Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • Flakk - Flakk um ný bænahús í Reykjavík
    Ásatrúarmenn byggja Hof í Öskjuhlíðinni, Magnús Jensson arkitekt er hönnuður hofsins. Allri steypuvinnu er lokið og vonast ásatrúarmenn til að geta sett þak yfir miðhluta hofsins fyrir næsta sumar. Stefnt er að því að reisa rétttrúnaðarkirkju við Mýrargötu, rússneskir arkitektar hanna bygginguna og verða byggingaaðilar að byrja á framkvæmdum á næsta ári. Hjálpræðisherinn er langt kominn með nýtt bænahús við Suðurlandsbraut, neðan við Mörkina. Sigríður Magnúsdóttir arkitekt og maður hennar Hans Olaf Andersen arkitekt hanna bygginguna sem er gríðarstór, þar verða vinnustofur, kaffistofa, verslun og svo auðvitað kirkja, þar sem herinn ætlar að halda sínar samkomur, en Hjálpræðisherinn á Íslandi á 125 ára afmæli á næsta ári. Svo ætlar Félag múslíma á Íslandi að byggja mosku hún verður við hlið húss Hjálpræðishersins, Húsinu má líkja við þúfu en það er kúpt og hringlaga. Hönnuður moskunnar er Gunnlaugur Stefán Baldursson arkitekt búsettur í Köln.
    49 min
  • Staða loftslagsmála á Íslandi og Taylor Swift
    Í áttunda þætti Hnotskurn verður farið yfir stöðu loftslagsmálanna á Íslandi í tilefni af borgarafundi Kastljóss um loftslagsmál sem fram fer í kvöld. Þá skoðum við hvers vegna bandarískir nýnasistar og hvítir þjóðernissinnar sjá poppstjörnunaTaylor Swift í dýrðarljóma.
    0 min
  • 16112019 - Flakk - Flakk um Kirkjusand
    Á Kirkjusandi er verið að byggja, á gömlu Strætólóðinni og í kringum Íslandsbanka, það er mikil saga á þessu svæði, en við plokkum aðeins úr skýrslu Borgarsögusafns og stiklum á stóru úr sögu svæðisins á síðustu öld.......
    Svæðið sem hér er fjallað um nær yfir hluta af því landi sem á öldum áður tilheyrði jörðunum Rauðará og Lauganesi. Samkvæmt landamerkjalýsingu frá árinu 1883 lágu merki á milli þessrar jarða eftir Fúlutjarnarlæk, frá sjó að upptökum hans við Ámundaborg. Saga svæðisins nær langt aftur í aldir, þarna sat biskup, fiskverkun og útgerð, Holdsveikraspítalinn var þarna en brann, herbraggar og herfangelsi, Strætó hafði sína starfstöð á lóðinni lengi vel, en nú er verið að byggja. Páll Gunnlaugsson arkitekt hjá Ask arkitektum deiliskipulagði svæðið ásamt öðrum á stofunni, auk þess eru þeir að hanna nokkur hús á lóðinni. Bjarg íbúðafélag og Brynja byggingafélag Öryrkjabandalagsins er að byggja íbúðir, þarna verða annars íbúðir og atvinnustarfsemi og mögulega hótel. Ljóst er að Íslandsbankahúsið verður rifið, það er talið algerlega ónýtt, samkvæmt Kjartani Smára Höskuldssyni framkvæmdastjóra Íslandssjóða, sem byggir á svæðinu, auk fleiri. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs er einnig gestur þáttarins.
    52 min
  • Menntasjóður námsmanna og boxbardagi Logan Paul og KSI
    Á Alþingi er nú til umfjöllunar frumvarp um Menntasjóð námsmanna sem ætlað er að koma í stað LÍN, við skoðum frumvarpið nánar og ræðum við Sigrúnu Jónsdóttur, forseta Landsamtaka íslenskra stúdenta. Svo skoðum við einar stærstu YouTube erjur sögunnar milli Logan Paul og KSI sem börðust í hnefaleikahringnum í annað sinn um helgina.
    0 min
  • Nauðungarhjónabönd og saga hrekkjavökunnar.
    Í Hnotskurn í dag er fjallað annars vegar um sögu Hrekkjavökunnar, tengsl hennar við Ísland og gamlar hefðir. Í seinni hluta þáttarins er fjallað um barnahjónabönd á heimsvísu en þó sérstaklega í Malaví. Tilefni umfjöllunarinnar er Landssöfnun UN Women sem fer fram á RÚV 1. nóvember.
    0 min
  • 26102019 - Flakk - Flakk um Oddeyri á Akureyri
    Fram yfir 1870 var lítill grundvöllur til byggðar á Oddeyri. Þar var enga vinnu að hafa og langt að sækja í kaupstaðinn (gömlu Akureyrina) enda kom vegur milli bæjarhlutanna ekki fyrr en um 1892 og stundum ófært þangað sökum illviðra og snjóa. Það var ekki fyrr en íslenskt verslunarfélag, Gránufélagið, tók að hreiðra um sig á eyrinni að alvöru uppbygging Oddeyrar sem eins af hverfum Akureyrarkaupstaðar hófst. Ekkert skipulag var til yfir Akureyri fyrr en árið 1927 en þá var fyrsta aðalskipulag bæjarins samþykkt og staðfest en aðalhöfundar þess voru Guðjón Samúelson akritekt og húsameistari og Guðmundur Hannesson læknir.
    Nýtt aðalskipulag var samþykkt fyrir Akureyri í fyrra, nú þarf mögulega að breyta því ef hafist verður handa við uppbyggingu á Oddeyri með 4 byggingum, frá 8 uppí 11 hæðir. Verkefnið er afar umdeilt, haldin var borgarafundur á Akureyri þar sem það var kynnt og sitt sýndist hverjum. Orri Árnason arkitekt hjá Zeppelin arkitektum kynnti verkefnið en auk þess er rætt við Orra Kristjánsson varaformann skipulagsráðs Akureyrar og Jón Hjaltason sagnfræðing.
    50 min
  • Áróðurssíður á Facebook og fíaskóið í höllinni
    Í þessum fjórða þætti Hnotskurnar fjöllum við um vandræðin í bresku konungshöllinni en breskir fjölmiðlar hafa verið sérstaklega óvægnir í garð nýju hertogaynjunnar Meghan Markle. Þá segjum við einnig frá íslenskum nafnlausum áróðurssíðum á samfélagsmiðlinum Facebook og veltum upp áleitnum spurningum um hvort þeim takist ætlunarverk sitt.
    0 min
  • 19102019 - Flakk - Flakk um Lækjargötu í Reykjavík
    Við heimsækjum elsta hluta Reykjavíkur og ræða um uppbyggingu og breytingar sem þegar hafa verið ákveðnar og það sem mögulega verður. Ég bendi hlustendum á skýrslu Borgarsögusafns númer 126 frá árinu 2005 en þar er sagt frá upphafi byggðar í Kvosinni, við skulum grípa aðeins niður í upphaf hennar..................
    Svæðið sem nú afmarkast af Kirkjutorgi, Skólabrú, Lækjargötu, Vonarstræti og Templarasundi, var óbyggt þegar Reykjavík fékk kaupstaðaréttindi árið 1786. Svæðið var þá hluti af Austurvelli, sem upprunalega var tún Víkurbænda og náði frá Aðalstræti austur að Læknum og frá sjónum í norðri suður að Tjörninni. . Skömmu eftir að Reykjavík fékk kaupstaðaréttindi var Dómkirkjunni þó valinn staður suðaustan til á vellinum og var hún reist þar á árunum 1787-1796. Upp úr því fór svæðið sunnan við kirkjuna, þ.e.a.s. reiturinn sem hér um ræðir, smám saman að byggjast.
    Húsið Skólabrú 2, næsta hús austan við húsaröðina við Kirkjutorg. Húsið teiknaði Rögnvaldur Ólafsson arkitekt og er þetta eitt fárra íbúðarhúsa úr steinsteypu sem hann hannaði. Við hönnun hússins leitaðist Rögnvaldur við að brjótast undan hefðbundinni húsagerð timburhúsanna og móta sjálfstæðan stíl fyrir steinsteypt hús. Húsið er því brautryðjendaverk í hönnun steinsteypuhúsa og hafði mótandi áhrif sem slíkt, en steinsteypt íbúðarhús af þessari gerð, svokallaðar villur, urðu vinsæl hér á landi á öðrum og þriðja áratugi 20. aldar og settu einkum svip á hverfi hinna efnameiri.
    Húsin Skólabrú 2 og Lækjargata 10, sem standa litlu austar, eru í góðu samræmi við húsaröðina sunnan Dómkirkjunnar. Þessi hús skyggja ekki á kirkjuna ef horft er frá Lækjargötu og hafa bæði mikið gildi fyrir umhverfi hennar og Skólabrúar. Við ætlum einnig að ræða um Lækjargötu 10, en kannaðar hafa verið möguleikar að byggja aftan við það hús, hvort sem af verður eða ekki. Rætt er við Margréti Harðardóttur arkitekt frá Studio Granda og Hjörleif Stefánsson arkitekt. Einnig rætt við Sigurboru Ósk Haraldsdóttur borgarfulltrúa og Ólaf Torfason stjórnarformann Íslandshótela.
    47 min
  • Vandræði GAMMA og fimleikadrottningin Simone Biles
    Í þessum þriðja þætti af Hnotskurn förum við yfir feril fimleikakonunnar stórkostlegu, Simone Biles, sem varð um helgina sú fimleikakona (og maður) sem hefur hlotið flesti verðlaun á heimsmeistaramóti frá upphafi. Við rýnum líka í vandræði fjárfestingafyrirtækisins GAMMA sem hafa verið áberandi í fréttum undanfarið.
    0 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.