Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Besta deildin innan og utan vallar
    Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon gera upp Bestu deildina jafnt innan vallar sem utan í útvarpsþætti vikunnar.
    Lokahóf deildarinnar var haldið í hljóðverinu og opinberað val Fótbolta.net á liði ársins, leikmanni ársins, efnilegasta leikmanninum, besta þjálfaranum og besta dómaranum.
    Í seinni hlutanum ræðir Tómas við Birgi Jóhannsson og Björn Þór Ingason frá ÍTF um deildina. Meðal annars er rætt um fyrirkomulagið sem hefur verið mikið í umræðunni.
    1 hr 51 min
  • Enski boltinn - Að telja sig vera stærri en félagið
    Það er svo mikið í gangi í ensku úrvalsdeildinni að ekki er annað hægt en að bjóða upp á annan þátt af Enska boltanum þessa vikuna.
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fara yfir tíðindamikla viku þar sem Cristiano Ronaldo var settur í skammarkrókinn og Steven Gerrard var rekinn.
    Farið er yfir þessar risafréttir, úrslit helgarinnar og leikir helgarinnar skoðaðir.
    56 min
  • Enski boltinn - Í draumalandi Laufdalsins
    Það er frábær umferð að baki í ensku úrvalsdeildinni þar sem stórleikur Liverpool og Manchester City stóð upp úr.
    Gummi og Steinke fóru yfir umferðina með Arnari Laufdal, þáttastjórnanda Ungstirnanna. Síðustu sjö dagar hafa verið ansi góðir hjá Laufdalnum; Breiðablik varð Íslandsmeistari, Liverpool vann Man City og hann fór á árshátíð.
    Eitt er víst eftir þennan leik Liverpool og Man City: Darwin Nunez er kóngurinn.
    1 hr 28 min
  • Innkastið - Leikurinn þar sem bæði liðin töpuðu
    Allt stefnir í að Leiknir og ÍA leiðist hönd í hönd niður í Lengjudeildina eftir 2-2 jafntefli liðanna í Breiðholtinu á Laugardag.
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Guðmundur Aðalsteinn og Sverrir Mar gera upp 25. umferð Bestu deildarinnar og ræða helstu fréttapunkta deildarinnar.
    49 min
  • Útvarpsþátturinn - Ómar Ingi og helstu boltamálin
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. október.
    Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum og með þeim í þættinum er Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK.
    Rætt er um fréttir vikunnar; heimaleikjabann Víkings, þjálfarahræringar, Íslandsmeistaratitil Breiðabliks, tap kvennalandsliðsins og næstu leiki í Bestu deildinni. Þá gerir Ómar upp tímabil HK. Einnig koemur enski boltinn við sögu.
    1 hr 48 min
  • Enski boltinn - Víður völlur og sameiginlegt byrjunarlið
    Það var farið um víðan völl þegar Gummi og Steinke settust niður á skrifstofu Fótbolta.net í dag.
    Farið var yfir umferðina í ensku úrvalsdeildinni sem fram fór um síðustu helgi og umferðina sem hefst í kvöld.
    Einnig var farið yfir Meistaradeildina, Evrópudeildina og Sambandsdeildina en það var spilað í öllum þessum keppnum núna í vikunni.
    Liverpool og Manchester City eigast við í stórleik helgarinnar. Hvernig lítur sameiginlegt byrjunarlið þeirra út?
    1 hr 17 min
  • Innkastið - Blikar krýndir bestir í sófanum og FH greip líflínu
    Til hamingju Breiðablik! Kópavogsliðið er orðið Íslandsmeistari. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fara yfir liðna umferð í Bestu deildinni og heyra í góðum mönnum.
    Viktor Karl Einarsson, miðjumaður og Íslandsmeistari, er á línunni. Í seinni hlutanum er fjallað um neðri deildina og svakalega mikilvægan sigur FH gegn Leikni í fallbaráttuslagnum.
    Þá er Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, á línunni frá Vestmannaeyjum og í lok þáttarins er rætt um riðilinn sem íslenska landsliðið er í.
    57 min
  • Útvarpsþátturinn - Harka og hræringar í fallbaráttunni í Bestu
    Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Það eru sviptingar og spenna í harðri fallbaráttu Bestu deildarinnar. Eiður Smári steig til hliðar og Siggi Höskulds tekst á við nýjar áskorarnir eftir tímabilið. Sérfræðingur þáttarins, Rafn Markús Vilbergsson, spáir í spilin fyrir sex stiga fallbaráttuslag FH og Leiknis.
    Enski boltinn. Stórleikur helgarinnar er viðureign Arsenal og Liverpool. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur um enska boltann, er á línunni. Hann ræðir meðal annars um Erling Haaland.
    Þá fer Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson yfir möguleika íslenska kvennalandsliðsins sem mætir Portúgal í úrslitaleik um sæti á HM næsta þriðjudag.
    1 hr 38 min
  • Kristján Guðmundsson - Hvernig náði Stjarnan Evrópusæti?
    Stjarnan endaði í 2. sæti Bestu deildar kvenna á liðnu tímabili. Liðið verður því í forkeppni Meistaradeildarinnar á komandi tímabili. Liðið vann fimm af síðustu sjö leikjum sínum í deildinni og gerði tvö jafntefli.
    Kristján Guðmundsson var að klára sitt fjórða tímabil sem þjálfari liðsins og ræddi hann við Fótbolta.net í dag.
    Kristján fór yfir markmiðasetninguna, tvískiptinguna á tímabilinu, breytingu í þjálfun hjá leikmönnum, stemninguna, næringarráðgjöf, markmannsmálin, öðruvísi nálgun gagnvart stelpum heldur en strákum, samskipti stúlkna og ýmislegt annað.
    42 min
  • Innkastið - Læti í Laugardal og sparkað í liggjandi mann
    Víkingur vann FH í framlengdum bikarúrslitaleik og fyrstu fjórir leikirnir eftir tvískiptingu Bestu deildarinnar eru að baki.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir það helsta sem er í gangi í íslenska boltanum í Innkasti vikunnar.
    Meðal efnis: Lætin í Laugardalnum, Haddi byrjar á sigri fyrir norðan, Blikar miklu betri en Stjörnumenn, sparkað í liggjandi Skagamenn og Fram tók fernuna gegn Leikni.
    57 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners