Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • 08042021 - Flakk - Flakk um nýtt deiliskipulag á Ártúnshöfða
    Í aðalskipulagi Reykjavíkur til 2040 er áætluð mikil byggð á Ártúnshöfða, en þegar allt er komið jafnfjölmennt hverfi og Grafarvogur, en þéttari byggð. Það þýðir að fleiri fjölbýlishús verða byggð á höfðanum. Á fyrri hluta síðustu aldar og allt til 1950 var búið á Ártúnshöfða á svokölluðum Krossamýrarblettum. Iðnaðarfyrirtækin ruddu á endanum íbúum burt af svæðinu, og þeir sem búa á Ártúnshöfða í dag, eru líklega ólöglegir. En nú stendur mikið til, Bryggjuhverfið er langt komið en uppfylling sem bættist við norðvestan í hverfinu hefur ekki enn litið dagsins ljós, verið er að deiliskipuleggja Sævarhöfða niðri við Voginn, en við ætlum að fjalla um svæðið sem kennt er við Krossamýri, ræðum við arkitektana Pál Gunnlaugsson og Þorstein Helgason hjá ASK arkitektum. Og í stúdíói sitja Halldór Eyjólfsson þróunarstjóri Klasa ehf, en Klasi hefur unnið að þróun svæðisins og Pawel Bartozsek varaformaður skipulags- og umhverfisráðs borgarinnar.
    49 min
  • 25032021 - Flakk - Flakk um hönnun og Hönnunarmars
    Allt sem við snertum alla daga, svo kaffikannan, bollinn, tannburstinn, fötin sem við klæðumst, allt manngert í okkar umhverfi hefur verið hannað af einhverjum. Hönnunarmars hefur verið haldinn undanfarin árin - helst í mars, þó ekki í fyrra, og ekki núna heldur, hann verður í maí. En til að halda merkjum marsins á lofti fjöllum við um hönnun í þættinum í dag. Enn eru margir með þær ranghugmyndir að þegar talað er um hönnun, sé einungis átt við fatnað, nytjalist og vefnað og að flestir hönnuðir séu konur, þetta er auðvitað vitleysa. Eftir að Listaháskólinn tók til starfa fyrir um 20 árum hefur alls konar hönnun og nýsköpun rutt sér til rúms hér á Íslandi. Við heyrum í tveimur ungum hönnuðum, Valdísi Steinarsdóttur sem er m.a. að vinna umhverfisvænar umbúðir, Halldór Eldjárn tónlistarmann og forritara, sem er að gera frumlega og óvenjulega hluti. Í stúdíói sitja Hildigunnur Sverrisdóttir deildarforseti í arkitektúr LHÍ og Garðar Eyjólfsson hönnuður og dósent við Listaháskólann.
    53 min
  • 18032021 - Flakk - Flakk um Vísindagarða Háskóla Íslands
    Þessa dagana er verið að vinna að rammaskipulagi fyrir allt Háskólasvæði Háskóla Íslands, það hefur ekki verið til, þó undarlegt sé, en nú er stefnt að því að klára málið. Samt hefur verið byggt mikið á svæðinu í mörg ár, og nýjasta húsið Gróska hefur tiltölulega nýlega verið tekið í notkun. Gróska er á lóð Vísindagarða, við nýja götu sem nefnist Bjargargata og er vestan við Íslenska Erfðagreiningu. Vísindagarðar eru að miklu leiti í eigu einkaaðila, þ.e. byggingarnar, en ýmis svið Háskólans eru í samvinnu við mörg þeirra fyrirtækja sem þarna starfa, svo sem Erfðagreiningu, Alvogen eða Alvotek, CCP og fleiri.Í framhaldi af síðasta þætti er fjallað um Vísindagarða, rætt við Hildi Gunnarsdóttur arkitekt hjá Borgarskipulagi, Sigurð Magnús Garðarsson stjórnarformann Vísindagarða, einnig heyrast brot úr Flakki frá því í sept. 2019 þar sem rætt er við Sigríði Sigurðardóttur arkitekt og svistj.framkv.sviðs Hí, Pétur Ármannsson arkitet og við arkitektana Harald Örn Jónsson og Kristján Garðarsson hjá Andrúm en þeir hönnuðu Grósku.
    48 min
  • 11032021 - Flakk - Flakk um Háskólasvæðið
    Uppúr 1930 reis Gamli Garður á Háskólalóðinni og aðalbygging Háskóla Íslands var tekin í notkun árið 1940, en Háskóli Íslands var stofnaður árið 1911 en var þá til húsa í Alþingishúsinu við Austurvöll. Allar götur síðan hefur verið byggt á Háskólasvæðinu. Við ætlum að skoða okkur aðeins um á Háskólasvæðinu í þættinum í dag, því nú er loks verið að vinna rammaskipulag fyrir svæðið. Við ræðum við Hrund Ólöfu Arnardóttur umhverfisverkfræðing og formann skipulagsnefndar Háskóla Íslands, Orra Steinarsson arkitekt en hann og stofa hans í Rotterdam er að vinna rammaskipulagið, en hefjum leikinn með Pétri Ármannssyni byggingalistfræðingi en við heimsóttum háskólasvæðið í september 2019 og Pétur segir frá.
    52 min
  • 04032021 - Flakk - Flakk um Borgarlínu
    Það er afar forvitnilegt að heyra af framvindu mála eftir að 300 síðna skýrsla kom út fyrir skömmu og ber yfirskriftina Borgarlínan 1. lota, forsendur og frumdrög.
    Borgarlínan er mikilvæg fyrir umferðina í borginni til framtíðar. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sammæltust um það á síðasta áratug að það væri ekki fýsilegt að halda áfram á þeirri braut að brjóta nýtt land í stórum stíl undir byggð og byggja alla þá fjárfreku innviði fyrir einkabíla sem slík þróun kallaði á, heldur þyrfti að breyta um stefnu og reyna að gera borgarsvæðið hagkvæmara og samgöngurnar umhverfisvænni.
    Samgöngusviðsmyndir fyrir höfuðborgarsvæðið voru teiknaðar upp í skýrslu frá verkfræðistofunni Mannviti sem kom út í upphafi árs 2014.
    Í ljós kom að óbreytt stefna um uppbyggingu íbúða hjá sveitarfélögunum gæti skilað því að fjöldi bílferða á höfuðborgarsvæðinu myndi aukast um 377 þúsund á sólarhring á milli áranna 2010 og 2040. Einnig var áætlað að íbúar höfuðborgarsvæðisins myndu samanlagt verja 62 þúsund fleiri klukkustundum á bílunum sínum árið 2040 en þeir gerðu árið 2010. Búist var við að þeim myndi fjölga um 70 þúsund á tímabilinu. Rætt er við Gunnar H. Gunnarsson frá samtökum um betri byggð, Hrafnkel Á Proppé skipulagsfræðing frá Verkefnastofu um Borgarlínu og Sólveigu Berg arkitekt hjá arkitektastofunni Yrki.
    51 min
  • 25022021 - Flakk - Flakk um Steindórsreit
    Fjallað verður um Steindórsreitin í þættinum í dag, en Kaldalón, sem er fasteignaþróunarfélag stendur fyrir framkvæmdum á reitnum, og Jónas Þór Þorvaldsson framkvæmdastjóri situr í hljóðstofu ásamt Pawel Bartozek varaformanni umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar. Einnig er rætt við arkitektinn Pál Hjaltason hjá +Arkitektum.
    Í febrúar árið 2007 var svokallaður Steindórsreitur vestur við Hringbraut í söluferli, og við skulum grípa niður í grein úr Fasteignablaði Moggans, sem birtist þá.......
    Á vesturhluta Hringbrautar, svokallaðri Steindórslóð, standa enn í dag þær byggingar sem Steindór Helgi Einarsson bifreiðaeigandi reisti fyrir starfsemi sína. Um er að ræða byggingar á einni hæð með mikilli lofthæð og minni eldri byggingu sem alla tíð var nefnd Kot og var notuð sem bílageymsla o.fl. Enn fremur segir í greininni
    Steindór var talinn harður húsbóndi en eftir á að hyggja var hann góður og tryggur húsbóndi sem vissi hvað hann vildi og hvenær. Hann gerði kröfur til sjálfs sín og annarra. Hann hélt sínum starfsmönnum lengi og margir unnu hjá fyrirtækinu, bæði á svokallaðri Steindórsstöð, sem þá var við núverandi Ingólfstorg, og Bílaverkstæðinu við Sólvallagötu/Hringbraut, nánast alla sína starfstíð. Til gamans má nefna að Bifreiðastöð Steindórs var ein af fyrstu leigubílastöðvum til að taka upp leigubílagjald samkvæmt gjaldmælingu og fyrst til að nota talstöðvar í leigubílaakstri.
    52 min
  • 11022021 - Flakk - Flakk um Hamraborg í Kópavogi
    Um miðjan maí í fyrra heimsóttum við Hamraborg í Kópavogi í fylgd Pálmars Kristmundssonar arkitekts, þá í miðju ferli við að deiliskipuleggja nýjan miðbæ í Hamraborg í Kópavogi. Við spurðum þá og gerum enn, er hægt að búa til miðbæ? Skapast miðbæir yfirleitt ekki í kringum ákveðnar byggingar svo sem söfn, menningarhús og kirkjuna? Þetta er svo sem allt til staðar í Hamraborg, svo það er líklega kominn tími til að klára skipulagið og búa til mannvænt umhverfi í Hamraborginni. Rætt er aftur við Pálmar Kristmundsson arkitekt í þættinum, og í hljóðstofu sitja Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs og Kolbeinn Reginsson líffræðingur sem tjáð sig hefur oft á Facebook, en þar hefur hópur fólks rætt um skipulagið undir merkinu Vinir Hamraborgar.
    50 min
  • 04022021 - Flakk - Rætt við Trausta Valsson skipulagsfræðing
    Hér á Flakkinu hefur endrum og sinnum verið fjallað um einstaklinga sem starfað hafa við arkitektúr og skipulag, í dag ræðum við við Trausta Valsson skipulagsfræðing, en Trausti varð 75 ára fyrir skömmu og hefur nú sett allar bækur og greinar endurgjaldslaust á netið, undir flipanum traustivalsson.is og eru 14 bækur hans, og ótal blaða- og fræðigreinar að finna þar, en Trausti var prófessor við Háskóla Íslands í rúm 30 ár.
    Trausti Valsson hefur ekki legið á skoðunum sínum og tekið þátt í umræðum, fundum og hugmyndavinnu alla starfsæfina. Rætt er við hann um námið, ferilinn, ýmsar hugmyndir m.a. um nýjan innanlandsflugvöll og fl.
    52 min
  • 28012021 - Flakk - Flakk um Vatnsholt
    Leigumarkaðurinn hefur stækkað hér á landi undanfarin ár, margt kemur til, íbúðir eru dýrar, bankahrun hafði sitt að segja fyrir áratug og svo eru einstaklingar sem kjósa að leigja fremur enn að kaupa. Bjarg leiguíbúðir hefur verið kraftmikið og byggt víða, en Bjarg er félag á vegum verkalýðsfélaganna. Vildarhús er nýtt félag sem hyggst byggja leiguíbúðir fyrir eldri borgara, um er að ræða litla lóð í Vatnsholti við Sjómannaskólann og þar hyggst félagið að byggja 51 íbúð. Við ætlum að fræðast um framkvæmdina, ræða um stöðu eldri íbúa borgarinnar í húsnæðismálum og til þess höfum við fengið Ólaf Örn Ingólfsson framkvæmdastjóra Vildarhúsa og Ingibjörgu H. Sverrisdóttur formann félags eldri borgara í Reykjavík en einnig er rætt við arkitektinn Aðalheiði Atladóttur hjá A2F arkitektum.
    49 min
  • 21012021 - Flakk - Flakk um Hotel Curio by Hilton við Víkurtorg
    Hótel Borg er elsta hótelið í Reykjavík, og var lengi vel það eina þar til Hótel Saga og Hótel Holt tóku til starfa fyrir margt löngu. Undanfarin ár hefur aldeilis bæst í flóruna eins og landsmenn vita. Í Kvosinni og nágrenni eru ótal ný hótel sum þegar tekin til starfa eins og Hótel Exeter við Tryggvagötu. Þrjú stór hótel eru í byggingu, Mariot við Hörpu, Reykjavíkur hótel byggir við Lækjargötu og Lindarvatn er að leggja lokahönd á Hótel Curio by Hilton við Krikjustræti, eða á Landsímareitnum. Það sá engin fyrir heimsfaraldur þegar þessar byggingar voru skipulagðar, og vonandi förum við að sjá fyrir endan á því ástandi svo gestir geti innritað sig á þessi hótel í framtíðinni. Hótelið á Landsímareitnum verður til umfjöllunar í þætti dagsins. Í stúdíó anddyri sitja Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og Jóhannes Stefánsson framkvæmdastjóri Lindarvatns. Rætt er við arkitektinn að hótelinu Frey Frostason hjá THG arkitektum.
    52 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.