Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • Flakkað um Unnarstíg og Drafnarstíg við Landakot 2 þáttur af 2
    Gengið Unnarstíg og Drafnarstíg í fylgd Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings. Saga húsa og íbúa sögð, en göturnar við Landakot eru allar kenndar við sjóinn. Svo sem Hrannarstígur, Marargata sem gengnar voru í síðasta þætti og nú Unnar- og Drafnarstíg. Sagt frá Vilhjálmi frá Skáholti og farið í heimsóknir.
    Rætt við Guðjón í tvíganga í sitt hvorri götunni
    Feðgarnir Kristján Ólafsson og Pétur Kristjánsson búa við Unnarstíg 6 og eru aðrir eigendur að húsinu, en fjölskyldur virðast hafa haldið í húsin sín í gegnum áratugina á svæðinu rætt um búsetu, lífið og fl.
    Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður og rithöfundur býr í Skáholti við Drafnarstíg 3 og hefur gert frá 1969, hún er þriðji eigandi að húsinu. Hún unir sér vel í húsi skáldsins og ól börnin sín upp að mestu leiti í húsinu.
    53 min
  • FLakkað um Landakot og nágrenni - fyrri þáttur
    Guðjón Friðriksson sagnfræðingur segir frá fyrstu byggð á Landakotshæðinni í vesturbæ Reykjavíkur, gengið niður Hrannarstíg og inn Marargötu. Þetta eru litlar götur og almenningur þekkir lítt til þeirra. Sagt frá íbúum, byggingasögu og öðru.
    Rætt vð Guðjón Friðriksson í þrígang.
    Farið heimsókn að Hrannarstíg 3, sem er eina húsið kennt við götuna, rætt við Herdísi Ellan Gunnarsdóttur íbúa á fyrstu hæð og Andrés Jónsson almannatengil íbúa á annari hæð. Rætt um uppgjör, breytingar, búsetu og f.
    Farið í heimsókn að Marargötu 4 til Unnar Aspar Stefánsdóttur leikara og leikstjóra, en hún ásamt eiginmanni Birni Thors leikara og leikstjóra keyptu hæð fyrir rétt um ári, og búa þar ásamt tveimur börnum. Rætt um búsetu, fyrri búsetu, leiklistina og fl.
    50 min
  • Flakkað um Myndlistarskóla Reykjavíkur
    Faið í heimsókn í Myndlistarskóla Reykjavíkur sem er til húsa í JL húsinu vestur í bæ. Rætt við skólastjóra, brautarstjórnendur og nokkra nemendur. Fjallað um mjög svo mismunandi nám frá 4 - 85 ára.
    Viðmælendur: Áslaug Thorlacius skólastjóri, Einar Garibaldi Eiríksson brautarstjóri Sjónlistadeildar, Ína Salóme Hallgrímsdóttir kennari og skrifstofustjóri, Anna Cynthia Lepplar deildarstjóri teiknideildar, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir deildarstjóri textíldeildar, Ólöf Erla Bjarnadóttir deildarstjóri keramikdeildar, Sigurlína Ousuala deildarstjóri barnadeildar, Margrét Nordal deildarstjóri diplómanáms fyrir þroskahamlaða. Nemendur í diplómanámi í teikningu, keramik, textíl og þroskahamlaður nemi í diplómanámi.
    53 min
  • Flakkað súkkulaðiegg og páska
    Í flakkinu í dag er fjallað um sögu páskana, páskaeggja og súkkulaði útum allt.
    Súkkulaðiegg og lambasteik tilheyra páskunum. En eru páskarnir eingöngu trúarhátíð, hver er saga þeirra? Og hvenær byrjuðum við að borða súkkulaðiegg?
    Árni Björnsson þjóðháttafræðingur segir frá hvernig eggin fóru að tilheyra páskum, en hænurnar byrjuðu að verpa aftur eftir veturinn og leiguliðar þurftu að gjalda klaustrum og öðrum eigendum jarða skatt, og á vorin voru það eggin, þeir sem fengu of mikið gáfu börnunum gjarnan umframegg, því annars hefðu þau fúlnað. Páskarnir voru til löngu fyrir kristni, en sláturtíð hófst að vori eftir föstu, og þá voru páskarnir eins konar vorhátíð.
    Í Færeyjum skreyttu börnin hænuegg á laugardeginum fyrir páska, þau voru soðin í tei eða matarlit og síðan máluð. Páskadagsmorgun var svo farið í brekkuna og eggjunum kastað upp, og síðan gripin þegar þau rúlluðu niður, og svo var alltaf lambasteik, segir Marenza Poulsen matreiðslumeistari um siði og venjur í Færeyjum. Sér er siður í hverju landi, því fyllt súkkulaðiegg og málshættir eru svolítið íslenskt fyrirbæri.
    Súkkulaðibaunin verður að vera afbragðsgóð
    Segir Hafliði Ragnarsson súkkulaðimeistari hjá Mosfellsbakaríi, sem hannar og býr til dýrindisegg, ólík þeim sem við eigum að venjast en eins í laginu. Hann hefur búið til og selt þessi einstöku egg um nokkurra ára skeið í bakaríinu sínu. Þeir Kjartan Gíslason og Karl Viggó Vigfússon súkkulaðimeistarar hjá Omnom eru sama sinnis um baunina, og það er mest spennandi að finna nýjar góðar baunir og prófa sig áfram með ýmis brögð svo sem sjávarsalt, chili og fleira spennandi. Hafliði ætlar m.a. að prófa tómata í súkkulaðið, og svo má gjarnan nota súkkulaði í sósur segir Marenza. Súkkulaði og aftur Súkkulaði í Flakkinu um páskana.
    51 min
  • Flakkað um Háskólasvæðið - síðari þáttur
    Pétur Ármannsson arkitekt segir frá arkitektum og þróun bygginga á Háskólalóðinni gengið að Háskólatorgi og síðan yfir Suðurgötu, rætt um Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í tungumálum, Tæknigarð og aðrar byggingar vestan götunnar.
    Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur og prófessor segir frá ýmsu í sögu skólans, m.a. er rætt um fjölgun kvenkyns nemenda, en ekki að sama skapi í stjórnunar- eða prófessorsstöðum
    Erla Hulda Halldórsdóttir sérfræðingur í kvenna- og kynjasögu segir frá rannsóknum og stöðu kvenna innan háskólasamfélagsins.
    Aron Ólafsson form.stúdentaráðs og nemi í viðskipta- og ferðamálafræðum og Ásta Maack líffræðingur búa í Oddagörðum, ástfanginn og sátt við búsetuna en uggar um framtíðina í húsnæðismálum.
    53 min
  • Flakkað um byggingasögu Háskóla Íslands - fyrri þáttur
    12. mars 2016
    Flakkað um byggingasögu Háskólasvæðisins - fyrri þáttur
    Umsjón Lísa Pálsdóttir
    Gengið frá Gamla Garði að Aðalbyggingu Háskóla Íslands, sagt frá Stúdentagarðinum, Setbergi, Norræna húsinu og rætt almennt um skipulag svæðisins og byggingastíl. Rætt um staðsetningu skólans og frá skipulagi Guðjóns Samúelssonar á Skeifunni og húsinu. Pétur Ármannsson arkitekt segir frá þessu
    Rætt við Brynhildi Brynjólfsdóttur fyrrverandi starfsmann nemendaskrár Háskólans og fyrrum íbúa aðlabyggingar, en foreldrar hennar voru húsverðir um árabil í húsinu og unnu hvern dag ársins. Viðtalið var áður í Flakki 2011 í tilefni af Flakki á 100 ára afmæli skólans
    Rætt við Guðmund Hálfdánarson sagnfræðing og prófessor um upphafsár Háskólans en hann skrifaði sögu hans í tilefni af 100 ára afmælinu.
    51 min
  • Flakkað um Bræðraborgarstíg - síðari þáttur
    Jón Smali og Gvendur dúllari. Viðurnefni hafa alltaf verið til á Íslandi, kannski voru þau fleiri í gamla daga, en margir þeirra sem bjuggu við Bræðraborgarstíg áttu sér viðurnefni.
    Leigði út pláss í fataskápnum
    Jón smali var vatnsberi í Reykjavík, talinn afar samansaumaður en séður í peningamálum enda tókst honum að byggja sér hús, sem hann leigði svo meira og minna út, og bjó í einni kytru sjálfur, segir Guðjón Friðriksson sagnfræðingur um einn íbúa Bræðraborgarstígs. Hann byggði húsið Miðdal sem er nr. 19 seint á nítjándu öld, nú búa í húsinu Markús Þór Andrésson og Dorothee Kirch, en þau eru bæði sýningarstjórar myndlistarsýninga. Þau eignuðust húsið fyrir 5 árum, en það er gætt þeim undrum að virðast afar lítið að utan, en er þó 5 herbergja og rúmt þegar inn er komið og hefur verið gert upp. Einnig er mikil frjósemi í húsinu en þau hjónin eignuðust nýlega dóttur númer tvö.
    Eru bæði hætt í stóru leikhúsunum
    Hjónin Álfrún Helga Örnólfsdóttir og Friðrik Friðriksson leikarar búa við Bræðrarborgarstíg með dætrum sínum tveimur. Þau eignuðust íbúðina árið 2007. Húsið byggði skósmiður og trúboði nokkur, sem hélt samkomur á heimili sínu. Álfrún og Friðrik kusu bæði að hætta á samningum í leikhúsunum til að eiga meiri tíma með fjölskyldunni, en leiklistinn er þó ekkert farin úr lífi þeirra, hún bara blundar um tíma.
    51 min
  • Flakkað um Bræðraborgarstíg - fyrri þáttur
    Guðjón Friðriksson sagnfræðingur segir sögu götunnar, gengið frá Vesturgötu að Öldugötu. Eldeyjar-Hjalti bjó á númer 8. Sveinn rak flottasta bakarí í bænum á nr. 1 og Jón Sím bakaði á númer 16. Tvö forlög eru við götuna, Forlagið og Bjartur, einnig er útgerðarfélagið Brim við götuna. Brauð, bækur og fiskur.
    Rætt við Jóhann Pál Valdimarsson sem hefur rekið sínar bókaútgáfur á tveimur stöðum við götuna á nr. 16 og nú nr. 7, en hann býr einnig í húsinu og Bræðró er hans staður í lífinu,.
    Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brim sem nú er á nr. 16 gerði húsið upp frá grunni, en mun senn flytja á Fiskislóð. Rætt við hann um skipulag, virðingu fyrir því gamla og gróna og fl.
    50 min
  • Flakkað um uppbyggingu í miðborginni
    HVer byggir, hver ræður, hver á?
    Rætt við Ólöfu Örvarsdóttur sviðsstjóra Umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar um væntanlegar íbúða- og hótelbyggingar í borginni, hverjar eru áherslurnar og fl.
    Rætt við Tönju Pollock listakonu, sem var talsmaður Hjartagarðsins (Hljómalindarreitur) áður en byggingaframkvæmdir hófust, Viðtalið var í Flakki árið 2012
    Rætt við Pálmar Harðarsson framkvæmdastj. Þingvangs og Jón Ragnar Magnússon byggingastjóra, Hljómalindarreitur er í eigu Þingvangs og birtist nú hægt og bítandi með samstarfi við listamenn Hjartagarðsins
    Rætt við Gunnar S. Helgason framkv.stj. Regins fasteingnafélags, sem á 1/3 af byggingareit við Hörður neðan Arnarhóls, hann lýsir furðu á mótmælum ráðamanna, því reiturinn hefur verið eigu ríkis og borgar, deiliskipulagður af þeim og síðan seldur. Reginn á Egilshöll og Smáralind auk fjölda annara bygginga í landinu.
    52 min
  • Flakkað um ólöglegt vinnuafl
    Fjallað um ólöglegt vinnuafl á Íslandi. Fyrst heyrðum við af slíku þegar Kárahnjúkar risu, og þá var bæði um að ræða brot á kjarasamningum og léglegur aðbúnaður. Með aukningu ferðamanna og uppbyggingu hótela og annars er aftur farið að bera á ólöglegu vinnuafli, ungt fólk og útlendingar er helst útsett fyrir slíku. Rætt við fjórar stofnanir sem koma að þessum málum. ASÍ, Vinnumalastofnun, Samtök Iðnaðarins og Lögregluna.
    Rætt við Halldór Grönvold aðstoðarframkvæmdastjóra og deildarstjóra félagsmáladeildar ASÍ, um aðgerðir hjá verkalýðshreyfingunni og væntanlegt átak í samvinnu við aðra undir yfirskriftinni „Einn réttur ekkert svindl“.
    Rætt við Gísla Davíð Karlsson lögfræðing hjá Vinnumálastofnun um aðkomu þeirra að ólöglegu vinnuafli, kennitöluflakk, og ráðstefnu í Evrópu sem hann sat nýverið og hvernig mál eru tækluð annars staðar.
    Rætt við Almar Guðmundsson framkvæmdastjóra Samtaka Iðnaðarins um þeirra samtök og hvernig þeir bregðast við svindli innan þeirra raða, kennitöluflakk og fl.
    Rætt við Öldu Hrönn Jóhannsdóttur aðallögfræðing Lögreglustjóraembættisins á Höfuðborgarsvæðinu um aðkomu lögreglu í slíkum málum, dómsmál og refsiramma.
    53 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.