Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Sigríður Beinteinsdóttir söngkona. Hana nú ekki að kynna fyrir hlustendum en hún syngur annað kvöld á tónleikum í Hörpu þar sem hún heldur upp á 40 ára söngafmæli og 60 ára afmæli. Hún er auðvitað í Stjórninni, hún hefur gefið út átta sólóplötur, auk þess sem hún hefur sungið fjölda laga með öðrum og svo má ekki gleyma hinu geysivinsæla barnaefni Söngvaborg. Annað kvöld mun hún syngja lög frá öllum ferli sínum ásamt góðum gestum. En í þættinum sagði Sigga okkur frá æskunni og uppvextinum og ferðalaginu í gegnum lífið til dagsins í dag.
Í matarspjalli dagsins töluðum við um vegasjoppur. Framundan er tíminn þar sem fólkið í landinu leggur í ferðalög um þjóðveginn og aðra vegi okkar fallega lands. Og þá þarf auðvitað að stoppa við og við og fylla á bílinn og fá sér í gogginn. Þar koma svokallaðar vegasjoppur sterkar inn, margar landsþekktar, hafa staðið vaktina í áratugi, sumar þó ekki lengur og aðrar jafnvel að koma aftur. Eins og til dæmis Hreðavatnsskáli, þar sem nýir aðilar hafa tekið við rekstrinum. Við hringdum í Brynju Brynjarsdóttur, listakonu og bónda á Hraunsnefi, en hún og Jóhann Harðarson, eiginmaður hennar, hafa tekið að sér að reka Hreðarvatnsskála eftir að dóttir þeirra og tengdasonur keyptu skálann. Við fengum að vita hvað verður á boðstólnum hjá þeim og hvað er framundan á þessum rótgróna stað.
Umsjón: Gunnar Hansson og Sigurlaug Margrét Jónasdóttir