Föstudagsgesturinn okkar er að þessu sinni var söngvarinn Bjarni Arason. Hann söng sig inní hjörtu landsmanna kornungur að árum í söngvakeppni Stuðmanna og hefur haldið áfram að syngja síðan. Hann elskar Elvis eins og svo margir og nú standa fyrir dyrum Elvis tónleikar hjá honum með öllu tilheyrandi. Bjarni sagði okkur frá æskuárunum og ýmsu í skemmtilegu spjalli.
Við hringdum til Álandsseyja og heyrðum í Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur, en hún er þar stödd ásamt félögum sínum í hljómsveitinni The Post Performance Blues Band, en þær hafa verið að troða upp þar og hafa auðvitað í leiðinni kennt heimafólki víkingaklappið.
Það er erfitt að hunsa fótboltann þessa dagana og í tilefni leiksins hringdum við til Rússlands og heyrðum Gunnari Helgasyni. Hann var í Moskvu á leik Íslands og Argentínu, hefur svo dvalið í Rostok og eru núna kominn til Volgograd þar sem leikurinn við Nígeríu fer fram eftir rúma þrjá tíma. Við heyrðum hvernig Rússland er að fara með þau og hvernig stemmningin er fyrir leikinn.