Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • 17102020 - Flakk - Flakk um Nýjan Landspítala - 1.þáttur
    Alla jafna fjallað um uppbyggingu, arkitektúr og skipulag í Flakki. Í þessum þætti er einungis fjallað um eina byggingu en nú er hafin framkvæmd á líklega flóknustu byggingu Íslandssögunnar. Fjöldi manns kemur að verkefninu, en hönnunarhópurinn kallar sig Korpus, og innan hans er fræðingar úr öllum geirum, en þess ber að geta að fæstir þeirra sem vinna við hönnun þessarar byggingar, hafa áður unnið við eitthvað þessu líkt. Hér er átt við Nýjan Landspítala. Í þessum fyrra þætti er rætt við Þorberg Karlsson byggingaverkfræðing hjá VSÓ um tæknilega hluti varðandi jarðskjálftaþol, titring og flæði fólks. Rætt er við Ástu Logadóttur rafmagnsverkfærðing og lýsingarsérfræðing um dægursveiflur og lýsingu, en sannað er að rétt lýsing hraðar bötnun sjúklinga og starfsfólki lýður betur í góðri lýsingu, ekki síst þeir sem vinna vaktavinnu, einnig er rætt og Ragnhildi Skarphéðinsdóttur landslagsarkitekt sem hann bæði láðrétta og lóðrétta garða innandyra í meðferðarbyggingunni, en líkt og lýsingin hefur gróður jákvæð áhrif á sjúklinga og starfsfólk.
    52 min
  • 03102020 - Flakk - Flakk um Austurbakkann í Reykjavíkurhöfn
    Gífurlegar breytingar hafa orðið á höfuðborginni síðasta áratuginn. Heilu íbúðahverfin rísa vítt og breytt um borgina og sömuleiðis fjölgar þjónusturýmum í hverfum og ekki síst í miðborginni. Auk þess hefur íbúðum fjölgað í miðborginni. Sitt sýnist hverjum um þessa uppbyggingu, en óneitanlega eru margir staðir sem hafa hreinlega verið í óreiðu, malarbílaplön og ómarkvissar byggingar horfið með þéttingu og nýju skipulagi. Austuhöfnin er í hjarta borgarinnar og hafnarsvæði eru ávalt aðlaðandi. Nú eru nýjar byggingar að birtast hægt og bítandi, og eitt 5 stjörnu hótel á svæði sem var áður fyrr lagt undir gáma, fiskmarkað og hafnartengda starfsemi sem nú er flutt í Sundahöfn. Það eru 30 ár síðan menn byrjuðu að huga að nýju skipulagi fyrir þetta svæði og ýmislegt hefur mönnum svo sem dottið í hug á leiðinni eins og hraðbraut í gengnum Tollhúsið, sem betur fer varð nú ekkert af því. Í þættinum skoðum við okkur um á Austurbakkanum, í fylgd Halldórs Eiríkssonar arkitekts hjá Tark arkitektum og í stúdíó anddyri sitja Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og Sveinn Björnsson framkvæmdastjóri Íslenskra fasteigna en félagið er eigandi að íbúðarbyggingum á Austubakkanum. Byrjað er á teiknistofunni hjá Tark arkitektum
    50 min
  • 26092020 - Flakk - Flakk um hús í niðurníðslu í miðborginni
    Fyrir skemmstu var steinhús rifið á Skólavörðustíg í leyfisleysi, þetta er nú ekki í fyrsta sinn því miður. Skömmu áður en þetta gerðist höfðu íbúasamtök miðborgarinnar sent bréf til yfirvalda með ábendingu um nokkuð mörg hús sem eru í niðurníðslu í miðborginni, og m.a. umrætt hús, sem þekktast er fyrir að búsáhaldaverslun Þorsteins Bergmann var rekin þar til margra ára. Hvað veldur að fjöldi húsa standa auð með nelgt fyrir glugga, eða jafnvel ekki, fá að standa óáreitt á dýrum lóðum í borginni. Við tökum okkur göngutúr með Benóný Ægissyni formanni íbúsamtaka miðborgarinnar, og í stúdíói sitja Pétur Ármannsson arkitekt hjá Minjastofnun og Sigurborg Ósk Haraldsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar
    51 min
  • 19092020 - Flakk - Flakk um nýjan miðbæ á Selfossi
    Nýi miðbærinn á Selfossi hefur verið mjög umdeildur, ekki vegna þess að bæjarbúar vilji ekki uppbyggingu á svæði, sem hingað til hefur verið tún, niðurnýdd hús og skemmur, viðkvæmur staður í bænum, sem blasir við þegar komið er yfir Ölfusárbrúna. Núna er vel á veg kominn fyrsti áfangi, um er að ræða endurbyggingu þekktra húsa frá fyrri tíð, sem margir vilja meina að sé umdeilanlegt að byggja árið 2020. Uppbyggingin fór í íbúakosningu, sem fór á þann veg að ráðist var í verkið. Sigtún þróunarfélag er framkvæmdaraðili. Farið er í heimsókn á Selfoss í þættinum, skoðaðar teikningar hjá Batteríinu arkitektum, og gengið um nýja götu á Selfossi í fylgd Leós Árnasonar. Farið er sitt á hvað á staðinn og teiknistofuna og byrjað á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði þar sem arkitektastofan Batteríið er til húsa og rætt við Sigurð Einarsson arkitekt.
    52 min
  • 12092020 - Flakk - Flakk um nýtt Hverfaskipulag Breiðholts - neðra Bre
    Skipulagsyfirvöld hafa undanfarin ár verið að endurskoða eldra skipulag í nokkrum hverfum Reykjavíkur. Í Árbænum er þessu lokið og nú er verið að vinna við Breiðholtið. Íbúar hafa verið með í ráðum, með samtölum, fundum, gönguferðum og hugmyndasöfnun. Tilgangurinn er skoða hvort ástæða sé til að breyta áherslum í ýmsum málum svo sem reglugerðum um atvinnustarfsemi, en stefnt er að því að ýmis konar smáiðnaður geti verið stundaður á heimili, stækkun og breyting húsnæðis til dæmis að setja lyftur í blokkir - þá með því að byggja ofan á eina hæð og koma fyrir lyftu, tilgangurinn er að gera fjölbýlishúsin sjálfbærari og auka möguleika eldri íbúa að búa lengur heima, einnig er komið inná ýmis konar félagsstarf í hverfunum. Við setjum okkur í Neðra Breiðholt í dag, göngum um Stekki og Bakka í fylgd Ævars Harðarssonar arkitekts og deildarstjóra hverfaskipulags Reykjavíkur. Gestir í Stúdíói eru Óskar Dýrmundur Ólafsson Hverfisstjóri Breiðholts og framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Breiðholts og Sara Björg Sigurðardóttir varaborgarfulltrúi og formaður Íbúaráðs Breiðholts
    49 min
  • 05092020 - Flakk - Flakk um nýtt deiliskipulag á hluta Granda
    Nýlega var kynnt nýtt deiliskipulag einnar lóðar á Granda, Teiknistofan Ask sá um það og rætt er við Pál Gunnlaugsson arkitekt. Í stúdíói sitja svo Sigurborg Ósk Haraldsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar og Guðbarndur Benediktsson fortöðumaður Borgarsögusafns. Grandinn á sér langa sögu, búseta var það fyrir margt löngu síðan, en sagan er aðallega atvinnusaga. Grandinn er mikið til byggður á uppfyllingu, og stefna borgarinnar er að byggja ekki íbúðarhúsnæði á Granda, því eru byggingar á þessum nýksipulagða reit atvinnuhúsnæði. Margt togar fólk út á Granda, svo sem Þúfa Ólafar Nordal, Sjóminjasafnið og Marshallhúsið með sínum galleríum, auk þess hafa margar sérverslanir fundið sér pláss á Granda auk fjölda veitingastaða. Áður en atvinnustarfsemin tók yfir á Granda var þar vinsælt útivistarsvæði bæjarbúa, síðan settist herinn þar að á stríðsárunum og skildu eftir sig mikið drasl og óreiðu.
    48 min
  • 29082020 - Flakk - Flakk um byggingarefni framtíðar 3.þáttur
    Það er ýmislegt um að vera bæði í sjórnsýslunni, hjá einkaaðilum og hjá fjárfestum hvað varðar umhverfisvænni byggingar í framtíðinni. Endurnýting byggingarefna er eitthvað sem menn eru að líta til, t.d. með því að ferilskrá allt það efni sem fer í ákveðna byggingu, og ef hún er tekin niður er hægt að endurnýta margt í stað þess að farg, segir Jón Malmkvist Guðmundsson hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Draumaverkstæði norðursins Loftkastalinn er fyrirtæki sem hjónin Inga Lóa Guðjónsdóttir og Hilmar Páll Jóhannesson reka á lóð gömlu Áburðarversmiðjunnar í Gufunesi, þar úir og grúar af alls konar byggingarefni sem þau hafa tekið úr byggingum sem verða eða hafa verið rifnar. Á teiknistofunni Stiku skoða þær Magnea Guðmundsdóttir arkitekt og Brynhildur Pálsdóttir hönnuður nýja möguleika yfirborði bygginga og Helgi S. Gunnarsson framkvæmdastjóri Regins segir það stefnu fyrirtækisins að vera umhverfisvæn og sækjast eftir Bream vottun á sínar byggingar, auk þess að fylgjast með rannsóknum á nýjum og umhverfisvænni byggingarefnum.
    53 min
  • 180720 - Flakk - Flakk um byggingarefni framtíðar 2. þáttur
    Þjóðir heims þurfa að minnka kolefnissporið, þetta er búið að skjalfesta með rannsóknum og samkomulagi meðal þjóða. Byggingaiðnaðurinn skilur eftir sig um 30 - 40%, og því er vert að huga að öðrum og umhverfisvænni bygginarefnum til framtíðar. Ýmislegt er verið að gera, og ekki síst hér á landi, og margar nýjungar í nýsköpun. Í þættinum er rætt við Þórhildi Fjólu Kristjánsdóttur framkv.stj. Grænnar byggðar um áherslur í félagsskapnum, Logi Unnarson Jónsson er að rækta iðnaðarhamp og rannsakar hampinn sem byggingarefni og eins mychelin sveppi sem eru ostrusveppir og þykja vænlegir til byggingarefnis. Einnig er rætt við vöruhönnuðina Elínu Sigríði Harðardóttur og Ingu Kristínu Guðlaugsdóttur um rannsókn þeirra á lúpínu, en þær leitast við að þróa trefjar úr lúpínu til bygginga og umbúða. Í tengslum við byggingarefni til framtíðar er einnig vert að hugsa um endurnýtingu byggingarefnis úr húsum sem á að rífa, Loftkastalinn í Ingu Lóu Guðjónsdóttur og Hilmars Páls Jóhannessonar.
    48 min
  • 11072020 - Flakk - Flakk um bygginarefni framtíðar 1. þáttur
    Villtu búa í kubbahúsi eða kannski plasthúsi? Hvað er verið að rannsaka hjá Rannsóknarstofu byggingaiðnaðarins? Við skoðum kubbahús, og heyrum að plasthúsi og heimsækjum Nýsköpunarmiðstöð í þættinum. Pago hús er heildsölufyrirtæki sem flytur inn kubba sem gerður eru úr timburkurli sem gert er úr trébrettum og keflum. Í kurlið er blandað ýmsum efnum, þeir eru holir og er seinull til einangrunar sett í holrýmin og staflað upp og síðan er steypu dælt með jöfnu millibili í kubbana. Ólöf Salmon Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri Pago. Ólafur Wallevik er forstöðumaður Rannsóknarstofnunar byggingaiðnaðarins, hann segir frá ýmsum rannsóknum á vistvænum byggingarefnum, endurnýtingu plasts og fl. Regin Grímsson hefur smiðað um 400 báta úr trefjaplasti, hann ákvað að reyna við húsbyggingu úr efninu og eftir rannsóknir og prófanir, er eitt hús risið á Grænlandi og annað er í byggingu í Grindavík. Einnig er rætt um krosslímt timbur sem kallast CLT og xypex sem er efni til sprunguviðgerða.
    48 min
  • 04072020 - Flakk - Flakk um útivistarsvæði borgarinnar
    Miðborgin í Reykjavík er að breytast mjög hratt frá því að vera bílaborg yfir í göngu- og mannvænlega miðborg. Miklar deilur hafa staðið um Laugaveginn og Borgarlínu. Ný torg eru að birtast og gönguleiðir að opnast meðan þrengt er að hluta að einkabílnum. Óðinstorg er að líta dagsins ljós og ætti að vera alklárt í haust. Torg við Tollhúsið í Tryggvagötu eru í undirbúningi, en elsta svæði borgarinnar, Hafnarstræti, torg við Bæjarins bestu og Steinbryggjan eru tilbúið. Í þættinum er fjallað um Óðinstorg í fylgd Hrólfs Carl Cela frá Basalt arkitektum og Áslaugu Traustadóttur landslagsarkitekt frá Landmótun segir frá framkvæmdum við Tryggvagötu og nágrennis. Hilmar Þór Björnsson arkitekt og Sigurborg Ósk Haraldsdóttir formaður umhverfis - og skipulagsráðrs eru gestir í stúdíó og ræða framkvæmdir í miðborginni.
    50 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.