Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • 03022022 - Flakk um samkeppnir á íbúðarmarkaði
    Faxaflóahafnir sf í samstarfi við Arkitektafélag Íslands auglýsa eftir teymi til að vinna þróunaráætlun fyrir Gömlu höfnina í Reykjavík.
    Þessi auglýsing er ein af mörgum sem hafa birst að undanförnu, þetta á ekki bara við um Reykjavík - því samkeppnisauglýsingar í minni bæjum hafa líka birst undanfarið. Við ætlum að fræðast aðeins um samkeppnir í þætti dagsins. Gamla höfnin, það er svæðið næst Austurbakka og Hafnartorgi, svæði sem oft hefur verið nýtt við hátíðahöld ýmis konar ekki síst á Sjómannadaginn. Rætt er við nokkra aðila þætti dagsins ? Pawel Bartoszek formaður samgöngu- og skipulagsráðs borgarinnar segir frá afstöðu borgarinnar til hafnarsvæðisins, Sigríður Maack arkitekt fræðir okkur um tilgang og fleira í sambandi við samkeppnir, en við skulum byrja á að heyra frá Hildi Gunnlaugsdóttur arkitekt, sem er skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna
    50 min
  • 27012022 - Flakk - Flakk um gæði íbúðarhúsnæðis - síðari þáttur
    Við sjáum það greinilega þegar við upplifum gæði, göngum hverfi sem eru vel skipulögð, komum í innganga sem ganga fullkomlega upp og svo inní íbúðir sem eru vel hannaðar og vel skipulagðar. Við höfum verið að skoða gæði í nýju húsnæði og spyrjast fyrir um reglugerðir og eftirlit. Við höldum ferðinni áfram í dag, ræðum við Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðing í fjármálum, því fjármögnun skiptir verulegu máli þegar verið er að byggja. Einnig er rætt við Jón Benjamín Einarsson formann byggingafulltrúa um tæknileg atriði, reglur og galla. En byrjum með Kristjáni Erni Kjartanssyni arkitekt hjá Krads arkitektum
    50 min
  • 20012022 - Flakk - Fjallað um gæði íbúðarhúsnæðis - fyrri þáttur
    Hugað er að gæðum íbúðarhúsnæðis. Er hægt að mæla gæði og hvað eru gæði íbúðar? Og margar fleiri spurningar varðandi hönnun og byggingatækni koma við sögu. Hver hefur eftirlit með gæðum bygginga? Hjá Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun segir um stefnu og tilganga stofnunarinnar......
    Hlutverk okkar er að vernda líf og heilsu manna, eignir og umhverfi með því að tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar og virkt eftirlit með gæðum, öryggi og heilnæmi. Að auka aðgengi almennings að viðunandi húsnæði á viðráðanlegu verði, hvort sem er til eignar eða leigu. Að meta framtíðarþörf og áætla framboð húsnæðis og stuðla þannig að auknum stöðugleika á húsnæðismarkaði.
    En er það svo? Er eftirfylgni nógu mikil? Rætt er við Hildi Gunnarsdóttur arkitekt, Bjarka Gunnar Halldórsson og Stefán Þór Steindórsson byggingafræðing hjá Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun.
    51 min
  • 16122021 ? Flakk ? Flakk um Hverfisskipulag nr.3 Háteigs og Hlíða
    Svokölluð hverfaskipulög hafa verið líta dagsins ljós síðustu árin, Ævar Harðarson arkitekt hjá skipulaginu er deildarstjóri verkefnisins, og tilgangurinn er að rýna í hverfin endurskoða skipulag hvers hverfis og skoða hvort eitthvað megi betur fara og horfa til framtíðar að sjálfsögðu. Við ætlum að skoða Hverfisskipulag númer 3, það er Háteigs, Hlíða og Öskjuhlíðarhverfi, sem er reyndar í þróun. Rætt er við Ævar í Skipholti og Brautarholt, þar sem hann segir m.a. frá nýju torgi við horn Skipholts og Einholts. Gestir í stúdíói eru Helga Bragadóttir arkitekt hjá Kanon en hún var ráðgjafi við gerð skipulagsins og Pawel Bartoszek formaður samgöngu- og skipulagsráðs borgarinnar.
    50 min
  • 09122021 - Flakk - Fjallað um Þóri Baldvinsson arkitekt
    Þórir Baldvinsson var í senn framúrstefnumaður í arkitektúr og hugsjónamaður í baráttu fyrir bættum húsakosti til sveita. Hann varð fyrstur íslenskra arkitekta til að kynna nýjar húsnæðislausnir í anda funksjónalisma og var frumkvöðull í gerð slíkra bygginga hér á landi eins og samvinnuhúsanna svokölluðu við Ásvallagötu í Reykjavík og við Helgamagrastræti á Akureyri. Þar kynnti Þórir fyrstur manna til sögunnar forskölun í húsbyggingum hér á landi. Þórir teiknaði einnig fjölmargar opinberar byggingar; héraðsskóla, kaupfélagshús, samkomuhús og verksmiðjuhús vítt og breitt um landið og þekktar byggingar í Reykjavík eins og Alþýðuhúsið við Hverfisgötu og Mjólkurstöðina við Laugaveg sem nú hýsir Þjóðskjalasafnið. Helsta starf Þóris var hinsvegar að veita Teiknistofu landbúnaðarins forstöðu á árunum 1938-1969. Þáttur hans í nútímavæðingu sveitanna var gríðarstór, bættur húsakostur sem hélst í hendur við vélvæðingu. Hér gefur að líta í fyrsta sinn yfirlit verka Þóris ásamt æviágripi hans. Ólafur J. Engilbertsson ritstýrir bókinni en auk hans skrifa greinar Árni Daníel Júlíusson, Jóhannes Þórðarson, Ólafur Mathiesen og Pétur H. Ármannsson sem jafnframt tekur saman verkaskrá Þóris. Úlfur Kolka sér um útlit bókarinnar en hana prýðir fjöldi ljósmynda og teikninga.
    52 min
  • 02122021 - Flakk ? Flakk um skipulagsdaginn 12. Nóvember - 2.þáttur
    Draumaborgin ætti að vera ríkulega gædd náttúru, með byggingum úr lífrænum efnum sem eru umkringdar almenningsgörðum, með götum sem þjóna fótgangandi og hjólandi og með svæðum þar sem villt náttúra fær notið sín.
    Þetta mun kanadíski arkitektinn Michael Green hafa sagt, sem Hildigunnur Sverrisdóttir deildarforseti arkitektúrs í Listaháskóla Íslands, vitnaði í, í sínu erindi á Skipulagsdeginum 12. Nóvember síðast liðinn. Yfirskrift ráðstefnu sem haldin var í tilefni dagsins á vegum Skipulagsstofnunar Íslands var. ?Skipulag fyrir nýja tíma?. Í þessum síðari þætti skoðum við nýtt skipulag í miðbæ Hafnarfjarðar, sem Þorsteinn Helgason arkitekt hjá Ask arkitektum segir okkur frá og skipulag umhverfis í nýjum og vistvænum Skerjafirði, sem Rebekka Guðmundsdóttir borgarhönnuður segir okkur frá. En við byrjum hjá Hildigunni Sverrisdóttur arkitekt og deildarforseti í Listaháskólanum.
    51 min
  • 25112021 - Flakk - Flakk um skipulagsdaginn og skipulag til framtíðar
    Árleg ráðstefna um stöðu og þróun skipulagsmála, sem Skipulagsstofnun stendur fyrir í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, fór fram 12. nóvember síðastliðinn í Salnum í Kópavogi. Ráðstefnan var vel sótt, af bæði gestum í sal og í streymi og var góður rómur gerður að dagskrá og einstökum framlögum. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár var Skipulag fyrir nýja tíma - þar sem loftslagsmál, sjálfbær og aðlaðandi byggð og aðlögun skipulags gagnvart loftslagsbreytingum og náttúruvá voru í forgrunni. Við ætlum að plokka út nokkra af þeim sem töluðu á ráðstefnunni í tveimur þáttum - það er að mörgu að huga í samtímanum varðandi skipulag. Rætt er við Þráinn Hauksson landslagsarkitekt, Hörpu Stefánsdóttur arkitekt og doktor í skipulagsfræðum og starfar við umhverfis- og lífvísindaháskólann í Osló, en byrjum hjá Ásdísi Hlökk Theódórsdóttur forstjóra Skipulagsstofnunar
    46 min
  • 18112021 ? Flakk um mastersnám í arkitektúr við Listaháskóla Íslands
    Listaháskólinn fékk starfsleyfi 10.júní 1999 og hóf þá um haustið starfsemi sína með rekstri myndlistardeildar. Skólinn hóf síðan rekstur sjálfstæðrar hönnunardeildar 2001 og ári síðar var tekið upp nám í arkitektúr, vöruhönnun og fatahönnun. Allar listgreinar eru kenndar við Listaháskólann, auk myndlistar, eru ýmis fög innan leiklistar, ýmis fög innan tónlistar, kennaranám til listkennslu, svo eitthvað sé talið upp. En eins og áður sagði var arkitektadeildin stofnuð árið 2001, loks eftir mikið samtal ýmissa aðila sem málið varðar er hafin mastersdeild í arkitektúr og tilvalið að líta í heimsókn í Þverholtið, þar sem hönnun og arkitektúr á heima innan skólans. Við ætlum að heilsa uppá Hildigunni Sverrisdóttur deildarforseta, Önnu Maríu Bogadóttur lektor og svo auðvitað nemendur, og ræðum við Rakel Kristjönu Arnardóttur, Odd Gunnarsson Bauer og Katrínu Heiðar.
    52 min
  • 14112021 - Flakk um Laugaveg - nýja bók
    Hjónin Guðni Valberg arkitekt og Anna Dröfn Ágústsdóttir sagnfræðingur eru gestir þáttarins í dag. Innan skamms er bók þeirra um Laugaveg í Reykjavík væntanleg og segir sögu húsanna og fólksins sem bæði bjó og rak ýmis konar fyrirtæki. Í bókinni er rakin saga húsa við Laugaveg, frá Hlemmi að Lækjargötu. Guðni og Anna Dröfn gáfu út bókina Reykjavík sem aldrei varð fyrir nokkrum árum. Rætt er við þau og tekin göngutúr niður Laugaveg frá Klapparstíg, sagt frá húsum, arkitektum, fyrirtækjum og búsetu - en Laugavegur var fyrst og fremst íbúagata í upphafi.
    50 min
  • 04112021 - Fjallað um nýtt rit Gunnlaugs Stefáns Baldurssonar
    Við lifum í heimi, sem við höfum ekki lært að skoða, segir Marc Augé í Non Lieux. Eða Non places, sem hvorki hafa sögu nér sál, staðir þar sem félagsleg sambönd geta ekki dafnað. Ég tel mikilvægt að horfa á þátíð, nútíð og framtíð í allri skynjun í lífinu. Og það gildir vissulega um mótun umhverfis, sem tvinnast á flókinn hátt saman borgum og landslagi.
    Þannig hljóma upphafsorð í væntanlegu riti um skipulag og borgarmyndun sem ber heitið Fléttað inn í borgarvefinn og landslagið, eftir Gunnlaug Stefán Baldursson arkitekt. Við ætlum að heilsa uppá Gunnlaug í þætti dagsins og fá okkur göngutúr um miðborg Reykjavíkur. Við mæltum okkur mót að morgni dags í nýuppgerðu húsnæði Máls og Menningar
    48 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.