Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Dómarinn kann ekki reglurnar og KR fjarlægist bestu liðin
    Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke eru í Innkasti vikunnar. Með þeim er Runólfur Trausti Þórhallsson, KR-ingur og íþróttafréttamaður á Vísi.
    Rætt er um hörmulega dómgæslu en frábæra frammistöðu Víkings í Malmö og svo farið yfir elleftu umferð Bestu deildarinnar. Einnig er Lengjudeildarhornið á sínum stað.
    1 hr 15 min
  • Sara er komin aftur - Fyrirliðinn fer yfir síðastliðin tvö ár
    Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, setti sér það markmið þegar hún var barnshafandi á síðasta ári að spila fyrir Ísland á Evrópumótinu.
    Hún er núna mætt ári síðar til Þýskalands þar sem hún hefur tekið þátt í undirbúningi fyrir mótið.
    Það eru núna fimm dagar í fyrsta leik Íslands á mótinu og settist fyrirliðinn niður með fréttamanni Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í Þýskalandi núna rétt áðan.
    Sara, sem er einhver mesti sigurvegari sem Ísland hefur átt, ræddi um ýmislegt - meðal annars hvernig sonur hennar hefur breytt lífinu - í góðu spjalli.
    30 min
  • Miðverðirnir fá sviðsljósið - Glódís og Guðrún í spjalli fyrir EM
    Miðverðir fá ekki alltaf þá athygli sem þeir eiga skilið, en að þessu sinni fá þeir sviðsljósið hjá okkur.
    Glódís Perla Viggósdóttir og Guðrún Arnardóttir, tveir af miðvörðum íslenska landsliðsins, settust niður með fréttamanni Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í Þýskaland og fóru um víðan völl á tæpum hálftíma.
    Glódís og Guðrún hafa leikið afskaplega vel saman í hjarta varnarinnar hjá landsliðinu og framundan er Evrópumót.
    Þetta spjall er góð upphitun fyrir EM núna þegar innan við vika er í fyrsta leik Íslands.
    29 min
  • Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn, Bjarki Már og DSJ
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 2. júlí.
    Elvar Geir og Tómas Þór ræða um Bestu deildina, leik KR og Víkings og pælingar um félagaskiptagluggann. Einnig er farið yfir Lengjudeildina, dráttinn í Mjólkurbikarnum og Evrópuleikina framundan.
    Í seinni hlutanum er rætt við leikgreinandann Bjarka Má Ólafsson sem er kominn í nýtt starf og Davíð Snorra Jónasson þjálfara U21 landsliðsins.
    1 hr 32 min
  • Saga aðstoðarþjálfarans - Frá KF Nörd á Evrópumótið í Englandi
    Viltu kynnast aðstoðarþjálfara landsliðsins betur? Þá er óhætt að mæla með hlustun á þessum þætti.
    Ásmundur Haraldsson var svokölluð barnastjarna í KR en fór svo í háskólanám til Bandaríkjanna þar sem hann varð mikill Kani. Hann bjóst ekki við því að koma aftur heim en endaði nú á því að gera það.
    Ásmundur var senter á sínum leikmannaferli og var einu sinni markakóngur 3. deildar. Fljótlega beindist hugurinn að þjálfun þó skórnir hafi seint farið upp á hillu.
    Flestir landsmenn kynntust Ása fyrst þegar hann var þjálfari í þáttunum KF Nörd sem fóru sigurför um Ísland, en í dag er hann aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins sem tekur þátt á EM seinna í þessum mánuði. Þetta er annað Evrópumótið sem Ási er að fara á í þessu hlutverki.
    Ásmundur, sem er mikilvægur hlekkur í þessu frábæra landsliði, settist niður með undirrituðum á hóteli landsliðsins í Herzogenaurach þar sem liðið er að undirbúa sig fyrir Evrópumótið.
    1 hr 3 min
  • Heimavöllurinn á EM: Kempur og töfrakonur í C-riðli
    Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! "Svíarnir" Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Björn Sigurbjörnsson tóku vel á móti Mist Rúnarsdóttur á Selfossi og fóru yfir C-riðil mótsins. Þar munu mætast Holland, Svíþjóð, Sviss og Portúgal.
    45 min
  • Innkastið - Bikarspjall á bílaplani
    Sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins eru að baki og Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke skella sér út í sólina á bílaplaninu á Krókhálsi, gera upp leikina og skoða helstu tíðindin í íslenska fótboltanum.
    Fernukóngur kom inn af bekknum í Kórnum, vítahlaðborð á Akureyri, Eiður Smári vann fyrsta sigurinn, Cupset í Þorlákshöfn, KR lenti í kröppum dansi, framlengt á Framvelli, Gísli Eyjólfs skoraði sparimark og Víkingar léku sér að Selfyssingum.
    59 min
  • Ástríðan - 8. umferð - Luka rekinn eftir sigurleik, þrennur og misjafnt gengi
    Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir áttundu umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Reynir S. vinnur sinn fyrsta leik, sækja þrjá spánverja en reka svo þjálfarann. Njarðvík með gamla og góða pökkun. Þróttur R að koma bakdyramegin í baráttuna. Völsungur fékk sitt víti.ÍH með 3 í röð eftir að Arnar Sigþórs fór að brosa. Augnablik virðir stigið á Humarhátíðinni. Káramenn styttra komnir en búist var við. Dalvík tapað 3 af síðustu 4. Sverrir hefur hafið þá vegferð að jarðtengja sig aftur eftir að hafa spáð Kormáki/Hvöt falli mánuði fyrir mót.Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice og Acan.is.Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
    2 hr 9 min
  • Heimavöllurinn: Flikk flakk og hreint lak í Eistlandi
    Dominos, Hekla og Orka Náttúrunnar bjóða upp á landsliðssamba á Heimavellinum. Þær Auður Scheving og Sólveig Larsen eru nýmættar til landsins eftir ferð með U23 landsliðinu til Eistlands þar sem þær sóttu góðan sigur ásamt liðsfélögunum. Þær mættu í gott spjall um landsliðsverkefnið, EM á Englandi, ævintýrin í yngri flokkunum, lánið í Mosó og margt fleira.
    1 hr 10 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners