Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • 27062020 - Flakk - Flakk um Listasafn Reykjavíkur Hafnarhúsi
    Hugmyndalistafólk er dulspekingar frekar en rökhyggjufólk. Þau hrapa að ályktunum sem ekki nást með rökum. Hér er vitnað í bandaríska listamanninn Sol de Witt, en verk hans eru nú til sýnis í Hafnarhúsi.
    Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi er 20 ára og af því tilefni lítum við í heimsókn. Hafnarhúsið var byggt sem pakkhús/vöruhús fyrir hartnær 80 - 90 árum síðan. Hafnarskrifstofur hafa verið í húsinu frá upphafi og eru enn, Pétur Ármannsson arkitekt rekur sögu húsins. Afráðið var kaupa hluta af húsinu fyrir Listasafn Reykjvíkur fyrir 20 árum. Þau Margrét Harðardóttir og Steve Christer arkitekar hjá Studio Granda voru fengin til verksins. Í safninu er nú sýning um safnið, sem er í höndum Ólafar Bjarnadóttur safnafræðings, þar sem sagan er rakin og Ólöf tengir þá frásögn við Tate museum of art í London, sem einnig var byggt til annara nota en listasafns og er jafngamalt safni Hafnarhússins. Ólöf Kristín Sigurðardóttir safnstjóri segir reksturin hafa gengið vel, og ekkert sé nema tækifæri við þróun safnsins í Hafnarhúsinu.
    52 min
  • 300052020 - Flakk Flakk um Ártúnshöfða - 2.þáttur
    Undirtitill: Tillögur 5 nemenda á öðru ári í arkitektúr við Listaháskóla Íslands
    Frelsið er yndislegt ég geri það sem ég vil, er sungið í þekktu dægurlagi, á námsárum hafa nemendur leyfi til að prófa sig áfram undir leiðsögn og njóta ef til vill meira frelsis en þegar á vinnumarkað er komið. Urban Lab Design Agency er vinnustofuprógramm sem keyrt hefur verið í námi við arkitektúr í Listaháskólanum. Verkefni annars árs nema snýst um nokkra staði og byggingar á Ártúnshöfða, sem hefur verið rammaskipulagður. Raunveruleikinn verður síðan allur annar, en sumt gæti vel komið til greina, eins og verndun gömlu Sementverksmiðju ríkisins, en Borgarsögusafn hefur lagt til að svo verði. Rætt er við Massimo Santanicchia prófessor við arkitektadeildina, Helenu Ósk Óskarsdóttur nema sem breytir byggingu Vörubílastöðvarinnar Þróttar í kirkju, Arísi Evu Vilhelmsdóttur nema sem vill eindregið að verndun Sementverksmiðjunnar verði að veruleika og leggur til að byggingin verði safn. Auk þess er rætt við Björn Guðbrandsson arkitekt hjá Arkís en stofan deiliskipuleggur nú einmitt á því svæði sem báðar þessar byggingar eru til húsa.
    Til að skoða verkefni nemana er slóðin: urbanlabdesignagency.cargo.site/
    50 min
  • 23052020 - Flakk - Flakk um Ártúnshöfða - 1.þáttur
    Undirtitill: Tillögur 5 nemenda á öðru ári í arkitektúr við Listaháskóla Íslands
    Síðast liðið haust hófu nemendur annars árs í arkitektúr við Listaháskóla Íslands vinnustofuverkefni undir leiðsögn prófessors Massimo Santanicchia sem þau nefndu Urban Lab Disign Agency. Markmiðið var að skoða þróunarverkefni borgarinnar á Höfða í Reykjavík. Árið 2015 vann arkitektastofan Arkís hugmyndasamkeppni um rammaskipulag á Höfða. Nemendurnir rannsökuðu svæðið og völdu einn og einn blett sem hönnunarverkefni. Í þessum fyrra þætti er rætt við Massimo Santacicchia prófessor og 3 nemendur um þeirra tillögur. Um er að ræða sundlaug sem Svava Ragnarsdóttir hannaði, Gömlu steypistöðina sem Eva Dögg Jóhannsdóttir hannaði og varðveitir gömlu byggingarnar og loks Magnús Jónsson sem kallar sína hönnun Mutualism/samhjálp, þar sem vinnustaður og íbúðir eru í sama húsi. Fjallað er um þessi verkefni auk þess er rætt um grundvallaratriði er varða arkitektúr og skipulag. Hægt er að skoða verkefnin á https://urbanlabdesignagency.cargo.site/.
    48 min
  • 16052020 - Flakk um nýtt deiliskipulag í Hamraborg í Kópavogi
    Hvernig verða miðbæir til?Í vangaveltum Pálmars Kristmundssonar arkitekts, sem er höfundur væntanlegarar deilskipulagsgerðar fyrir Hamraborg í Kópavogi segir:
    Hinn sögulegi miðbær borga einkennist oftast af almenningsrými, garði og/eða tjörn og oftast eru kirkjan og ráðhúsið ekki fjarri - einnig kringum afgerandi athafnasvæði; höfn eða vegamót. Nýir miðbæir lúta að mestu sömu lögmálum í dag.
    Þetta er allt til staðar í Hamraborg, utan höfnin, en það dylst engum að Hamraborg virkar ekki sem miðbær. Við ræðum tilurð miðbæja betur í þættinum. Fjallað er um Hamraborg í þættinum, rætt við Pálmar Kristmundsson arkitekt og gestir í stúdíó anddyri eru Helga Hauksdóttir fomaður skipulagsráðs Kópavogs og Aðalheiður Kristjánsdóttir landslagsarkitekt.
    54 min
  • 09052020 - Flakk um nýtt deiliskipulag í Skerjafirði
    Eins og allir vita hefur mikið verið byggt í Reykjavík síðustu ár, margt hefur tekist vel, annað ekki eins vel. Sum af þessu hverfum eru keimlík, stallaðar blokkir með mislitum framhliðum, kannski svolítið í tísku þessa dagana. Ekki hefur verið mikið um nýjungar, en ofanvatnslausnir hafa rutt sér til rúms, flokkunarstöðvar og góðar hljólageymslur, svona eitt og annað. Í þættinum er fjallað um nýtt deiliskipulag í Skerjafirði, sem Ask arkitektar hafa hannað.
    Segja má að skipulagið í Skerjafirði bjóði uppá ýmsar nýjungar, þar verða ekki bílakjallarar undir húsunum, heldur bílastæðahús og reiknað með verslun í því húsi. Einnig stefna sumir framkvæmdaaðilar að hagkvæmum íbúðum fyrir fyrstu kaupendur, Bjarg leigufélag, byggingafélag verkalýðsfélaganna hefur fengið vilyrði fyrir lóð og sömuleiðis stúdentar. Einnig verða mjög góðar almenningssamgöngur í og úr hverfinu.
    Rætt er við arkitektana Pál Gunnlaugsson og Þorstein Helgason frá Ask um deiliskipulagið. Einnig er rætt við Pétur Marteinsson framkvæmdastjóra Borgarbrags/Hoos sem hefur fengið viðyrði fyrir lóð og Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúa sem situr í skipulags- og samgönguráði.
    54 min
  • 02052020 - Flakk - Flakk um smáhýsi fyrir heimilislausa - 2.þáttur
    Fyrir skömmu var fjallað um smáhýsi fyrir heimilislausa hér á Flakkinu, og m.a. sagt frá samþykktu deiliskipulagi nokkurra húsa við Héðinsgötu í Laugarnesinu. Þetta skipulag var kært, og að endingu var það fellt úr gildi. Hver er þá staðan? Það hefur gengið erfiðlega að finna þessum 20 húsum lóðir í borginni. Heimilislausir eru þegar jaðarsettir í samfélaginu, því ber að forðast að jaðarsetja þennan hóp enn meira með því að koma húsunum fyrir í jaðri borgarinnar, enda verður að vera ýmis þjónusta í göngufæri fyrir þennan hóp.
    Finnum hefur tekist að koma sínum skjólstæðingum í hús, virðist vera með því að merkja ekki það húsnæði þeirra. Enda spyr maður sig, hver segir að allir í hverfinu þurfi að vita að þú sért með einhverja greiningu, eigir við vandamál að stríða, hinn almenni borgari er ekki spurður um neitt, þegar flutt er í nýtt hverfi.
    Rætt er við Svölu Jóhannesdóttur verkefnastýru Frú Ragnheiðar. Helgu Baldvins Bjargardóttur lögmann um að iðka mannréttindi. Ólöfu Örvarsdóttur sviðstjóra skipulagssviðs borgarinnar og Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur form umhverfis- og skipulagssviðs.
    51 min
  • 11042020 - Flakk - Flakk um smáhýsi fyrir heimilislausa
    Fjallað um smáhýsi, sem voru hönnuð að Steinari Sigurðssyni arkitekt, sem nú er látinn. Hann rak stofun Teikn arkitektaþjónusta. Skilaboð samfélagsins eru: Haldið ykkur heima, þá er eins gott að eiga einhvers staðar heima. Fjöldi manna eru heimilislaus hér á landi, en nú er reynt að bregðast við vandamálinu samkvæmt stefnu sem nefnist "húsnæði fyrst" sem hefur reynst vel víða á vesturlöndum. Rætt við Sólveigu Sigurðurardóttur arkitekt og verkefnastjóra hjá borgarskipulagi, Gunnstein R. Ómarsson verkefnastjóra húsnæðismála hjá skrifstofu borgarstjóra, Hrafnhildi Ólöfu Ólafsdóttur deildarstjóra málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir og loks Magneu Guðmundsdóttur arkitekt hjá Teiknistofunni Stiku sem deiliskipuleggur reit við Héðinsgötu í Laugarnesi fyrir smáhýsi.
    Umsjón: Lísa Pálsdóttir.
    51 min
  • 04042020 - Flakk - Flakk um skipulag
    Á tímum inniveru, setjumst við niður og ræðum skipulagsmál. En til hvers er skipulag? Borgir þenjast út eða þéttast og breytast en geta borgir þróast án skipulags? Erum við að skipuleggja of mikið? Hverjir eru kostir og gallar skipulagðrar byggðar? Hvert er samhengið í skipulaginu? Breytir skipulag lífi fólks? Breytir skipulagsfræðin borgarmenningu? Getum við skipulagt kaos? Hvar er fagurfræði óreiðunnar? Er skipulagsleysi andstætt hagsmunum almennings? Getur skipulag útilokað hópa? Hvernig getur skipulag lagt grunn að farsælu lífi borgarbúa? Rætt við Sigríði Magnúsdóttur arkitekt hjá arkitektastofunni Tröð og Bjarka Gunnar Halldórsson arkitekt hjá VA arkitektum.
    51 min
  • 14032020- Flakk - FLakk um Orkureitinn við Suðurlandsbraut
    Rætt hefur verið um þéttingu byggðar margoft á Flakkinu, og rýnt í hugmyndafræðina á bakvið þéttingu byggðar. Tilvalið er að taka reiti sem eru úr sér gengnir, svæði þar sem var ákveðin atvinnustarfsemi hefur verið en nú er hætt eða lokið. Orkureiturinn við Suðurlandsbraut, þar sem Rafmagnsveita Reykjavíkur var áður til húsa er einn af þeim reitum sem nú er verið að deiliskipuleggja. Í húsinu sem er gríðarstórt er nú Læknastöðin Orkuhúsið, en hluti af starfseminni er þegar fluttur burt, þó er þar enn einhver starfsemi. Deiliskipulagið er í höndum Alark arkitekta og Kristján Ásgeirsson arkitekt er þar í forsvari, rætt er við hann í þættinum. Mættir eru til leiks í stúdíó, þeir Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og nefndarmaður í umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar og Friðjón Sigurðsson framkvæmdastjóri þróunar frá Fjárfestingafélaginu Reitum, en félagið er handhafi lóðarinnar.
    51 min
  • 29022020 - Flakk - Fjallað um Kristínu Guðmundsdóttur híbýlafræðing
    Í bók Halldóru Arnardóttur listfræðing segir um Kristínu, "hún kom heim með ameríska eldhúsið". Kristín Guðmundsdóttir fór tvítug til náms í Chicago, hana dreymdi um að verða arkitekt, en það fag þótti ekki hæfa ungri konu í þá daga, en hún lagði upp frá Reykjavík árið 1943 með Brúarfossi í 70 skipa lest. Þetta er semsagt í miðju stríði. Kristín var við nám í 4 ár, og er hún fyrsti háskólamenntaði innanhúsarkitekt okkar Íslendinga. Eldhúsin urðu fljótt hennar allt og allt, en hún hannaði fjölda eldhúsa, m.a. með manni sínum Skarphéðni Jóhannssyni arkitekt. En hann var einn af okkar þekktu arkitektum á sínum tíma. Það var ekki auðvelt fyrir Kristínu að skapa sér feril, því flestir voru á þeirri skoðun að húsmóðir ætti að geta hannað sitt eldhús sjálf, kom því Kristín oft bakdyramegin eftir hádegi, egar eiginmaðurinn var í vinnu, til að mæla upp,
    Rætt við Halldóru Arnardóttur listfræðing, og farið í heimsókn í Selvogsgrunn 27, í hús sem Erlendur Einarsson forstjóri SÍS fékk Skarphéðinn til að hanna, en Kristín sá um eldhús og fleira í húsinu. Rætt við Vigdísi Jónsdóttur húsfreyju og skjalavörð Alþingis. Farið í heimsókn í Skildinganes 32 í annað hús sem Skarphéðinn hannaði og Kristín eldhúsið og rætt við Rúnu Alexandersdóttur húsfreyju og hjúkrunarfræðing.
    55 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.