Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • 14012021 - FLakk - Umræður um uppbyggingu síðustu ára
    Á nýju ári er gjarnan litið til baka yfir farinn veg. Hér á Flakkinu er alla jafna fjallað um skipulag, byggingalist og uppbyggingu. Ásýnd Reykjavíkur hefur svo sannarlega breyst undanfarin ár, og nú er margt af því sem fjallað hefur verið um hér í þættinum litið dagsins ljós. Miðborgin er gjörbreytt, ný hverfi hafa sprottið upp undir formerkjum þéttingar. Í nágranna sveitarfélögunum eru einnig miklar breytingar, í Kópavogi rísa ný hverfi og 14. janúar verður nýtt skipulag fyrir Hamraborg kynnt í streymi. Í Hafnarfirði er uppbygging á fullu, stærsta timburhús landsins verið tekið í notkun Hafrannsóknarstofnunar, Í Garðabæ er nýtt hverfi sem ber heitið Urriðaholt og nýr miðbær að rísa í Mosfellsbæ. Einnig byggja Selfyssingar nýjan miðbæ í gömlum stíl. Hótel rísa hér og þar í borgarlandinu og nokkrar strórbyggingar einnig í borgarlandinu, má þar nefna Grósku á Háskólasvæðinu, nýjan Landsbanka, Hús Íslenskunnar og skrifstofur Alþingis. Gestir Flakksins eru Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt og deildarforseta arkitektadeildar Listaháskólans, Karl Kvaran arkitekt og formaður arkitektafélagsins og Pétur H. Ármannsson arkitekt og byggingalistfræðingur,
    49 min
  • 07012021 - Flakk - Flakk um þrjár nýjar lykilbyggingar í Reykjavík
    Hugað er að nýjum lykilbyggingum í þættinum í dag. En hvað eru lykilbyggingar og hvernig er hægt að skilgreina þær? Að mínu viti eru þetta gjarnan byggingar sem gegna áríðandi hlutverki í samfélagi okkar, svo sem Alþingi, Ráðhúsið og Stjórnarráðið o.fl.. En einnig geta þær verið kennileiti í umhverfi sínu, svo sem Perlan og Fríkirkjuvegur 11 og mörg fleiri hús. Nú er ríkið að byggja tvær og sú þriðja er í deiliskipulagi, sem er nýtt Stjórnarráð. Í dag verður fjallað um Hús Íslenskunnar vestur í bæ við Arngrímsgötu, skrifstofur Alþingis á horni Vonarstrætis og Tjarnargötu, og svo er það Landsbakinn sem er að byggja heljarinnar hús við Kalkofnsveg. Heilsað er uppá hönnuði þessara bygginga, spurt um hugmyndir og efnisval, en allar þessar byggingar eiga það sameiginlegt að hafa unnið semkeppni, en þó á mismunandi forsendum.
    Rætt er við Ögmund Skarphéðinsson arkitekt hjá Hornsteinum, Margréti Harðardóttur arkitekt hjá Studio Granda og Helga Hallgrímsson hjá Arkþing Nordica.
    54 min
  • 17122020 - Flakk - Flakk um nýjungar og framkvæmdir ríkisins
    Við leggjum í hann í dag með tvo ólíka pakka í farteskinu. Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að fara í miklar framkvæmdir og hanna, klára, byggja nýjar lykilbyggingar. Í þættinum er rætt um Nýja Stjórnarráðsbyggingu, Skrifstofubyggingu Alþingis og Hús Íslenskunnar. Þegar farið er á vefinn og Framkvæmdasýsla ríkisins slegin inn, er hægt að skoða allar þær framvæmdir sem eru áætlaðar, í gangi eða er lokið, framkvæmdir eru um allt land og bendi ég forvitnum hlustendum á að skoða listann. Rætt er við Guðrúnu Yngvarsdóttur forstjóra framkvæmdasýslu ríkisins.
    Það má segja að í þættinum verði kafað ofan í það smáa og það stóra. Þorpið Vistfélag er nýjung hér á landi, en um er að ræða smáar íbúðir með miklu af sameiginlegu rými, og svo það nýjasta Baba Yaga hús fyrir konur 60+, sem áætlað er á byggja á horni Vesturgötu og Bræðraborgarstígs. Runólfur Ágústsson er verkefnastjóri Þorpsins, segir frá.
    46 min
  • 10122020 - Flakk - Flakk um Kársnes í Kópavogi
    Veður og vindar buðu ekki uppá annað en taka bílinn í okkar þjónustu, í heimsókn á Kársnesið. Við ætlum í smá leiðangur í dag og skoða okkur um á Kársnesinu í Kópavogi. Margoft hefur brúin yfir Kársnes verið nefnd hér á Flakkinu, enda afar áríðandi að fá hana ef Borgalína á að ganga eftir, við könnum stöðu mála varðandi brúna. Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt ásamt samstarfsfélögum unnu norræna hugmyndasamkeppni fyrir 4 - 5 árum síðan, þar var margt spennandi á ferðinni, og Dagný flygir okkur á Kársnesið og við könnum hvort eitthvað sé verið að styðjast við hugmyndirnar, í þeirri uppbyggingu sem nú á sér stað. Við ræðum við Helgu Hauksdóttur formann skipulagsráðs Kópavogs og lítum í heimsókn til Bjarna Sigurbjörnssonar myndlistarmanns, sem býr og starfar í gömlu bílaverkstæði.
    52 min
  • 03122020 - Flakk - Flakk um Vogabyggð
    Skektuvogur, Trillu­vog­ur, Ark­arvog­ur, Báta­vog­ur, Kugga­vog­ur og Dróm­und­ar­vog­ur, og svo torg­in: Skutul­s­torg, Vörpu­torg, Sökku­torg og Öng­ul­s­torg, „Þau eru öll tengd skip­um. Margir spyrja sig vafalaust hvar eru þessar götur og torg, jú í nýju hverfi í vogunum, sem hefur fengið nafnið Vogabyggð. Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna borgin skipulagði þetta svæði sem atvinnusvæði á sínum tíma, því þetta er land sem tilvalið fyrir íbúabyggð. Með þéttingu byggðar var því ákveðið á sínum tíma að endurskipuleggja hverfið og byggja íbúðir og jafnframt halda í einhver af þeim fyrirtækjum sem þarna eru, sem ganga vel upp með íbúðabyggð. Hverfið í heild af­markast af Klepps­mýr­ar­vegi, Sæ­braut og Súðar­vogi. Í þættinum er rætt við Elías Guðmundsson verktaka og eiganda Sérverks og Ólöfu Örvarsdóttur sviðstjóra Umhverfis- og Skipulagssviðs borgarinnar, farið er í nýja Vogabyggð í fylgd Sigríðar Magnúsdóttur arkitekts, sem er deiliskipulagshöfundur hverfisins og byrjað við nýreista byggingu, sem arkitektar Teiknistofunnar Traðar hönnuðu en Sigríður er einmitt einn af arkitektunum.
    50 min
  • 26112020 - Flakk - Fjallað um Hlíðarendahverfi í Reykjavík
    Vestan við Hringbrautina er risið heljarinnar íbúðahverfi, sem er mjög áberandi í landslaginu. Hér er átt við Hlíðarendahverfi í landi Valsmanna. Nálægð við náttúrusvæði Öskjuhlíðar og Nauthólsvíkur og stórt íþróttasvæði við túnfótinn, er mikill kostur en ýmsir hafa lýst skoðunum sínum á hverfinu, vegna hæða húsanna, sem eru frá þremur uppí sex hæðir með lokuðum stórum inngörðum. Hér eru einungis fjölbýlishús, engin raðhús eða einbýli, en þjónusturými eru á neðstu hæðum margra byggingana. Er þetta hverfi í anda stefnu borgarinnar um þéttingu byggðar við Borgarlínu, en hún mun ganga í gegnum hverfið, þegar fram líða stundir. Við ræðum við Pawel Bartoszek varaformann samgöngu- og skipulagsráðs Reykjavíkur, Ólaf Hjálmarsson verkfræðing hjá Trivium, sem hefur sérhæft sig hljóðvist, en byrjum með Kristjáni Ásgeirssyni arkitekt hjá Alark, sem deiliskipulagði hverfið og hannaði nokkur húsanna.
    52 min
  • 19112020 - Flakk - Flakk um Græna planið - seinni þáttur Uppbygging
    Getum við séð fyrir okkur framtíðina í skipulagsmálum, í ljósi sögunnar þá er svarið nei. Ef við hugsum hundrað ár aftur í tímann, þá sáu menn engan vegin fyrir fólksfjölgun, bílaeign og fleira í þeim skipulagstillögum sem þá voru á borðinu, sem voru svo sem ekki margar. Síðar, eða um miðja síðustu öld var bíllinn í aðalhlutverki, en þá sáum við heldur ekki fyrir að gatnakerfið væri að niðurlotum komið eins og það lítur út í dag. Við höldum áfram að fjalla um viðauka aðalskipulags borgarinnar til ársins 2040. Við heilsum uppá landslagsarkitektinn Þráinn Hauksson hjá Landslagi, en hann hefur komið að skipulagsmálum borgarinnar í langan tíma, síðan í Hildi Björnsdóttur borgarfulltrúa minni hlutans í borginni og spyrjum hvað þau vilji sjá gerast í borginni og að lokum leitum við til Péturs Ármanssonar arkitekts og fræðimanns og spyrjum hvort yfirleitt sé hægt að skipuleggja langt inní framtíðina.
    52 min
  • 12112020 - Flakk - Flakk um uppbyggingu íbúða og græna planið
    Borgin blés til viðburðar á netinu fyrir skömmu undir yfirskriftinni uppbygging íbúða í Reykjavík og græna planið. Hér var verið að kortleggja framtíðina eins og borgaryfirvöld vilja sjá hana. Þarna var margt jákvætt á ferðinni svo það sé tekið fram og í tveimur þáttum ætlum við að ræða hugmyndafræðina og bak við þessa stefnu, heyra gagnrýnisraddir og skoða hvort planið sé raunhæft. Í þessum fyrra þætti er rætt við Björn Teitsson mastersnema í borgarfræðum, Ástu Logadóttur rafmagnsverkfræðing og birtusérfræðing, og Dag B. Eggertsson borgarstjóra og heyrum nánar af þessari áætlun.
    52 min
  • 05112020 - Flakk - Flakk um nýtt deiliskipulaga á Laugavegi og Vatnsst
    Fyrir skömmu var fjallað um hús í niðurníðslu í borgarlandinu hér á flakkinu og m.a. hús sem standa á horni Laugavegar og Vatnsstígs, þar bar nýtt deiliskipulag á góma, og því verður fjallað um það í þættinum í dag, skoðað og rætt um hvaða áætlanir eru í farvatninu. Fjögur hús, þrjú á Laugavegi 33-35 verða gerð upp og svo eitt á Vatnsstíg, hús sem hefur mikið varðveislugildi. Síðan verður byggt á baklóðinni Laugavegsmegin og frá þessu sérstaka steinsteypta húsi á Vatnsstíg niður að Hverfisgötu. Hæð nýju bygginganna verða 4 - 5 hæði, efstu hæðir inndregnar. Rætt er við Orra Árnason arkitekt hjá Zeppelin, en stofan gerir bæði deiliskipulag og hannar byggingareitinn. Einnig er rætt við Kristján Magnason framkvæmdastjóra Leiguíbúða, sem sér um framkvæmdir og Ólöfu Örvarsdóttur sviðstjóra umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar.
    52 min
  • 24102020 - Flakk - Flakk um Nýja Landspítalann - síðari þáttur
    Við erum í miðjum heimsfaraldri, hverju hefði það breytt ef Nýi Landspítalinn væri risinn? Ég ímynda mér að margir spyrji sig að því og ekki síst heilbrigðisstarfsfólk sem lifir og hrærist við hjúkrun og læknigar alla daga. Var hugsað fyrir öllu mögulegu þegar grunnhugmyndir um nýtt sjúkrahús voru reifaðar, engum grunaði að heimsfaraldur væri á næsta leiti, en byggingin er sveigjanleg og gert var ráð fyrir hópslysi t.d. sem nýtist einnig við faraldur. Við höldum áfram að fjalla um Nýjan Landspítala þættinum í dag, ræðum við Sigríði Sigþórsdóttur og Ögmund Skarphéðinsson arkitekta úr Korpus hópnum, sem stendur að hönnun byggingarinnar og Má Kristjánsson yfirlækni smitsjúkdóma á Landspítalanum.
    50 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.