Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • 28102021 - Flakk um nýtt Hverfisskipulag í Bústaðahverfi
    Tillögurnar eru í kynningar og samþykktarferli - en á meðal helstu breytinga er að við Bústaðaveg rísi sautján tveggja hæða hús. Reiknað er með allt að 150 nýjum íbúðum á efri hæðum - og atvinnu- og þjónustustarfemi á götuhæðum. Landhalli gefur möguleika á bílakjöllurum undir húsunum og ráðgert er að með því muni bílastæðum við Bústaðaveg fjölga um hundrað.
    Rætt er við Ævar Harðarson arkitekt og deidarstjóra Hverfisskipulags Reykjavíkur, Pawel Bartoszek formann skipulags- og samgönguráðs Rvk. og Dóru Magnúsdóttur form. íbúasamtaka Bústaða- og Háaleitishverfis.
    50 min
  • 21102021-Flakk - Flakk um byggingaarfleið
    Við eins mikla uppbyggingu íbúðahúsnæðis og raunin er þessi árin, er óhjákvæmilegt að einhver hús séu rifin, sum eru slitin og úr sér gengin en við önnur er vel hægt að setja spurningarmerki, þurfti að rífa þau og er þetta ekki stundum spurning að hugsa út fyrir boxið. Heimildarmyndin Jarðsetning var frumsýnd á Riff, myndin er eftir Önnu Maríu Bogadóttur arkitekt og menningarfræðing, en þar er fylgst með jarðsetningu gamla Iðnaðarbankans eða Íslandsbanka í Lækjargötunni, verulega áhugaverð kvikmynd, sem vert er að horfa á góðir hlustendur. Það eru engin smáátök við að rífa niður svona stóra byggingu. Við ætlum að fjalla aðeins um niðurrif húsa, hlutverk húsa og verndun í þætti dagsins. Hér í stúdíói sitja Hilmar Þór Björnsson arkitekt og Henný Hafsteinsdóttir arkitekt hjá Minjastofnun Íslands. En við byrjum við horn Suðurlandsbrautar og Grensásvegar, en þar stendur til að byggja þétt íbúðarhverfi - og því fylgir niðurrif ákveðinna bygginga á reitnum
    50 min
  • 14102021 - FLakk - Flakk um Smárann í Kópavogi - nýtt blokkar hverfi
    Árið 1957 keypti Kópavogsbær land Digraness og Kópavogs og gat þá skipulagt það til lengri tíma. Á áratugunum á eftir var hröð uppbygging í innviðum svo sem menntun og heilbrigðis- og félagsþjónustu. Á sama tíma varð mikill vöxtur í ýmiss konar iðnaði og þjónustu í bænum. Í lok 9. áratugarins voru aðalatvinnugreinar í Kópavogi húsgagnaiðnaður, matvælaiðnaður, bifreiðaumboð og almenn verslun. Árið 1958 var lokið við fyrsta skipulagsuppdrátt Kópavogs. Á næstu áratugum voru talsverðar deilur um skipulagsmál í bænum, einkum vegna hraðrar umskiptingar úr sveit í þéttbýli en einnig vegna landadeilna við Reykjavík. Miðbær Kópavogs var hannaður í áföngum á 8. áratugnum og framkvæmdum við Hamraborg var að mestu lokið árið 1984.[10] Frá 1990 hefur íbúafjöldi Kópavogs tvöfaldast og stórt verslunar- og þjónustuhverfi risið í Kópavogsdal. Austan Reykjanesbrautar hefur verið mikil uppbygging og þar risið íbúðahverfi kennd við Lindir, Salir, Kórar, Þing og Hvörf. Smáratorg var opnað árið 1997, verslunarmiðstöðin Smáralind árið 2001 og hinn 20 hæða turn á Smáratorgi 3 árið 2008.
    Og þá erum við mætt á svæðið sem fjallað verður um í þætti dagsins, og fengið hefur nafnið Smárinn. Rætt verður við Ingva Jónasson framkvæmdastjóra Klasa, en Klasi hefur unnið að þróun og uppbyggingu á svæðinu og Helgu Hauksdóttur formann skipulagsráðs Kópavogs. En við byrjum með arkitektunum að hluta húsanna, en það eru þau Halldór Eiríksson og Sóley Lilja Brynjarsdóttir hjá Tark og við höldum í Hátúnið
    48 min
  • Flakk um endurnýtingu bygginga
    Afleiðingar ákvarðana dagsins í dag í mannvirkjagerð móta umgjörð um daglegt líf okkar og kynslóðanna sem á eftir koma. Borgin hefur byggst á löngum tíma, þó svo að höfuðborgin og bæir um landið hér, séu unglingar í stærra samhengi. Virðing fyrir liðinni tíð, skipulagningu og notkun er menningararfleið, sem þarf að umgangast af ákveðinni virðingu og nærgætni.
    Við ætlum að huga að endurnýtingu í stórum dráttum í þættinum í dag. C 40 er alþjóðleg samkeppni með yfirskriftinni Reinveting cities eða enduruppgötvun borga. Fyrstu verðlaun komu til Íslands í fjórða sinn enda hugmyndin stórbrotin og frumleg, við ræðum við Maríus Þór Jónasson byggingaverkfræðing og verkefnastjóra fjölmenns hóps sem vann að þróun hugmyndarinnar. Við heyrum í Vigni Frey Helgasyni arkitekt og borgarfræðings, sem starfar í Osló, en byrjum með Bjarka Gunnari Halldórssyni arkitekt, sem skrifaði skemmtilega grein í Kjarnan fyrir skemmstu um arkitektúr og pólitík
    51 min
  • 23092021 ? Flakk ? Flakk um Laugaveg göngugötu - síðari þáttur
    Skólavörðustígurinn er ein vinsælasta gatan í miðborginni, þar er alltaf fullt af fólki. Gatan er ein af þeim sem breyttist í göngugötu þegar ákveðið var að loka Laugaveginum fyrir umferð. Skólavörðustígurinn er með eldri götum bæjarins, en byggð við götuna hófst uppúr miðri 19 öldinni og fram yfir aldamótin 1900. Verslanir hafa verið margar og um tíma var gatan eins konar hönnunargata, og er raunar enn í dag að hluta. Við ræðum við Kristbjörgu Guðmundsdóttur iðnhönnuð og Vilborgu Guðjónsdóttur arkitekt frá Mstúdíó, og hér í stúdíói sitja Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt en hún er verkefnastýra breytinganna. En byrjum með Lilju Kristínu Ólafsdóttur úr hönnunarhópi Skólavörðustígs, en auk hennar eru í hópnum Sigurður Árni Sigurðsson myndlistarmaður og Karl Kvaran arkitetkt.
    49 min
  • 16092021 Flakk um Laugaveg göngugötu
    Umhverfinu er gjarnan líkt við leiksvið þar sem lífið fer fram. Gæði umhverfis skiptir höfuðmáli fyrir andlega, félagslega og líkamlega vellíðan mannsins. Fjölbreytt opin svæði stór og smá, manngerð eða náttúruleg, líma saman byggð og ból. Þau eru lungu lifandi samfélagsins.
    Í dag ætlum við í bæinn, við ætlum að skoða nýjar tillögur um göngugöturnar í miðbænum, þ.e. Laugaveg, Vegamótastíg, Skólavörðustíg og Bankastræti. Þrír hópar hafa verið valdir til leiks, og ólíkar hugmyndir hafa litið dagsins ljós. Laugavegur var lengi vel aðal verslunargatan í Reykjavík ásamt Austurstræti, þróunin hefur hins vegar orðið sú að verslun hefur fluttst í Kringlur og Smáralindir, en enn eru margar fínar og spennandi búðir auk veitingastaða á Laugavegi og í umræddum götum. Við skoðum tillögur tveggja hópa í dag. Í þessum fyrri þætti af tveimur er rætt við Ragnhildi Skarphéðinsdóttur landslagsarkitekt hjá Hornsteinum og Kristján Kristjánsson lýsingarhönnuð og síðan Jóhann Sindra Pétursson landslagsarkitekt hjá Landmótun og Nils Wiberg hjá Gagarín.
    Umsjón: Lísa Pálsdóttir.
    50 min
  • 09092021 - Flakk - Flakk um búsetuúrræði eldri borgara - Sléttan
    Uppbygging og skipulag snýst ekki bara um götur og byggingar, samfélagsmál af ýmsum toga eru ekki síst áríðandi. Húsnæði fyrir mismunandi hópa með mismunandi þarfir. Við ætlum að beina augum okkar að Sléttunni, þar er bæði hjúkrunarheimili og sjálfstæðar íbúðir fyrir 60 +, en þjónustumiðstöð í eigu borgarinnar tengir byggingarnar, Hrafnista rekur Sléttuna og sér einnig um rekstur þjónustumiðstöðunnar. Við heyrum frá Sigurði Garðarssyni framkvæmdastjóra Sjómannadagsráðs, Heiðu Björg Hilmisdóttur formanni Velferðarráðs borgarinnar en byrjum í heimsókn hjá Halldóri Guðmundssyni arkitekt á teiknistofunni THG.
    52 min
  • 02092021 ? Flakk ? Flakk um áfangahús á Bergþórugötu
    Uppbygging félagslegs húsnæðis í Reykjavík hefur stóraukist undanfarin ár, borgin hefur farið fram á ákveðin fjölda íbúða í nýjum fjölbýlishúsum, og sett slíkt skilyrði við úthlutun lóða. Einnig hafa verkalýðsfélögin byggt leiguhúsnæði undir merkjum Bjargs. Við ætlum á Skólavörðuholtið í dag, þar er að ljúka byggingu áfangahúss fyrir jaðarsettan hóp, innan nýs deiliskipulags sem arkitektar A2F hafa gert, við ræðum við Aðalheiði Atladóttur höfund skipulagsins. Við bregðum okkur á holtið og skoðum okkur um ? en að mínu mati hefur tekist afar vel til, en þetta nýja fjölbýlishús smellur inní götumyndina, og virkar eins og það hafi alltaf verið þarna, höfundar eru Þorleifur Eggertsson og Jóhann Sigurðarson arkitektar hjá Tendru. Hér í stúdíói sitja Eygló Harðardóttir og Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir, til að ræða uppbyggingu húsnæðis jaðarsettra hópa í borginni.
    49 min
  • 26082021 - Flakk - Flakk um Skógarveg
    Margir hafa haft orð á, vegna þéttingu byggðar á Höfuðborgarsvæðinu bæri að varast að ganga á grænu svæðin í borginni. Vissulega hafa nokkrir grænir grasbalar horfið undir hús, og nokkur tré hafa einnig verið felld, en þetta hefur ekki verið gert í stórum stíl að mínu viti. Nú hefur verið byggt í Fossvogi um langt skeið og enn er verið að byggja fjölbýlishús vestast í voginum, þar fyrir neðan er Skógrækt Reykjavíkur og verið þar óáreitt að ég held um langa hríð. Við ætlum að skoða okkur aðeins um á Skógarvegi í dag, og skoða þar nýtt fjölbýlishús, sem senn er tilbúið. En við skulum huga aðeins að sögu Skógræktar. Rætt við arkitektana Guðmund Gunnlaugsson og Ellert Hreinsson frá Archus. Í stúdíói sitja Auður Kjartansdóttir framkvæmdastjóri Skógræktar Reykjavíkur og Karl Raymond Birgisson framkvæmdastjór Dverghamra sem byggir á Skógarveginum.
    47 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.