Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • Flakk - Fjallað um Siguður Guðmundsson arkitekt (endurtekinn frá 2016
    Fjallað um Sigurð Guðmundsson arkitekt sem var uppi snemma á síðustu öld. Sigurður teiknaði nokkuð margar stórbyggingar í Reykjavík, svo sem Austubæjarskóla, Sjómannaskólann, Hafnarhúsið, Þjóðminjasafnið og fl. Einnig teiknaði hann Ásmundarsal á Skólavörðuholti og hús Ásgríms Jónssonar og Jóns Stefánssonar listmálara við Bergstaðastræti auk fleiri íbúðarhúsa. Pétur 'Armannson arkitekt segir frá ferli hans og farið í hús Jóns Stefánssonar listmálara við Bergstaðastræti og heilsað uppá Elsu Vestmann Stefánsdóttur en hún býr nú í húsinu, ásamt Birgi Sigurðssyni rithöfundi sem lést nýverið.
    51 min
  • 27072019 - Flakk - Flakk um Hlíðarendareit
    Nú er verið að byggja á Hlíðarenda við Valsvöllinn, á landi sem Íþróttafélagið Valur átti, einnig er búið að deiliskipuleggja í Skerjafirði, svo segja má að þegar sé verið að þrengja að flugvallarsvæðinu, þó menn séu alls ekki á eitt sáttir um flugvöllinn. Hlíðarendi er heimsóttur í þættinum í fylgd Kristjáns Ásgeirssonar arkitekts hjá Alark en stofan deiliskipulagði reitin og hefur þróað og unnið skipulagið allt frá 2001, einnig hannar stofan 2 hús á reitnum.
    Í Efstaleiti sitja þau Sigurborg Ósk Haraldsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar og Bjarni Reynarsson skipulagsfræðingur og ræða umrætt skipulag, um þéttingu byggðar og samgöngumál.
    52 min
  • 20072019 - Flakk - Fjallað um nýtt timburstórhýsi Hafró í Hafnarfirði
    Nú um stundir rís heljarinnar timburhús í Hafnarfirði, þangað mun Hafrannsóknarstofnun flytja innan tíðar, þetta er fyrsta timburstórhýsið á landinu og við ætlum að forvitnast nánar um það og timburhús almennt.
    Rætt við Jón Rúnar Halldórsson sem er framkvæmdarstjóri Fornubúða Fasteignafélags hf. og Lúððvík Geirsson hafnarstjóra Hafnarfjarðarhafnar framkævmdirnar.
    Sjálft húsið er skoðað í fylgd Sveins Þórarinssonar arkitekts hjá Batteríinu, en stofan sá um hönnun hússins auk deiliskipulags svæðisins.
    48 min
  • 13072019 - FLakk - Að búa til ofurlítinn skemmtireit - flakk um almenn
    Hið íslenska bókmenntafélag gaf út bókina Að búa til ofurlítinn skemtigarð eftir Einar E. Sæmundsen garðyrkjufræðing og landslagsarkitekt á síðasta ári.
    Fjallað er stuttlega um bókina, sagt frá sögu garðmenningar og þekktum görðum á Íslandi. Í fylgd Einars E Sæmundsens er farið í Hellisgerði í Hafnarfirði, Klambratún við Kjarvalsstaði, Hljómskálagarðinn, Bjarkargötu megin, Alþingisgarðinn og loks á Austurvöll. Sagt frá sögu og tilurð þessara útivistarsvæða ætlaða almenningi.
    49 min
  • 06072019 - FLakk - FLakk um Efstaleiti
    Helgi Mar Hallgrímsson arkitekt hjá Arkþingi er einn þeirra hönnuða sem koma að hönnun við Efstaleiti, auk Arkþings sem sá um deiliskipulagið, kom Tark og Hornsteinar að verkinu. Helgi Mar segir frá hugmyndum að breyttri randbyggð, með því að brjóta upp húsin og fá útúr því þaksvalir á sumar íbúðir og auk þess fleiri glugga og meiri birtu.
    Hilmar Ágústsson verktaki er verktaki hjá Skugga en Skuggi sér um uppbyggingu á reitnum og hafa þeir þróað og verið með alveg frá byrjun, um er að ræða yfir 300 íbúðir á þessum reitum.
    Sigurborg Ósk Haraldsdóttir formaður skipulags- og samgönguráðs borgarinnar segir áherslu á að þétta byggðina og fá aukin mannlíf og græn svæði í borgina, þeim er alls ekki að fækka með þéttingu byggðar. Með skilyrtu kaffihúsi/veitingastaðar á reitinn sé einmitt verið að auka mannlíf og fjölbreytileika í þessu nýja hverfi.
    48 min
  • 11052019 - Flakk - Flakk um Hafnartorg
    Uppbyggingin í miðborg Reykjavíkur hefur vakið athygli flestra og flestir hafa ýmsar skoðanir á útliti og skipulagi, hvað er verið að byggja, hvers konar íbúðir og hver á að reka verslanir í öllum þeim verslunarrýmum sem bæstst hafa við. Fyrir 100 árum síðan gekk hér á land ungur arkitekt, sá fyrsti sem var með háskólapróf í arkitektúr. Guðjón Samúelsson setti svo sannarlega svip sinn á borgina með mörgum lykilbyggingum, svo sem Þjóðleikhúsinu, Hallgrímskirkju, Háskóla Íslands og fleirum. En hann var líka sá fyrsti sem hugaði að skipulagi í borginni og uppbygging kvosarinnar með Reykjavíkurapóteki, Hótel Borg og fleiri byggingum varð afar umdeild og margt og mikið skrifað í blöð um Guðjón, með og á móti.
    Nú 100 árum síðar er svipur borgarinnar að breytast og einn þeirra arkitekta sem er hvað mest umdeildur nú um stundir er Pálmar Kristmundsson sem er höfundur Turnsins og Foss hótels í Borgartúni, en hann er einnig höfundur Hafnartorgs, mjög áberandi staður vestan Arnarhóls. Nú er Hafnartorgið að verða fullbyggt, með íbúðum, skrifstofurými og fjölda verslunarrýma. Pálmar hefur verið gagnrýndur fyrir þessa hönnun, byggningmagn og útlit, kannski ekki mikið skrifað í blöð en á samfélagsmiðlum spretta upp umræður hvað eftir annað. Við ætlum að fjalla um Hafnartorg í þættinum í dag. Gestir eru Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og fyrrverandi formaður umhverfisráðs, þegar ákveðið var að byggja reitinn og Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt og fræðimaður. Hafnartorg er heimsótt í fylgd Pálmars Kristmundssonar arkitekts.
    51 min
  • 27042019 - Flakk - Flakk um Bjag Leiguíbúðafélag
    Fyrstu verkamannabústaðir hér á landi risu við Hringbraut í Reykjavík uppúr 1930. Og nú níutíu árum síðar minnir sagan á sig því fyrsta skóflustungan að hundrað fimmtíu og fimm leiguíbúðum við Móaveg í Grafarvogi var tekin í febrúar í fyrra. Bjarg Íbúðarfélag, sem VR, Alþýðusambandið og BSRB stofnuðu, byggir íbúðirnar. Íbúðirnar eru ætlaðar fólki í lægri launaþrepum til langtímaleigu og verða leigðar til langs tíma.
    Stofnað hefur verið Leiguíbúðafélagið Bjarg, sem er óhagnaðardrifið leigufélag, ASÍ, VR og BSRB eru stofnfélagar. Innan Bjargs eru einungis leiguíbúðir og nú er að sjá hvort leigan verði þannig að þeir verst settu eigi möguleika á að leigja hjá Bjargi. Það hefur gengið vel að byggja í Grafarvoginum og þar eru menn á undan áætlun og búast við að afhenda fyrstu íbúðirnar í júní. Jafnframt er verið að byggja víðar.
    Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR situr í stjórn félagsins og Björn Traustason er framkvæmdastjóri, rætt er við þá um hugmyndafræðina og fjármögnun. Einnig er farið í skoðunarferð í fylgd Sólveigar Berg Emilsdóttur akitekts hjá Yrki í Grafarvoginn, á Móaveg sem liggur við Spöngina, sem er stærsti verslunarkjarninn í Grafarvogi, en þar er verið að setja lokahönd á 155 íbúðir.
    54 min
  • Flakk - Fjallað um Laugaveg göngugötu
    Breyting Laugavegar í Reykjavík í göngugötu hefur verið umdeild allar götur síðan lokanir hafa verið framkvæmdar á sumrin og stundum í desember. Kaupmenn eru ekki sáttir við lokun og yfirgnæfandi meirihluti þeirra hafa sett nafn sitt á undirskriftalista gegn lokun. Bent hefur verið á þann möguleika að leyfa umferð bíla, en forgangur gangandi og hjólandi hafður í fyrirrúmi.  Hins vegar eru gestir miðborgarinnar almennt ánægðir á góðviðrisdögum þegar Laugavegurinn er lokaður. Í flestum borgum finnast göngugötur, þrátt fyrir erfitt vetrarveður og fólk sættir sig við lokun með tíð og tíma, þetta tók mörg ár í Kaupmannhöfn á sínum tíma en Strikinu var breytt í áföngum og hófst 1962. Drotninggatan í Stokkhólmi er ansi löng göngugata og Karl Johan í Osló. Fólk man ekki eftir öðru í þessum borgum. Skólavörðustígur breytist einnig í göngugötu vegna legu sinnar, en þar er að finna þó nokkur bílastæði, en því er ekki að skipta á Laugavegi. Kaupmenn segja að Íslendingar séu hættir að versla í miðbænum og kenna gjarnan lokun um, en er það svo? Hvað veldur því að Reykvíkingar fara ekki lengur í miðbæinn til að versla? Við ætlum að ræða umdeilda lokun í dag við Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur formann umhverfis- og samgönguráðs borgarinnar og Bolla Ófeigsson gullsmið á Skólavörðustíg. En fyrst ætlum við bæinn í fylgd Hermanns Ólafssonar landslagsarkitekts, en hann var með í teymi arkitektastofunnar Arkís, sem vann samkeppni um breyttan Laugaveg fyrir nokkrum árum, en í henni var ekki gert ráð fyrir göngugötu
    53 min
  • 13042019 - Flakk - Flakk um Urriðaholt í Garðabæ
    Það hefur tekist misjafnlega að skipuleggja ný hverfi undanfarin ár. Grafarholt og Grafarvogur eru orðin nokkuð gróin, en ýmislegt við þau að athuga svona eftir á að hyggja. Nú rísa ný hverfi á höfuðborgarsvæðinu hvert á fætur öðru, sum hefðbundin en í öðrum er verið að þróa nýjar leiðir. Staðarandi er eftirsóttur, en er hægt að búa hann til, er staðarandi ekki fyrirbæri sem verður til með tíð og tíma. Í Urriðaholt í Garðabæ er ferið að gera ýmislegt nýtt í skipulagi. Skipulag Urriðaholts einkennist af nýrri hugsun. Unnið er frá grunni með sjálfbæra þróun, fjölbreytileika og virðingu fyrir umhverfi og samfélagi að leiðarljósi. Áhersla er lögð á gæði byggðarinnar og heilbrigt og aðlaðandi umhverfi. Nýjar leiðir hafa verið farnar til að ná því markmiði, svo sem með ákvæðum í skipulagi, landmótun, gatnahönnun og meðhöndlun ofanvatns. Við heimsækjum þetta nýja hverfi í Garðabæ í dag en nú þegar er flutt inn í mörg húsanna. Gestir þáttarins í dag eru Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar og Baldur Ó. Svavarsson arkitekt hjá Úti og inni, en hann hannaði m.a. skólann í hverfinu. En fyrst skoðum við hverfið með Agli Guðmundssyni arkitekt frá Arkís, en hann er einn höfunda deiliskipulags hverfisins.
    55 min
  • 06042019 - Flakk - Fjallað um Borgarlínu
    Sagt er að Höfuðborgarsvæðið sé jafnstórt og París, þ.e. 18 hverfi sjálfrar Parísar og þar búa yfir tvær milljónir manna en hér á höfuðborgarsvæðinu búa tvöhundruð og tutttugu þúsund manns. Það gefur auga leið að það er dýrara að reka samgöngukerfi hér á landi. Borgarlína er staðreynd, skrifað var undir viljayfirlýsingu ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í febrúar síðast liðnum. En hvernig kemur borgarlínan til með að verða og hvar mun hún aka. Í fyrsta áfanga er talað um 13 km leið frá Ártúni yfir Sæbraut, Suðurlandsbraut í miðbæinn og síðan að Háskóla Íslands, þaðan að BSÍ að Háskólanum í Reykjavík og yfir brú í Kársnes og Hamraborg í Kópavogi. Byggðar verða nýjar brýr yfir Elliðaár og yfir í Kópavogin, einungis ætlaðar strætó og hjólum. Síðan verður haldið áfram að þróa og byggja línuna m.a. í Mosfellsbæinn. Borgarlína kemur til með ganga í nýju hverfin sem er verið að byggja í stefnunni um þéttingu byggðar. Lilja Guðríður Karlsdóttir samgönguverkfræðingur og verkefnastjóri hjá Reykjavík segir frá verkefninu og Hrafnkell Proppé skipulagsfræðingur hjá Sambandi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Guðmundur Freyr Úlfarsson samgönguverkfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands ræða um flutningsgetu, eignarhald og framtíðarsýn. Reiknað er með að Borgarlína verði farin að keyra árið 2023.
    52 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.