Þessa dagana er verið að vekja máls á fækkun bensínstöðva í borginni. Þetta hefur ýmislegt að segja um lóðirnar sem þær standa á, sem eru misstórar og mismikil saga stöðvanna sjálfra og þjónustustig við bíla í hverfunum. En umræðan er langt í frá ný af nálinni.
Bensínstöð Shell í miðbæ Reykjavíkur í kringum 1930.
Stöðin var upphaflega við Lækjartorg, þegar bensíngeymi var komið niður árið 1922. Bensínstöðvarnar í miðbænum sættu ávallt gagnrýni útfrá fegurðarsjónarmiðum og var umrædd stöð flutt af Lækjartorgi í Hafnarstræti fyrir Alþingishátíðina árið 1930. Staðsetning bensínstöðva var áfram umdeild í augum bæjarbúa og yfirvalda, sérstaklega þær sem voru staðsettar í hjarta bæjarins. Nú er verið að fækka stöðvum í íbúðahverfum borgarinnar. Rætt er við Pétur Ármannsson arkitekt og byggingalistfræðing um varðveislu og endurnýtingu bygginga á bensínstöðvarlóðum, og hvar eiga menn að taka bensín, og á að byggja 5 ? 7 hæða blokkir á lóðunum, hvað verður um aðra þjónustu sem tengist umhirðu bílanna, svo sem dekkjaskipti, smurningu og fl. Við ræðum við Harald Sigurðsson skipulagsfræðing hjá skipulaginu í Reykjavík, Runólf Ólafsson framkvæmdastjóra FÍB.