Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Sigurður Björn Blöndal. Hann hefur starfað við ýmislegt, verið tónlistarmaður, þar sem hann meðal annars lék á bassa með hljómsveitinni HAM. Hann hefur unnið sem verslunarmaður, framkvæmdastjóri, markaðstjóri, vörustjóri, kvikmyndaframleiðandi, skólaliði, blaðamaður, sjómaður, sorphreinsunarmaður, verkamaður, rútubílstjóri, aðstoðarmaður og pólitískur ráðgjafi borgarstjóra og nú síðast, borgarfulltrúi og formaður Borgarráðs. En hann er að hætta eftir 8 viðburðarrík ár í borgarstjórn, þá er spurning hvert hann stefnir næst? Við fengum að vita það í þættinum í dag.
Svo kom Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, til okkar eins og aðra föstudaga með sitt vikulega matarspjall. Í dag sagði hún okkur til dæmis frá skordýrum og blómum og því hvernig dansinn getur læknað allt og hvernig hægt er að nota ýmiskonar blóm í matargerð.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson