Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • Flakk - Flakkað um Miðstræti í Reykjavík - fyrri þáttur
    Gengið frá horni Skálholtsstígs og Miðstrætis eftir Miðstræti. Miðstræti hefur að geyma eina heillegustu mynd glæsilegra timburhúsa frá upphafi síðustu aldar. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur fylgir hlustendum í gengum sögu fólksins sem byggði og bjó.
    Farið í heimsókn í Miðstræti 10 til Tómasar Jónssonar grafísks hönnuðar og Þórunnar Elísabetar Sveinsdóttur búninga- og leikmyndahöfundar, en þau keyptu hæð á áttunda áratugnum í húsinu sem þá var í mikilli niðurníðslu.
    Farið í heimsókn til Miðstræti 3 a, sem er eina steinhúsið við götuna, til Guðna Kolbeinssonar þýðanda og Lilju Bergsteinsdóttur en þau keyptu sömuleiðis hæð í byrjun áttunda áratugarins og hafa unnið að uppgjöri smátt og smátt. Eignirnar báðar eru glæsilegar í dag.
    52 min
  • Flakk - Flakkað um Ytri Njarðvík - síðari þáttur
    Haldið áfram að ganga Borgarveginn í Ytri Njarðvík í fylgd Hallfríðar Þórarinsdóttur mannfræðings. Gengið niður að höfninni, rætt um íbúa, tíðaranda, vinnu á vellinum, fisk og fleira.
    Farið í heimsókn til Garðars Magnússonar útvegsbónda og sonar hans Gylfa, sem er löngu fluttur í bæinn. Garðar man tímanna tvenna en hann býr í Höskuldarkoti hinu nýja sem faðir hans byggði, en fjölskyldan hefur verið í Njarðvík frá því seint á 18 öld. Garðar rær enn út, verkar fisk og frystir en einnig býr hann til harðfisksflögur.
    Hanna G. Sigurðardóttir átti spjall við Sigrúnu Benediktsdóttur í þættinum Vítt og breitt árið 2006. Sigrún giftist þelkökkum hermanni af vellinum og segir frá sinni sýn á hermennsku og umhverfi vallarins.
    52 min
  • Flakk - um Ytri Njarðvík - fyrri þáttur
    Flakkað um Ytri Njarðvík, sem í raun rennur alvega saman við Keflavík, eða sveitarfélagið Reykjanesbæ. Borgarvegurinn gengin, sem er elsta gata Njarðvíkur í fylgd Hallfríðar Þórarinsdóttur mannfræðings en hún ólst upp við götuna. Hún segir frá fólkinu sem þar bjó, æskuárunum og fl. Farið í heimsókn í Rokksafnið í fylgd Baldurs Guðmundssonar stjórnarformanns Geimsteins, sagt frá því sem fyrir augu ber, og tilurð safnsins. Einnig er sagt frá sögum um Stapadrauginn, sem sagður er hafa verið mögulega Stjáni blái, sem var vel þekktur á Suðurnesjum.
    50 min
  • Flakk um Skerjafjörð - síðari þáttur
    Skerjafjörðurinn heimsóttur öðru sinni. Gengið Einarsnes, Bauganes, Skeljanes og Fáfnisnes í fylgd Katrínar Guðmundsdóttur sem er fædd, uppalin og rótgróin íbúi í Skerjafirðinum. Fyrri tíð rifjuð upp og sagt frá fólki og fleiru í Skerjafirði.
    Rætt við Guðmund Magnússon sagnfræðing og blaðamann á Mogganum um Eggert Classen athafnamann og stundum kallaður faðir Skerjafjarðar, en Guðmundur skrifaði æfisögu hans, sem kom út í fyrra.
    Rætt við Þorstein Helgason arkitekt og Gunnar Örn Sigurðsson arkitekt hjá ASK arkitektum um nýtt skipulag í Skerjafirði, en stofan átti vinningstillögu um þessa nýju byggð.
    53 min
  • Flakk um Skerjafjörð - fyrri þáttur
    Farið í Skerjafjörð og gengið þar um Bauganes í fylgd Katrínar Guðmundsdóttur sem er fædd og uppalin í Bauganesinu og keypti síðan hús foreldra sinna. Katrín lýsir fyrri tíð og segir frá íbúum og sögu. Farið í heimsókn til Gerðar Kristnýjar rithöfundar en hún hefur búið í Skerjafirði í 11 ár. Flestir íbúanna vilja halda í flugvöllinn, til að halda í þorpsstemmninguna. Hjördís Andrésdóttir hefur brallað ýmislegt á horni Bauganess og Einarsness, rekið þar búð og kryddverksmiðju, nú rekur hún veitingastaðinn Biker Cave, selur mat á vægu verði og býður uppá aðstöðu til hjólaviðgerða.
    48 min
  • Flakk - Snert á arkitektúr síðari þáttur
    Haldið áfram að fjalla um bókina Snert á arkitektúr eftir Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur og Daneil Reuter. Rætt við fjóra af 8 arkitektum sem rætt er við í bókinni. Sigrún Birgisdóttir deildarforseti Hönnunardeildar LHÍ segir frá hvernig eldhúsið hefur þróast. Dr. Harpa Stefánsdóttir skipulagsfræðingur og arkitekt segir frá samgönguhljólreiðum og skipulagi umferðar í Osló og nágrenni en hún starfar við umhverfisháskóla í nágrenni borgarinnar. Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt og fræðimaður fjallar um rýmisvitnum og aðdráttarafl og þekkingu almennings. Anna María Bogadóttir fjallar um almannarými í einkaeigu og rannsóknir.
    53 min
  • Flakk - Snert á arkitektúr fyrri þáttur
    Bókin Snert á arkitektúr eftir Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur menningarfræðing og Daniel Reuter kom út í haust. Í bókinni er leitast við að nálgast arkitektúr með samtölum við 8 arkitekta. í þessum fyrra þætti er rætt við Sigúnu Ölbu um bókina. Hólmfríði Ósmann Jónsdóttur og Hrefnu Björgu Þorsteindóttur arkitekta hjá Arkibúllunni um rannsóknir á byggingasvæði, þjónustuhús í Nauthólsvík og kapellu m.m. í Gufuneskirkjugarði. Einnig er rætt við Sigríði Sigþórsdóttur arkitekt um samkeppnir, skipulag, þéttingu byggðar og fl.
    47 min
  • Flakk um Sörla- og Faxaskjól - síðari þáttur
    Farið i heimsókna í Sörla- og Faxaskjól öðru sinni. Faxaskjól gengið við sjóinn í fylgd Péturs Ármannssonar arkitekts og farið í heimsókn til Harðar Áskelssonar organista í Hallgrímskirkju og Ingu Rósar Ingólfsdóttur sellóleikar í Synfóníuhljómsveit Íslands. Síðan gengið áfram með Pétri og litið í heimsókn til Hönnu Lilju Guðleifsdóttur sem aldrei hefur búið annar staðar en í Sörlaskjóli frá því hún fæddist um miðja síðustu öld, burtséð frá útúrdúr í nokkur ár til Bandaríkjanna. Húsið er sannkallað fjölskylduhús, og búist við að sonur taki við því, en hann býr nú í kjallaranum. Margt er breytt frá fyrri tíð, en rottugangur var mikill í fjörunni hér áður fyrr, og börnin léku sér við að elta þær uppi.
    53 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.