Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • 12102019 - Flakk - Flakkað um Auðbrekku í Kópavogi
    Kópavogur byrjaði að byggjast um og uppúr seinni heimstyrjöldinni. Það var mjög erfitt að fá lóðir í Reykjavík og fólk flyktist í vesturbæ Kópavogs og byggði sér hús. Þar er elsti hlutinn og á Kársnesinu er nú að rísa heilmikil byggð á svæði sem var að mestu leiti atvinnusvæði þar til nú. Hugað er að þróunarreit þar austan við eða í brekkunni neðan við Hamraborg, gjarnan kölluð Auðbrekka. Þetta er líka atvinnusvæði að mestu en nú er Kópavogur að þróa þetta svæði sem íbúðabyggð. Rætt er við skipulagsstjóra Kópavogs Birgi Hlyn Sigurðsson og Kristin Dag Gissurarson viðskiptafræðing og nema í skipulagsfræðum sem setið hefur sem varamaður fyrir framsóknarflokkinn í bæjarstjórn Kópavogs. Auðbrekkan er heimsótt í fylgd Páls Gunnlaugssonar arkitekts hjá Ask arkitektum.
    50 min
  • 05102019 - Flakk - Fjallað um smgönguáætlun
    Allt frá árinu 1995 til 2018 hefur ökutækjafloti Íslendinga vaxið um 4% á ári, eða frá 132 þúsund í 309 þúsund. Með ökutækjum er átt við allar bifreiðar og bifhjól sem heimilt er að aka á vegum. Vegakerfið er ekki byggt fyrir alla þessa bíla og er úr sér gengið ansi víða og nú skal tekið til hendinni. Samkomulag um samgöngur var samþykkt af sveitarfélögunum á Höfuðborgarsvæðinu og Ríkisstjórninni í síðustu viku, ekki bara í borginni heldur einnig víða um land. Augum er beint að umferð á Höfuðborgarsvæðinu í þættinum þar sem menn sitja dag eftir dag í umferðarteppu, einn í nánast hverjum bíl. Borgarlína var endanlega samþykkt með þessu samkomulagi og kemur vonandi til með minnka umferð með tíð og tíma. Rætt er við Þorsteinn R. Hermannsson samgöngustjóra Reykjavíkur og Þórarinn Hjaltason verkfræðing. Fyrst heimsækjum við tvo umferðarþunga staði í borginni í fylgd Ólafar Kristjánsdóttur samgönguverkfræðings hjá Mannviti og Hrafnkatli Á Proppé skipulagsfræðings hjá Borgarlínu.
    52 min
  • 28092019 - Flakk - Flakk um Háskólasvæðið
    Uppúr 1930 reis Gamli Garður á Háskólalóðinni og aðalbygging Háskóla Íslands var tekin í notkun árið 1940, en HÍ var stofnaður árið 1911 en var þá til húsa í Alþingishúsinu við Austurvöll. Allar götur síðan hefur verið byggt á Háskólasvæðinu. Veröld hús Vigdísar Finnbogadóttur var tekin í notkun fyrir fáeinum árum, það er verið að leggja lokahönd á Grósku sem er nýbygging á Vísindagarða svæðinu bakvið Öskju og loks verður senn hafist handa við viðbyggingu við Gamla Garð og síðan tekur ein byggingin við af annari. Verið er að vinna að rammaskipulagi fyrir allt svæðið. Og svo er auðvitað verið að reisa Hús íslenskunnar við Suðurgötu.
    Þær þrjár byggingar sem fjallað verður um í Flakki dagsins, eru Veröld, Gróska og nýr stúdentagarður við Gamla Garð, hönnuðir allra þeirra eru Haraldur Örn Jónsson og Kristján Garðarsson arkitektar og eigendur teiknistofunnar Andrúm. Pétur Ármannsson arkitekt og sviðstjóri kemur að svæðinu frá umhverfis og skipulagsviði Minjarstofnunar og Sigríður Sigurðardóttir arkitekt og sviðsstjóri framkvæmda- og tæknimála hjá Háskóla Íslands.
    49 min
  • Kynning
    Kynning á Hnotskurn, umsjónarmenn eru Helga Margrét Höskuldsdóttir og Snærós Sindradóttir.
    0 min
  • Flakk um Búsetaformið og Þorpið - Vistfélag
    Það hentar ekki öllum að kaupa dýra eignaríbúð. Leitað hefur verið leiða til að byggja hagkvæmar íbúðir. Búsetaformið sem hefur verið við líði hér á landi frá 1983 hefur reynst vel Félagið á um 1000 íbúðir á Höfuðborgarsvæðinu og er að byggja á þremur stöðum í borginni nú um stundir. Fjallað er um Smiðjuholt í þættinum í fylgd Sigríðar Ólafsdóttur arkitekt sem er hönnuður af reitnum sem liggur við Þverholt og Einholt og allar íbúðir seldar. Ágústa Guðmundsdóttir sér um þróunar- og markaðsmál hjá Búseta og segir frá félaginu og þeim framkvæmdum sem nú eru í gangi.
    Runólfur Ágústsson verkefnastjóri hjá Þorpinu - Vistfélagi segir frá fyrirhugaðri byggð í Gufunesi í Grafarvogi, hér er um að ræða smáíbúðir, minni en við eigum að venjast en minnstu íbúðirnar eru 30frm, síðan 2ja herb. 52fm, 3ja herb. 53fm og fjögra um 59fm. Legið hefur verið yfir hugmyndinni og nú getur fólk skráð sig fyrir kaupum, sem miðast við 10% í útborgun en íbúðirnar eru ódýrar á miðað við það verð sem annars er á markaðnum. T.d. eru ekki bílastæði en bílastæðahús utan við hverfið, hugmyndir eru einnig um ræktunarreiti ef fólk kýs að hafa slíkt. Nýjung er að svokallað póshús verður í sameiginlegu rými, sem er það stórt að fólk getur fengið vörur sendar heim í gegnum netið.
    49 min
  • 14092019 - Flakk - Fjallað um Sigríði Sigþórsdóttur arkitekt
    Sá arkitekt sem hefur hannað flesta nýjustu baðstaðina á Íslandi er Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt. Það sem einkennt hefur hennar hönnun á þessum baðstöðum er staðsetning þeirra og hvernig náttúran fær að njóta sín í umhverfi þeirra. Má þar nefna fyrst Bláa Lónið, Sjóböðin á Húsavík, Sundlaugina á Hofsósi, Guðlaugu á Akranesi og það nýjasta Vök norðan við Egilstaði svo einhverjir séu nefndir. Sigríður rekur teiknistofuna Basalt ásamt tveimur öðrum arkitektum, en þau eru 16 sem vinna á stofunni nú. Ekki eru það einungis baðstaðir sem stofan hannar, því Óðinstorg sem nú er verið að byggja er þeirra hönnun, auk þess er spennandi vistvænt hverfi í uppsiglingu við horn Lágmúla og Laugavegar, og ýmislegt annað. Stofan er á miðjum Laugavegi rétt ofan við Frakkastíg í hringiðu mannlífs miðborgarinnar og þegar inn er komið má sjá þar á veggjum myndir af tillögum, byggðum mannvirkjum auk verðlaunagripa og skjalda, bæði íslenska og erlenda. Bláa Lónið er heimsótt og einnig er rætt við Pétur Ármannsson arkitekt.
    53 min
  • 31082019 - Flakk - Flakk um Gufunes (Fríríki frumkvöðlanna)
    Orri Steinarsson arkitekt ásamt félögum sínum á stofu hans í Rotterdam deiliskipuleggja nú nýtt byggingasvæði í Gufunesi í Reykjavík. Áburðarverksmiðjan byggði heilmikið í kringum sína starfsemi á sínum tíma, en verksmiðjan hefur nú verið lögð niður. Baltasar Kormákur kvikmyndagerðarmaður hefur byggt stórt kvikmyndaver í stærstu skemmunni og auk þess nýtt fleiri byggingar á svæðinu fyrir aðra kvikmyndagerð. Í tillögu Orra og félaga er meiningin að nýta allar þær byggingar sem eru þarna, og hafa fyrirtæki tengd iðnaðinum komið sér fyrir á svæðinu svo sem Exton, Kukl og Loftkastalinn sem er leikmyndafyrirtæki.
    Auk þess verða byggðar 600 íbúðir á landinu. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar segir frá hugmyndum borgarinnar og annara eigenda lóðanna í þættinum.
    52 min
  • 24082019 - Flakk - Flakk um Flensborgarhöfn og Fornubúðir í Hafnarfirð
    Nú er verið að vinna að nýju skipulagi fyrir suðurhöfnina í Hafnarfirði, þar sem nýtt hús Hafrannsóknarstofnunar er að rísa. Ýmsar hugmyndir eru á lofti með svæðið sem nú hefur aðallega hefur að geyma geymslur ýmis konar, einhverja fiskvinnslu og fl. En þar hafa einnig listamenn komið sér fyrir í gamla Íshúsinu og í Fornubúðum. Kaffi- og veitingahús eru sprottinn upp og síðan er stefnt að því byggja þarna íbúðarhúsnæði. Orri Steinarsson arkitekt ásamt félögum á stofu hans í Rotterdam eru að hanna skipulagið, en þeir unnu samkeppni sem Hafnarfjarðarbær stóð fyrir, en Kristín Thoroddsen formaður samstarfshóps um höfnina og formaður Hafnarstjórnar hefur fylgst með þróun mála á svæðinu.
    Magnea Guðmundsdóttir arkitekt vann frumhugmyndir að skipulagi og samstarfi við lóðareigendur og sömuleiðir hefur Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi komið með ýmsar hugmyndir að skipulaginu.
    50 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.