Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • 12082021 - Flakk - Flakk um Héðinsreit
    Seint í júní á þessu ári var fjallað um tvo stóra byggingareiti í Reykjavík, Heklureit annars vegar og Héðinsreit hins vegar. Við tökum upp þráðinn í dag og fjöllum nánar um Héðinsreitinn. Deiliskipulag hefur verið samþykkt og hönnun reitsins er í fullum gangi. Hollenska arkitektastofan Jwantspejker með Orra Steinarsson arkitekt í farabroddi sá um deiliskipulagið, en mun einnig hanna eitthvað af þeim íbúðablokkum sem þarna munu rísa ásamt Hjalta Brynjarssyni arkitekt hjá Arþing Nordic, við ræðum við báða í dag. Þarna er ætlunin að byggja 330 íbúðir, en hvernig kemur þetta til með að falla að eldra umhverfi? Við erum að tala um atvinnusvæði, sem náði frá Seljavegi, yfir allan þennan reit að Ánanaustum. Nálæg íbúabyggð er lágreist, á Vesturgötu, Nýlendugötu og Seljavegi, hins vegar hefur þegar verið byggð nokkuð stór blokk við Mýrargötuna, og úti á Granda eru nokkur vegleg hús, því virðist viðmiðið vera við hærri byggð á svæðinu. Hér í stúdíói sitja Róbert Aron Róbertsson framkvæmdastjóri Festis, sem er eigandi lóðarinnar og Pawel Bartoszek formaður samgöngu- og skipulagsráðs borgarinnar.
    46 min
  • 24062021 - Flakk um Heklu- og Héðinsreit
    Borgarlína ræður miklu um hvar og hvernig borgin þéttist í á næstu árum. Til að standa undir rekstri Borglínunnar er nauðsynlegt að aðgengi að henni verði nálægt íbúðarhúsum þannig að möguleikar íbúa til notkunar þjónustunnar nýtist, og að íbúar sjái kostinn við að taka strætó, fekar en að nota einkabíl. Við ætlum að fjalla um tvo stóra byggingareiti í þættinum í dag, Heklureit og Héðinsreit, sá fyrri á Laugavegi og síðari vestur við Ánanaust. Það hefur tekið nokkuð langan tíma að skipuleggja Heklureitinn, og margt kemur til í því sambandi. Rætt við Ásdísi Helgu Ágústsdóttur arkitekt hjá Yrki.
    En svo er verið að þétta vestur í bæ, fjallað hefur verið um Steindórsreitinn hér í þættinum, en nú ætlum við líta aðeins á Héðinsreitinn, annar stór reitur með áætlun um yfir 300 íbúða. Framkvæmdir eru hafnar á hluta reitsins og beinum okkar augum þangað. Það er Hjalti Brynjarsson arkitekt hjá Arkþing Nordic sem er höfundur þessa hluta.
    50 min
  • 10062021 - Flakk um Nýlendugötu 34, það smáa og það stóra
    Við höfum byggt ansi stór fjölbýlishús undanfarin misseri. Markmiðið er að þétta byggðina, en einhvern vegin finnst manni stundum að hægt væri að þétta með öðrum hætti. Hvar eru minni fjölbýlishúsin, raðhúsin og einbýlishúsin? Við ætlum að skoða aðeins það smáa og stóra í þættinum í dag og heimsækja nýtt íbúðarhús á Nýlendugötu 34.
    Nú er aftur farið svo smátt að byggja timburhús, minnast má á stórbyggingu Hafró í Hafnarfirði, en ekki svo mörg íbúðarhús. Nett hús hefur risið á Nýlendugötu 34, það birtist bara allt í einu, einhvern vegin. Gabríel Þór Bjarnason er framkvæmdaraðili með ýmis plön og hann ásamt Hjálmari Sveinssyni eru gestir hér í stúdíói, einnig er rætt við arkitektinn Helga Mar Hallgrímsson hjá Arkþingi Nordica.
    51 min
  • 03062021 ? Flakk ? Flakk um híbýlaauð - síðari þáttur
    Það virðist enginn vita uppá hár hversu margar íbúðir eru í byggingu hér á Höfuðborgarsvæðinu og jafnvel úti á landi, eða hversu margar eru þegar tilbúnar. Það vantar rannsóknir á mörgum hliðum íbúðabygginga, öllum ber saman um það. Við hófum umfjöllun um Híbýlagæði í síðasta þætti og ræðum við fólk sem tók þátt í fundi í Norræna húsinu fyrir skemmstu. Yfirskrift fundarins var Híbýlagæði, og undirtitlar m.a. Lúxus fyrir alla, og Fyrir hverja er verið að byggja, það var Úrbanistan sem stóð fyrir fundinum, sem er arkitekta- og menningarstofa. Við ætlum að huga nokkuð að leigumarkaðnum í þessum þætti, hagkvæmum byggingum og óhagnaðardrifnum leigufyrirtækjum. Rætt verður við Hildi Gunnarsdóttur arkitekt hjá Borgarskipulaginu, en hún gerði samanburð á almennum leiguíbúðum í Danmörku og Íslandi í mastersritgerð sinni í Danmörku. Við ræðum við Björn Traustason framkvæmdatjóra Bjargs leiguíbúðafélags sem er sjálfseignarstofnun í eigu verkalýðsfélaganna, og við Björn Arnar Magnússon framkvæmdastjóra Brynju sem er byggingafélag Öryrkjabandalagsins. Einnig er rætt við Ásgeir Brynjar Torfason hagfræðing.
    52 min
  • 27052021 - Flakk um Híbýlagæði - fyrri þáttur
    Samræðufundur um húsnæðismál á vegum Úrbanistan var haldinn í Norræna húsinu þriðjudaginn 11.maí. Yfirskrift fundarins var HÍBÝLAAUÐUR, samtal um húsnæðismál á mannamáli. Þar bar ýmislegt á góma og meiningin er að reyna að koma efni fundarins til skila fyrir ykkur hlustendur góðir. Í þessum þætti verður rætt við Ásgeir Brynjar Torfason doktor í fjármálum, Hrefnu Björgu Þorsteinsdóttur & Hólmfríði Ósmann Jónsdóttur, arkitekta um rannsókn sem þær gerðu fyrir arkitektadeild Listaháskólans, er byrjum hjá Úrbanistan og hittum Önnu Maríu Bogadóttur arkitekt og menningarfræðing
    50 min
  • 13052021 ? Flakk ? Flakk um nýja stúdentagarða í Stakkahlíð
    Stúdentagarðar hafa risið í Reykjavík í mörg undanfarin ár, og eru víða í borginni, við ætlum að huga að nýjum görðum í Stakkahlíðinni bakvið Kennaraháskólann í dag. Rætt er við þau Guðrúnu Björnsdóttur framkvæmdastjóra Félagstofnunar Stúdenta og Böðvar Jónsson framkvæmdastjóra Byggingafélags námsmanna. Við skoðum einning teikningar og heimsækjum þessa nýju garða í fylgd arkitektsins Helga Mar Hallgrímssonar hjá Arkþing Nordic. Gamli garður er fyrsti stúdentagarðurinn hér á landi, og Guðmundur Hálfdánarson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands sagði frá í Flakki árið 2011 á afmælisári Háskólans, hvernig stúdentar söfnuðu sjálfir fyrir Gamla Garði, hann segir frá lífinu á garðinum, Garðsböllum, rannsóknaræfingum og fl.
    50 min
  • 06052021 ? Flakk ? Flakk um nýtt torg á Hlemmi og Borgarlínu
    Fjallað verður um nýtt torg á Hlemmi í þætti dagsins. Þegar húsið var tekið í notkun undir nafninu Áningarstaðurinn Hlemmi árið 1978 var þar blómaverslun, blaða- og ritfangaverslun, snyrtivöruverslun, skartgripaverslun, leikfangaverslun, ísbúð og sjoppa. Húsið átti að vera gróðursælt og stór svæði fóru undir lifandi plöntur í beðum, mikil dagsbirta lék um húsið og gluggarnir stóru sem mynda útveggi hússins tengdu starfsemina inni við lífið á götunum í kring.
    Því er ekki að neita að Hlemmur drabbaðist niður, en sú ákvörðun að breyta því í mathöll sló í gegn, en Hlemmur hélt einnig áfram að vera biðskýli fyrir fólk sem ferðast með strætó. Samkeppni um Hlemmtorg var haldin fyrir nokkrum árum, við höfum svo sem fjallað um það hér á Flakkinu en með tilkomu Borgarlínu verður þetta mikil breyting, bæði fyrir gesti og gangandi, íbúa og einkabíla. Við ræðum við Pawel Bartoszek varaformann umhverfis- og skipulagsráðs og Hrafnkel Á Proppé sem gegnir forstöðu verkefnis um Borgarlínu. En hönnuður hins nýja Hlemmtorgs er Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt hjá DLD, í samvinnu við sænsku arkitektastofuna Manda Works og er Martin Arfalk er aðalhönnuðurinn.
    50 min
  • 29042021 Flakk um Nóatún/Borgartún - nýbyggingar
    Borgartúnið í Reykjavík er ein undarlegasta gatan í Reykjavík að mati umsjónarmanns. Það er eins og hún viti ekki hvert hún er að fara og þannig virðist það hafa verið frá upphafi, þvílíkt er sundurleitið ef maður getur sagt sem svo. Margar nýjar hábyggingar hafa risið undanfarin ár, en einnig stakstæðar stórbyggingar, svo sem Höfðaborg, Arion banki, og svo austar Nýherji, Hús Samtaka Atvinnulífsins o.fl. Einnig hafa risið háar íbúðablokkir í Túnunum og nú er ein slík að fara að rísa við horn Nóatúns og Borgartúns. Margar þessara bygginga eru fínustu hús, en tala ekki endilega alltaf saman. Stundum er Reykjavík kölluð borg "sundurleitninnar" og þarna stendur sú lýsing fullkomlega undir nafni. Rætt við Frey Frostason arkitekt hjá THG, Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúa og Magnús Magnússon framkvæmdastjóra E3, sem er framkvæmdaaðili lóðarinnar.
    Umsjón: Lísa Pálsdóttir.
    50 min
  • 22042021 - Flakk - Flakk um Garðahverfi
    Það er sjaldgæft að einkaaðliðar kosti deiliskipulag, Garðafélagið kostaði deiliskipulagið í Garðahverfi. Framtíðaráform skipulagsins er afar djarft og rómantískt kannski. Í hluta greinargerðar um skipulagið segir.............
    Garðahverfið er friðsæll staður sem ber vitni um tímans rás. Í Garðahverfi er hægt að fylgjast með gangi tímans út frá breytileika himinhvolfsins, landslagsins, lífríkisins, byggðarinnar, árstíðanna og sólarhringsins. Þessi gangur tímans birtist m.a. í mismunandi stjörnum á himni eftir mánuðum, ólíkum fuglategunum sem sækja Garðahverfið heim vor og haust, breytingum á vatnafari og litum gróðurs eftir árstíðum, þróun í byggingarefnum, leifum fyrri landnotkunar og byggðar, flóði og fjöru og birtu. Rætt við Arinbjörn Vilhjálmsson arktiekt og skipulagsstjóra Garðabæjar, Pétur Ármannsson arkitekt og sviðsstjóra hjá Minjastofnun og Hrefnu Róbertsdóttur sagnfræðing og Þjóðaskjalavörð.
    51 min
  • 15042021 ? Flakk ? Flakk um Garðahverfi frá 2010
    Við tökum stefnuna suður á Álftanes. Fyrir tæpum 11 árum gerði undirrituð 3 þætti um sögu og skipulag á Álftanesi. Einn þáttanna fjallaði um Garðahverfi, sem er eiginlega sveit í borg. Þar er enn búið á nokkrum bæjum og mikil saga um búsetu í þéttbýlli sveit á sínum tíma. Nú hefur Garðabær enn staðfest áætlun um að halda í þennan sérkennilega stað í borgarlandinu, en samt að leyfa uppbyggingu með skilyrðum. Í þessum þætti hverfum við til baka til 2010 og göngum um Hausastaðalandið í fylgd Jónatans Garðarssonar, ræðum við skipulagsstjóra Garðabæjar Arinbjörn Vilhjálmsson arkitekt en byrjað er í Króki og heilsað uppá systurnar Elínu og Vilborgu Vilmundardætur, en þær, ólust upp í Króki, litlum burstabæ sem er beint á móti félagsheimilinu Garðaholti.
    52 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.