavegi 77 hafa nú risið nýjar 5 hæða byggingar við Hverfisgötu og reiturinn þéttur uppað Laugavegi, einnig er búið að færa Laugaveg 73 inná reitinn og til verður knippi gamalla húsa við Vitastíg. Norðan megin við Hverfisgötu er verið að byggja stóra byggingu með litlum íbúðum og niður Vitastíg og á Skúlagötu munu rísa enn fleiri íbúðarhús og einn 16 hæða turn í stað þriggja sem áætlað var. Rætt við Halldór Eiríksson arkitekt hjá T.ark arkitektum sem var einn þeirra sem deiliskipulagði þennan reit, gengið um og rætt um útlit og útkomu verkefnisins sem er þó engan vegin lokið. Einnig er rætt við Magneu GUðmundsdóttur arkitekt og fyrrverandi varaformann umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar og Snorra Frey Hilmarsson myndlistarmann og hönnuð um uppbyggingu í Reykjavík.
    48 min
  • Flakk - Fjallað um nýtt skipulag Vogabyggðar
    Fyrir nokkrum árum hófst mikil uppbygging í Reykjavík, enda aðkallandi þörf fyrir nýjar íbúðir. Fyrst í stað virtust þó byggingakranarnir aðeins vera að sinna hótelbyggingum en samkvæmt áætlunum voru fjölmargar íbúðir á teikniborðinu. Nú erum við að sjá nýju hverfin rísa eitt af öðru. Árið 2015 var hér í þættinum fjallað um fyrirhugaða byggð í Vogahverfi, það var rétt svo byrjað að deiliskipuleggja svæðið. Áherslur voru á blandaða byggð, en í hluta hverfisins hefur fólk haft fasta búsetu, þrátt fyrir að byggðin hafi verið skilgreind sem atvinnusvæði þegar það var skipulagt á sínum tíma. Nú árið 2019 er byrjað að byggja á svæðinu, eitt hús að rísa og búið að steypa þó nokkuð af plötum. Fáir hafa tjáð sig um þetta nýja hverfi, en margir hafa tjáð sig um væntanlegt útilistaverk í formi pálma í glerhólki. Við ætlum að beina augum okkar að svæðinu í þættinum í dag, og ræðum við Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur landslagsarkitekt, borgarfulltrúa og fromann skipulags- og samgönguráðs og Guðmund Odd Magnússon eða Godd prófessor við Listaháskóla Íslands, en byrjum í Vogahverfinu árið 2015 í fylgd Sigríðar Magnúsdóttur arkitekts. Einnig rætt við Sigríði á Teiknistofunni Tröð.
    48 min
  • Flakk - Fjallað um Guðjón Samúelsson arkitekt
    3. febrúar 1919 útskrifaðist Guðjón Samúelsson arkitekt frá Akademíunni í Kaupmannahöfn. Hann var fyrstur Íslendinga að ljúka háskólaprófi í arkitektúr eftir aldamótin þarsíðustu. Hann gerði hlé á námi sínu í fyrri heimstyrjöldinni, kom heim eftir brunann mikla 1915. Hann teiknar nokkur hús í Hafnarstræti og Austurstræti, hús sem mikið hefur verið breytt, en vöktu athygli á sínum tíma. Hann fer aftur utan og lýkur námi og kemur heim til Íslands árið 1919 og teiknar þá Eimskipafélagshúsið. Árið 1920 tekur hann við embætti Húsameistara ríkisins og starfaði sem slíkur til dauðadags 1950, stuttu eftir vígslu Þjóðleikhússins, en var ekki viðstaddur vegna veikinda, hann lést nokkrum dögum eftir vígsluna. Segja má að Guðjón hafi breytt Reykjavík, enda miðborgin rústir einar og hafði hann því hreint borð ef svo má segja. Reykjavíkurapótek rís, Hótel borg Landsímahúsið og endurbygging Landsbankans, byggingar sem setja mikinn svip á miðbæinn. Lykilbyggingar eins og Þjóðleikhúsið, Háskóli Íslands, Landspítalinn, Sundhöllinn og Hallgrímskirkja eru öll verk Guðjóns Samúelssonar. Pétur Ármannsson arkitekt skrifar bók um þennan sögufræga arkitekt Íslands sem kemur út á næsta ári, og segir hann frá verkum hans í þættinum.
    Guðjón var mjög umdeildur á sinni tíð, og oft voru skrifaðar rætnar greinar um verk hans í íslenskum dagblöðum.
    54 min
  • Flakk - Flakkað um Kringlureit
    Gengið frá Vinnumálstofnun við Kringluna (Gamla Morgunblaðshúsið) í fylgd Halldóru Bragadóttur arkitekts hjá Kanon arkitektum, en stofan hefur lokið rammaskipulagi um reitinn fyrir Fasteignafélagið Reiti og Reykjavíkurborg. Reitir er stærsti eigandi fasteigna og lóða á svæðinu. Rætt um framtíðarsýn, uppbyggingu íbúða og breytinga á reitnum.
    Í hljóðstofu eru mættir Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og Friðjón Sigurðsson famkvæmdastjóri þróunarsviðs Reita. Þeir ræða áætlanir, forvinnu og fleira varðandi uppbygginguna sem á eftir að taka þó nokkur ár, m.a. með hækkun götuhæðar samkvæmt 2. hæð Kringlunnar.
    49 min
  • Flakk - fjallað um skyndifriðun á Landsímareit
    Fjallað um skyndifriðun Minjarstofnunar á hótelbyggingu við Landsímareit. Lindarvatn er framkvæmdaaðili en friðunin stendur í 6 vikur eða þar til menntamálaráðherra samþykkir eða hafnar þessari ákvörðun.
    Víkurgarður heimsóttur með Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi - viðtal úr Flakki frá 6.1.2018 og í fylgd Hjörleifs Stefánssonar arkitekts í nóvember 2018.
    Í stúdíói er Magnús Skúlason arkitekt sem unnið hefur við húsafriðun á langri starfsævi og Jóhannes Stefánsson framkvæmdastjóri Lindarvatns, sem stendur fyrir byggingu hótelsins. Þeir ræða skyndifriðanir sem eru nánast aldrei framkvæmdar, skipulag og deilumál varðandi hótelið.
    49 min
  • Flakk - Flakkað um ný verslunarrými í miðborginni
    Gengið frá horni Frakkastígs og Laugavegar niður að Hverfisgötu, síðan vestur Hverfisgötu að Hafnartorgi. Gengið með Herði Ágústssyni verslunarmanni í Macland, rætt um öll þessi nýju þjónusturými, og nýjar íbúðir. Leiguverð og kaupverð á nýju húsnæði í miðbænum, og um möguleika sem allt þetta nýja húsnæði hefur uppá að bjóða.
    Í hljóðveri sitja síðan og ræða um breytingar og möguleika, þeir Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins en fasteignafélagið hefur eignast allar neðstu hæðir á Hafnartogi og Austurbakka, og telja þetta góða fjárfestingu, og Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi, sem telur að Laugavegurinn eigi eftir að þróast og breytast því reikna megi með að kaupmenn flytji sig úr óhentugu húsnæði við Laugaveg, á Hverfisgötuna að Hafnartorg.
    48 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.