Mannlegi þátturinn

Föstudagsgesturinn Markéta Irglóva og ommelettuspjall


Listen Later

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var tónlistarkonan Markéta Irglová. Hún er fædd í Tékklandi og fór að stunda tónlistarnám á unga aldri. Hún kynntist Glen Hansard, írskum tónlistarmanni, þegar hún var 16 ára og gekk í hljómsveitina hans. Til að gera langa sögu stutta þá léku þau aðalhlutverkin í kvikmyndinni Once árið 2007, auk þess að semja saman tónlistina í myndinni og hlutu meðal annars óskarsverðlaun árið 2008 fyrir besta frumsamda lagið í kvikmynd það árið. En það sem kannski færri vita er að hún hefur nú búið hér á Íslandi í 9 ár, á hér þrjú börn og íslenskan eiginmann og talar reiprennandi íslensku. Hún hefur haldið áfram að semja tónlist, fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti og svo undir eigin nafni og svo hefur hún unnið talsvert með íslensku tónlistarfólki, og talsvert með Emiliönu Torrini, en hún til dæmis samdi með henni titillag leiksýningarinnar Vertu úlfur, sem er einmitt sýnd um þessar mundir í Þjóðleikhúsinu. Það var um nóg að tala við Markétu og til dæmis var mjög gaman að rifja með henni upp þetta ótrúlega kvöld þegar hún hlaut Óskarsverðlaunin árið 2008.
Í matarspjalli dagsins var talað um ommelettur. Sem sagt franskar ommelettur, spænskar ommelettur og jafnvel veltum við því fyrir okkur hvort það sé til séríslensk ommelletta? Hvað er best að setja í ommelettuna? Eru egg og hvítlaukur góð saman? Er til sviðaommeletta?
UMSJÓN GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners