Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Ástríðan - Uppgjör í 3. deildinni - Fulltrúar toppliða og viðurkenningar
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar.
    Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu í heimsókn góða fulltrúa frá toppliðunum tveimur. Bjarki Flóvent frá Sindra og svo kom Balvin Borgarsson fyrir hönd Dalvíkur. Þeir mættu í spjall þar sem farið var yfir tímabil liðanna í ár, framhaldið og fleira.
    Bjarki Flóvent fór yfir mikilvægi Óla Stefáns og hvernig framhaldið lítur út á Höfn, hvernig liðið fór á run þegar hann kom inn í liðið og breytingar á frammistöðum leikmanna á milli ára.Baldvin mætti vegna andúðar leikmanna Dalvíkur í garð Ástríðunnar. Hann fór yfir tímabil Dalvíkur/Reynis og afhverju liðið snéri taflinu við eftir vonbrigðaár í fyrra.Lið ársins, besti leikmaður, efnilegastur og þjálfari ársins allt tilkynnt og rætt vel í þættinum. Gestirnir voru að lokum leystir út með Bola.Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 24 min
  • Enski boltinn - Ótrúlegur viðsnúningur og sjokkerandi á Etihad
    9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór að mestu fram á laugardag og sunnudag. Skagamaðurinn Albert Hafsteinsson og Keflvíkingurinn Kristinn Guðbrandsson fóru yfir það helsta með Sæbirni Steinke.
    Arsenal er áfram á toppnum og Manchester City fylgir í kjölfarið. Þeir Albert og Kiddi eru Arsenal menn og var vel farið yfir þeirra sigur á nágrönnunum. Er Arsenal eina liðið sem getur barist við City?
    Áfram vandræði hjá Liverpool, Chelsea harkaði út sigur, meira stál hjá Everton og Newcastle með öruggan sigur. Manchester City valtaði yfir granna sína í United sem löguðu stöðuna aðeins í lokin.
    Af hverju byrjaði Casemiro ekki? Hvað getur Haaland skorað mörg? Martial ákveðinn sigurvegari og ekki eitt orð um frábært mark Antony.
    1 hr 11 min
  • Heimavöllurinn: Besta eftirpartýið
    Keppni í Bestu deildinni er lokið þetta tímabilið og því ekki um annað að ræða en að gera mótið almennilega upp í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar. Þau Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Ingunn Haraldsdóttir mættu í gott spjall og fóru ítarlega yfir sumarið ásamt Mist Rúnarsdóttur.
    2 hr 2 min
  • Útvarpsþátturinn - Ísland, DKÓ, Besta og enski
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 1. október.
    Elvar Geir og Benedikt Bóas halda um stýrið og skoða allt það helsta sem er í gangi í boltanum. Meðal annars er rýnt í landsleiki Íslands, jafnteflið í Tirana og þennan hörkuleik hjá U21 liðinu í Tékklandi.
    Landsliðsmaðurinn Davíð Kristján Ólafsson er á línunni.
    Farið er yfir fréttir og slúður, rætt um bikarúrslitaleikinn, spáð í spilin fyrir komandi leiki í Bestu deildinni og fjallað um enska boltann. Ingimar Helgi Finnsson gerir upp Norður-Lundúnaslag Arsenal og Tottenham.
    1 hr 41 min
  • Ástríðan - Uppgjör í 2. deildinni - Gestir frá toppliðum og lið ársins
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar.
    Sverrir Mar og Óskar Smári fengu í heimsókn góða gesti frá toppliðunum tveimur. Guðmundur Axel frá Þrótti R. og Maggi Matt frá Njarðvík mættu í spjall þar sem farið var yfir tímabil liðanna í ár, framhaldið og fleira.
    Guðmundur Axel svaraði fyrir gagnrýni Ástríðunnar undanfarna mánuði auk þess sem hann fór vel yfir hvað er í vændum í Laugardalnum.Maggi Matt mætti með risa tilkynningu í þáttinn, fór yfir breytingar á liðinu á undurbúningstímabilinu, hvaða leikmenn verða áfram með nýjum þjálfara og hvað gerir Bjarna Jó að Bjarna Jó.
    Lið ársins, besti leikmaður, efnilegastur og þjálfari ársins allt tilkynnt og rætt vel í þættinum.
    Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 29 min
  • Heimavöllurinn: Fram flaug upp í fyrstu, hverjar fara í Evrópureisu?
    Keppni í 2. deild kvenna er lokið og ljóst er að Fram stendur uppi sem sigurvegari. Þjálfarar liðsins, þau Aníta Lísa Svansdóttir og Óskar Smári Haraldsson eru gestir Heimavallarins að þessu sinni en þau ræða sumarið og deildina sem hefur aldrei verið betri. Þá rýna gestirnir einnig í Meistaradeildarbaráttuna sem er framundan. Þátturinn er að sjálfsögðu í boði Orku Náttúrunnar, Heklu og Dominos.
    1 hr 22 min
  • Útvarpsþátturinn - Stóru fréttirnar að norðan, landsliðin og bestir í Bestu
    Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum.
    Risafréttirnar frá Akureyri eru fyrst á dagskrá. Arnar Grétarsson er hættur sem þjálfari KA og Hallgrímur Jónasson gerði þriggja ára samning.
    Örvar Arnarsson ræðir um landsleikinn gegn Venesúla, U21 landsleikurinn er til umfjöllunar, farið yfir kosningu á bestu leikmönnunum í Bestu, leigubílasögur úr íslenska boltanum og England er fallið niður í B-deild Þjóðardeildarinnar.
    1 hr 13 min
  • Ástríðan - 22. umferð - Síðasta yfirferð sumarsins
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar.Trúðarnir þrír komu saman og fóru yfir síðustu umferðina auk þess sem að umræðan færðist yfir í tímabilið sem heild.Meðal umræðuefnis:- Haukar enda í 9.sæti, ekki 10.- Bikarinn á loft á Höfn- Jarðtenging Sverris fyrir Kormák/Hvöt- Markakóngarnir- Síðasti leikur nokkurra Ástríðugoðsagna- Nýjir þjálfarar óskast fyrir norðan- KFG í 3.sæti þriðja árið í röð, hvers vegna?Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 17 min
  • Innkastið - Titillinn á hraðleið í Kópavog og FH í fallsæti
    22. umferð Bestu deildarinnar fór fram um helgina. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn ræða um leikina.
    Stjarnan batt enda á taphrinuna og sendi FH í fallsæti, Leiknir vann botnslaginn og það er uppgjafartónn á Akranesi, Íslandsmeistaratitillinn er á hraðleið í Kópavoginn, Kjartan Henry settur út úr hóp hjá KR, KA að gera frábæra hluti, Eyjamenn sogast aftur niður og það var handboltaleikur í Úlfarsárdal.
    Í þættinum er einnig rætt um leikjadagskrána í tvískiptingunni, Lengjudeildina og landsleikjagluggann.
    1 hr 7 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners