Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • 06102022 ? Flakk um nýsköpun í Gufunesi
    Það er ótrúlega spennandi að fylgjast með nýju hverfi í Gufunesi. Þar er bæði verið að byggja nýjar íbúðir og gömlu byggingar Áburðarverksmiðjunnar eru fullar af lífi. Sumar byggingarnar eru í eigu borgarinnar, sem hefur boðið húsnæðið til leigu, en einnig eru nokkrar þeirra í einkaeigu. Ekki svo langt síðan við vorum á Flakki þarna, en í dag ætlum við að heilsa uppá nokkra þeirra sem njóta lágrar leigu í skemmtilega skapandi umhverfi.
    Rætt er við Óskar Arnþórsson, Baldur Helga Snorrason og Gunnar Egilsson arkitekta. Björn Loka Björnsson og Elsu Jónsdóttur listafólk, Dag Kára Pétursson tónlistar- og kvikmyndagerðarmann og Pawel Bartoszek varaformann umhverfis- og skipulagsráðs
    50 min
  • 22092022 ? Flakk um Þorpið Vistfélag, Gufunes og Ártúnshöfða
    Merkjanlega er hugarfarsbreyting að eiga sér stað í skipulags- og byggingaframkvæmdum - enginn er maður með mönnum nema hugað sé að hringrásarhagkerfinu, vottunum ýmis konar og mörgu mörgu fleira. Við heimsækjum arkitektastofuna Yrki og ræðum við Sólveigu Berg arkitekt um C 40 samkeppnina, förum á bryggjuna í Gufunesi, og heilsum einnig uppá Áslaugu Guðrúnardóttur og Guðnýju Maríu Jóhannsdóttur hjá Þorpinu Vistfélagi, en byrjum hjá Yrki á Mýrargötunni vestur í bæ
    50 min
  • Flakk um nýtt torg á Hlemmi
    Fjallað verður um nýtt torg á Hlemmi. Þegar húsið var tekið í notkun undir nafninu Áningarstaðurinn Hlemmi árið 1978 var þar blómaverslun, blaða- og ritfangaverslun, snyrtivöruverslun, skartgripaverslun, leikfangaverslun, ísbúð og sjoppa. Húsið átti að vera gróðursælt og stór svæði fóru undir lifandi plöntur í beðum, mikil dagsbirta lék um húsið og gluggarnir stóru sem mynda útveggi hússins tengdu starfsemina inni við lífið á götunum í kring. Því er ekki að neita að Hlemmur drabbaðist niður, en sú ákvörðun að breyta því í mathöll sló í gegn, en Hlemmur hélt einnig áfram að vera biðskýli fyrir fólk sem ferðast með strætó. Samkeppni um Hlemmtorg var haldin fyrir nokkrum árum, við höfum svo sem fjallað um það hér á Flakkinu en með tilkomu Borgarlínu verður þetta mikil breyting, bæði fyrir gesti og gangandi, íbúa og einkabíla. Við ræðum við Pawel Bartoszek varaformann umhverfis- og skipulagsráðs og Hrafnkel Á Proppé sem gegnir forstöðu verkefnis um Borgarlínu. En hönnuður hins nýja Hlemmtorgs er Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt hjá DLD, í samvinnu við sænsku arkitektastofuna Manda Works og er Martin Arfalk er aðalhönnuðurinn. Umsjón: Lísa Pálsdóttir.
    50 min
  • 15092022 - Flakk - um ný timburhús í borginni
    Gömlu timburhúsin og timburkirkjurnar eru mikilvægur hluti af byggingararfi okkar. Þrátt fyrir að fæst þeirra séu eldri en 150 ára eru þau okkur jafn mikilvæg og margra alda gömul hús annarra þjóða. Í mörgum þeirra rís íslensk byggingarlist hátt vegna formfegurðar og mikils notagildis. Hlutföll og stærð herbergja er oft í góðu jafnvægi, auk þess sem gjarnan hefur tekist vel til um staðsetningu glugga, stærð þeirra og gerð, þannig að t.d. dreifing birtu er með ágætum. Því miður virðist þessum grundvallarþáttum of oft ábótavant í byggingarlist nútímans. Gömlu timburhúsin eru ýmist klædd timbri eða bárujárni. Bárujárnsklædd íbúðarhús tíðkast varla annars staðar í heiminum. Það má því líta á þau sem sérstakt framlag Íslendinga til byggingarlistarinnar. Timburklæddu húsin minna hins vegar á hús byggð annars staðar á Norðurlöndum. Timbur hefur ekki verið í hávegum í nýbyggingum, en undanfarin fáu árin hafa þó risið nokkur timburhús, en með töluvert öðrum áherslum en gerðist hér á síðustu öld. Mjög svo fræðandi skýrsla um uppgjör og varðveislu gamalla húsa, sem er aðgengileg á netinu fyrir almenning.
    Við ætlum að huga að nýjum timburhúsum í þætti dagsins, þ.e. íbúðarhúsum. Í Úlfarsárdal er verið að byggja 12 íbúða fjölbýlishús, sem Ásgeir Ásgeirsson arkitekt hjá Tark hannaði og í Furugerði 10 er verið að byggja raðhús og tvö fjölbýlishús sem Arnar Þór Jónsson arkitekt hjá Arkís hefur hannað og við byrjum hjá honum.....
    50 min
  • 01092022 - Flakk - Flakk um hjólhýsabyggðina á Laugarvatni
    Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni hefur verið brennidepli frétta hér undanfarna daga. Sveitastjórn Bláskógarbyggðar hefur ákveðið að leigja ekki út land lengur fyrir byggðina og allir verði að pakka saman og fara. Það ríkir sorg hjá fólkinu sem hefur haft sína litlu húsvagna, sumir jafnvel á fimmta tug ára. Ég heimsótti byggðina á Flakkinu sumarið 2014 í blíðskapar veðri og heilsaði uppá fólk. Rætt er við Guðberg Ástráðsson þáverandi formann, íbúa í hjólhýsabyggðinni á Laugarvatni og Hrafnhildi Bjarnadóttur núverandi formann Samhjól.
    50 min
  • 25082022 - Flakk - Flakk um Skeifuna
    Við beinum augum okkar að Skeifunni í þætti dagsins, svæði sem algjörlega er skipulagt með einkabílinn í fyrirrúmi, þó svo að gatnakerfið þar sé bara alls ekki gott. Við lítum aðeins 7 ár til baka, hér síðar í þættinum og göngum með þeim Birni Teitssyni sem þá var nemi í menningarfræðum en starfar nú hjá Skipulagsstofnun og Jóni Davíð Ásgeirssyni arkitekt, og setjumst yfir kaffibolla með Sigrúnu Hönnu Þorgrímsdóttur þjóðfræðingi. Við ræddum möguleika í breyttri Skeifu, þetta var árið 2015. Eftir þessi sjö ár er loks byrjað að byggja íbúðarhúsnæði í Skeifunni, og það nokkuð vel í lagt með 185 íbúða. Guðmundur Gunnlaugsson arkitekt og Ellert Hreinsson arkitekt hjá Teiknistofunni Archús, hafa veg og vanda af hönnun þessara bygginga og við byrjum hjá þeim
    50 min
  • 18082022 - Flakk - Flakk um Snorrabraut
    Heilsuverndarstöðin, Sundhöllin, Gamla Mjólkurstöðin, Droplaugarstaðir, Domus Medica, Blóðbankinn, hús sem gjarnan er kennt við Gefjun og eitt stykki nokkuð há íbúðarblokk auk bensínstöðvar standa við Snorrabraut, Egilsgötu, Bergþórugötu og Barónstíg, í raun ekki mjög stór reitur, en þjónar mjög svo bróguðu hlutverki, og nú er verið að byggja á einum þessara reita eða á Snorrbraut 60, einnig er búið að hanna íbúðabyggð við Snorrabraut 54 eða í kringum Gömlu Mjólkurstöðuna sem síðar Osta- og smjörsalan flutti í, Bylgjan og Söngskólinn, bensínstöðvarreiturinn bíður enn um sinn. Við ætlum að drepa niður fæti á Snorrabrautinni í dag og skoða hvað sé verið að byggja, ræðum við arkitektana Helga Bollason Thorddsen og Þórð Steingrímsson hjá Kanon arkitektum, Sólveigu Sigurðardóttur verkefnastjóra á borgarskipulaginu, Sigurð Hallgrímsson arkitekt hjá ArkþingNordic, en byrjum með nýjum formanni Umhverfis- og Skipulagsráðs borgarinnar - Alexöndru Briem og ræðum eitt og annað við hana sem stendur til í skipulagi og uppbyggingu í borginni.
    50 min
  • 11082022 ? Fjallað um Einar I Erlendsson arkitekt - síðari þáttur
    Einar Erlendsson arkitekt var ákaflega afkastamikill. Hann fæddist 1883 og lést 1968, þannig að hann lifði mikla breytingatíma, allt frá því að rafmagn var innleitt á landinu almennt og að upphafi sjónvarpsins. Í nýrri bók um Einar er skrá og myndir af verkum hans og telst höfundi Birni G. Björnssyni til að eftir hann séu skráð 224 hús, allt frá litlum og stórum bárujárnshúsum, steinsteypuklassík og fúnkís húsum vítt og breytt um borgina. Við höldum áfram með höfundi bókarinnar á rölti um borgina og Pétur Ármannsson byggingalistfræðingur kemur einnig við sögu
    50 min
  • 04082022 ? Flakk ? Fjallað um Einar I. Erlendsson arkitekt ? 1.þáttur
    Þegar höfundur viðraði fyrst hugmynd sína um að næsta viðfangsefni yrði ferill Einars Erlendssonar húsameistara, voru undirtektir misjafnar. Hvað hafði hann svo sem afrekað? Var hann ekki aðstoðarmaður Guðjóns Samúelssonar? Jú, hann var ekki aðeins aðstoðarmaður og staðgengill Guðjóns í þrjátíu ár, heldur þar á undan einnig aðstoðar- og samstarfsmaður Rögnvaldar Ólafssonar í tíu ár. Nýútkomin bók Björns. G. Björnssonar um Einar I Erlendsson arkitekt verður til umfjöllunar í þættinum. Það eru ótrúlega mörg þekkt hús í borginni eftir Einar, svo sem Kirkjuhúsið, Gamla bíó, Sólon, Gamla Borgarbókasafnið og Fríkirkjuvegur 11, svo einhver séu tíunduð hér. Rætt er við Björn G. Björnsson og Sigríði Björk Jónsdóttur byggingalistfræðing í þættinum og gengið um borgina og byggingarnar og saga þeirra sögð.
    50 min
  • 23062022 - Flakk um vistvænan vegvísi í byggingariðnaði
    Byggjum grænni framtíð er samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð en það á meðal annars rætur sínar að rekja til aðgerðar C.3 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.
    Verkefnastjórn verkefnisins er skipuð fulltrúum frá Grænni byggð, Samtökum iðnaðarins, Vegagerðinni, Umhverfisstofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, félagsmálaráðuneytinu og HMS.
    Verkefnið á rót sína að rekja til aðgerðar C.3 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og er mikilvægt í ljósi þess að mannvirkjageirinn ber ábyrgð á 30-40% af losun á heimsvísu. Hlutfallsleg auðlindanotkun og orkunýting hans er á svipuðu reiki. Í þessum þriðja hluta verkefnisins er vegvísir til grænni byggðar kynntur
    Í þættinum er rætt við Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur hjá Samtökum Iðnaðarins, Þóru Margréti Þorgeirsdóttur hjá Húsnæðis og Mannvirkjastofnun og Magnús Rannver Rafnsson byggingaverkfræðing.
    50 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.