Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • 22022020 - Flakk - Flakk um Arkitektúr - líkama og skynjun - síðari þá
    málþing sem bar yfirskriftina Arkitektúr - Líkami og skynjun og var haldið í Veröld hús Vigdísar þann 6. febrúar. Þar var sagt frá nýjum áherslum í arkitektúr við hönnun og byggingar heilbrigðisstofnana. Við höldum áfram í dag, og heimsækjum Hjúkrunarheimilið Seltjörn sem er nýopnað, sjúkrahótelið við Landspítalann og heyrum af einbýlishúsi, sem er sérstaklega hannað fyrir fjölskyldu sem á dreng á einhverfurófinu. Hvernig getur bygging haft hvetjandi áhrif, spurningin er hvernig getur arkitektúr stutt við meðferðir, haft áhrif á velferð einstaklinga og styrkt klíníska ferla heilbrigðisstarfsfólks.
    Rætt er við Halldóru Arnardóttur listfræðing sem starfar með eiginmanni sínum Javier Sánches Merina arkitekt, þau búa í Murcia á Spáni. Halldóra segir frá einstöku húsi sem styður við ungan einhverfan dreng.
    Þá er litið í heimsókn á nýja Sjúkrahótelið við Landspítalann, en arkitektarnir Jóhannes Þórðarson hjá Glámu Kím og Sólveig Berg Emilsdóttir eru aðalhönnuðir byggingarinnar, sem bætir verulega aðstöðu sjúklinga af landsbyggðinni og þeirra sem ekki njóta aðstoðar á heimili sínu.
    Að lokum er litið í heimsókn á hjúkrunurheimilið Seltjörn á Seltjarnarnesi í fylgd arkiteksins Björns Guðbrandssonar, hann segir frá áherslum í byggingu hússins, sem reynt er að gera sem heimilislegast með litlum einingum.
    52 min
  • 15022020 - Flakk - Flakk um Arkitektúr - líkama og skynjun
    Hvernig getur arkitektúr stutt við meðferðir, haft áhrif á velferð einstaklinga og styrkt klíníska ferla heilbrigðisstarfsfólks? Listaháskóli Íslands (LHÍ), Arkitektafélag Íslands (AÍ) og SARQ arkitektar héldu fyrir skömmu málþing um hönnun heilbrigðisstofnana og annarra mannvirkja með heilsu og vellíðan í huga . Auknar rannsóknir og aukin þekking hafa sýnt fram á gríðarlegt mikilvægi góðs arkitektúrs í hönnun mannvirkja fyrir heilbrigðisþjónustu. Ekki eingöngu getur góður arkitektúr sparað heilbrigðiskerfinu tíma og stórar fjárhæðir heldur getur góður arkitektúr haft jákvæð áhrif á líf sjúklinga og vellíðan þeirra. Rætt er við Hrafnhildi Ólafsdóttur arkitekt sem starfar í London. Ögmund Skarphéðinsson arkitekt hjá Hornsteinum og leiðir Corpus hópinn sem hanna Nýjan Landspítala og Hrólf Cela arkitekt hjá Basalt sem hannar nýtt hjúkrunarheimili, Skjólgarð á Höfn í Hornafirði.
    52 min
  • 08022020 - Flakk - Flakk um Valhöll og þéttingu byggðar
    Höfum við verið á réttri leið með þéttingu byggðar? Hver var hugmyndafræðin í upphafi? Samkvæmt fræðunum er tilvalið að þétta byggð á yfirgefnum atvinnusvæðum, hverfishlutum sem eru að drabbast niður og slíkt. Margar smáar lóðir er að finna í borginni, þar sem framkvæmdaraðilar hafa sóttst eftir breytingu á deiliskipulagi og óskað eftir því að byggja. Sumar þessar lóðir mætti kalla almenning, þ.e. svæði sem almenningur hefur óheftan aðgang, sum þeirra vel góðursett. Nú stendur yfir breyting á deiliskipulagi við Valhöll hús Sjálfstæðisflokksins, sem er ein slík lóð, byggja á tvær byggingar - íbúðarhús við Bolholt og skrifsofubyggingu niður við Kringlumýrarbraut. Halldór Guðmundsson arkitekt hjá THG segir frá fyrirhuguðum byggingum en hann gerði deiliskipulagið. Pétur Ármannsson arkitekt telur að við höfum jafnvel gengið og langt í þéttingu byggðar. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir svarar fyrir stefnu borgarinnar í þéttingarmálum.
    49 min
  • 01022020 - Flakk - Flakk um Aldin Biodome við Elliðaár
    Aldin Biodome er gróðurhvelfing sem Hjördís Sigurðardóttir matvæla- og skipulagsfræðingur hefur lagt grunnin að. Frá 2015 hefur mikil þróunarvinna átt sér stað varðandi bygginguna sem reiknað er með að standi norðan megin á Stekkjarbakka ofan við dalinn. Byggingin hefur verið umdeild vegna möglegrar ljósmengunar og truflunar vegni veiði í ánni, nú er búið að samþykkja tillöguna, búið að deiliskipuleggja og strangar kröfur gerða vegna fyrrgreindra athugasemda. Hjördís segir frá sínum hugmyndum, Þráinn Hauksson landslagsarkitekt og deiliskipulagshöfundur segir frá skipulaginu og Halldór Páll Gíslason rekstarfræðingur segir fá afstöðu Hollvina Elliðaárdalsins frá andstöðu samtakanna og hvað hópurinn hefði heldur vilja sjá á staðnum.
    ...
    49 min
  • 18012020 - Flakk - Flakk um eignarhald á almenningsrými
    Forsendur eru breyttar. Með mikilli uppbyggingu í borginni hefur eignarhald á landi milli bygginga breyst, landið er komið í eignasöfn fjárfestingafyrirtækja, sem bera því ábyrgð á því. En fylgir þessu eignarhaldi aðrar skyldur en viðhald, hvað með staði þar sem menningarminjar er að finna. Fjallað er um þetta í dag og heimsóttir tveir staðir í borginni, þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, byrjað á Höfðatorgi og síðan er Hafnartorg heimsótt. Með í för eru arkitektarnir og fræðikonurnar Anna María Bogadóttir og Hildigunnur Sverrisdóttir. Í stúdíói eru þau Helgi S. Gunnarsson framkvæmdastjóri Regins og Sigurborg Ósk Haraldsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar
    49 min
  • 04012020 - Flakk - Fjallað um framtíðarsýn í arkitektúr og þróun
    Samkvæmt allri umræðu um loftlagsbreytingar er ljóst að við verðum að bregðast við. Þáttur dagsins fjallar svolítið um þetta. Hvað sjá gestir þáttarins fyrir sér í framtíðinni? Rætt er við tvo unga unga arkitekta, Eddu Ívarsdóttur sem starfar við hönnun Borgarlínu og Helga Steinar Helgason arkitekt og einn eigenda Tvíhorfs. En án fjármagns gerist ekkert og því er rætt við þá Friðjón Sigurðarson framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Reitum og Baldur Már Helgason framkvæmdastjóri Regins, bæði félögin eru fjárfestingarfyrirtæki í byggingariðnaði.
    47 min
  • 21122019 - Flakk - Flakk um piparkökuhús
    Saga piparkökuhússins er eiginlega frá örófi alda. Ekki fannst mikið um þetta á íslensku en ýmislegt uppá ensku. Piparkökur eða gingerbread var t.d. borðað í Róm til forna, einnig tengist kakan ýmis konar trú, það er bæði talað um kristna og gyðinga, en upphafið var líklega í austurlöndum. Siðurinn færist síðan til Evrópu, á sautjándu öldinni er sagt frá sérstökum félagsskap piparkökubakara, en þeir einir máttu baka piparkökur, nema um jól og páska, þá máttu allir baka þessar sögufrægu kökur eða brauð. Nürnberg var og kannski enn mögulega, útnefnd piparkökuborgin, þar og í fleiri borgum Evrópu er að finna sérstakar búðir sem selja alla vega skrautmuni, nánast listaverk gerð úr piparkökudeigi. Siðurinn að baka piparkökuhús um hátíðar er enn við líði í Evrópu, og við heyrum af því í þættinum í dag. Arkitektafélag Íslands hefur einnig blásið til piparkökukeppni, þar sem þeirra hönnun var bökuð, og um langt skeið stóð Katla fyrir slíkri keppni, og voru listavel smíðuð hús gjarnan til sýnis í Kringlunni á aðventunni. Fjallað um piparkökuhúsabakstur og rætt við Heiðdísi Helgadóttur arkitekt og teiknara sem heldur námsekið fyrir fjölskyldur í verslun sinni á Norðurbakka 1 í Hafnarfirði, Davíð Magnússon bakara hjá Brikk bakarí á Norðurbakka í Hafnarfirði, Ellert Björn Ómarsson arkitekt hjá Trípolí, sem tók þátt í piparkökuhúsakeppni Arkitektafélags Íslands, Eriku Matckovu frá Tékkalandi sem hannar og selur listavelgerð piparkökuhús að Evrópskum síð og Margréti Dórótheu Sigfúsdóttur skólastjóra Hússtjórnarskóla Reykjvíkur og nokkra nema og kennara skólans.
    51 min
  • 14122019 - Flakk - Flakk um húsgagnahönnun á Íslandi
    Íslensk húsgagnaframleiðsla var í miklum blóma á tímabilinu 1950-1975 eða allt þar til innflutningur húsgagna var gefinn frjáls og enn leynast víða húsgögn frá þeim tíma. Á þessum árum einkenndist íslenskur húsgagnaiðnaður af mörgum smáum fyrirtækjum en á árinu 1972 voru hátt í 300 fyrirtæki starfandi í þeim iðnaði. Húsgagna- og innanhússarkitektar stofnuðu með sér samtök árið 1955 til að auka útflutning framleiðslu sinnar og taka þátt í sýningum erlendis. Stofnendur voru einungis átta en félagsmönnum fjölgaði hratt og voru þeir orðnir hátt í 90 um aldamótin. Um tíma streymdu erlend húsgögn á markaðinn og dró þá verulega úr allri framleiðslu hér á landi. Það eru nokkur fyrirtæki sem framleiða húsgögn á Íslandi, en flesta ber saman um að framleiðsla á húsgögnum hér, sé of dýr. Rætt við ýmsa sem tengjast greininni í þættinum, svo sem Sigríði Sigurjónsdóttur forstöðumann Hönnunarsafns Íslands, Kristinn Björnsson húsgagnahönnuð hjá DK í Kópavogi, Ingibjörgu Vigdísardóttur húsgagnahönnuð hjá Tréborg, Eyjólf Pálsson húsgagnaarkitekt og eiganda Epal og loks Gústav Jóhannsson húsgagnahönnuð og konu hans Ágústu Magnúsdóttur en þau reka hönnunarfyrirtæki Agustav og verslun að Skólavörðustíg 22.
    51 min
  • 07122019 - Flakk - Flakk um nýtt hverfaskipulag í Áræjarhverfi
    Árbæjarhverfi er fyrsta skipulagða úthverfi Reykjavíkur og nú í nokkur ár hefur staðið yfir skipulagsvinna að bæta og laga eldri byggðir borgarinnar. Árbæjarhverfi er það fyrsta og er nú lokið, búið að prenta heilmikið af upplýsingum og opna nýjan vef, hverfasja.is. Þetta hefur tekið sinn tíma en nú renna út hvert hverfið á fætur öðru. Það er því fortvitnilegt að skoða hvernig hefur til tekist, og forvitnast aðeins um aðferðir og tilgang. Í kjölfarið verður Breiðholt endurskipulagt, síðan Hlíðar og loks Háaleiti og Bústaðir, síðan tekur vesturbærinn við.
    Rætt við Sigurborgu Ósk Haralsdóttur formann umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur og Reyni Vilhjálmsson landslagsarkitekt og frumskipuleggjanda Árbæjarhverfis og íbúa í hverfinu.
    Farið í heimsókn í Árbæjarhverfið í fylgd Ævars Harðarsonar arkitekts og verkefnastjóra nýs hverfisskipulags Árbæjarhverfis.
    50 min
  • Flakk - Flakk um tvær vistvænar byggingar í Reykjavík
    C 40 var alþjóðleg samkeppni sem fyrrverandi borgarstjórar New York og Parísar efndu til þar sem 40 borgum víðs vegar um heiminn bauðst að hanna vistvæn hús til framríðar. Reykjavík skaffaði þrjár lóðir í borgarlandinu og fjölmargar tillögur bárust í tvær þeirra. Hér er um að ræða lóð í Ártúnshöfða, lóð núverandi malbikunarstöðvar, þar unnu 1.verðlaun Jakop+Macfarlane og Tark arkitektar, 2.500 fm blokk úr timbri - íbúðir, þjónusturými og skólar, krafan var um vistvæna byggð og góðar almennings samgöngur, en borgarlína ekur framhjá blokkinni, umsjón með vinnu Tark hafði Halldór Eiríksson arkitekt. Basalt arkitektar unnu einnig fyrstu verðlaun á lóð við Suðurlandsbraut við horn Kringlumýrarbrautar, sem fram að þessu var tileinkuð heitavatnsborholum, en kemur sér vel þegar um vistvæna blokkarbyggð er að ræða. Basalt byggir einnig úr timbri, en hugmyndir er svokölluð co-living eða samnýting ýmissa rýma svo sem eldhúss og vinnuplássa - grænn borði er í gegnum allt húsið (gróðurhús). Hönnuðir eru Hrólfur Carl Cela og Markos Zotes arkitektar. Einnig er rætt við Eddu Ívarsdóttur borgarhönnuð sem hélt utanum keppnina hér á landi og Helgu Jóhönnu Bjarnadóttur umhverfisverkfræðing hjá Eflu sem kom að báðum verkefnum.
    50 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.