Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir neðri deildir 2022
    Í boði Dominos og Heklu Bílaumboðs halda ótímabærar spár Heimavallarins áfram og nú er komið að því að skoða 2. og Lengjudeild. Knattspyrnuþjálfararnir Margrét Magnúsdóttir og Ruth Þórðardóttir mæta og fara yfir spánna ásamt þáttastýrunum Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
    1 hr 53 min
  • Enski boltinn - Ástríða, Meistaradeild og saxað á City
    Farið var um víðan völl í Enska boltanum þessa vikuna. Farið var yfir síðustu umferð og tengt það við leiki ensku liðanna í Meistaradeildinni.
    Þeir Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason ræddu málin með Sæbirni Steinke.
    Manchester United er úr leik í Meistaradeildinni og átti ekkert skilið í gær, City getur ekki skorað gegn Palace og Liverpool vélin mallar og mallar. Arsenal er líklegast í 4. sætið en liðið á erfiða leiki eftir.
    Hvað gera liðin sem eru örugg um að falla ekki en eiga ekki möguleika á Evrópusæti? Chelsea harkar út sigra í mótlætinu en Gylfi gefur lítið fyrir að menn séu tilbúnir að keyra rútur og greiða ferðakostnað úr eigin vasa. Þetta og margt fleira í þætti kvöldsins.
    Enski boltinn er í boði Domino's (fyrir alla - allir að fá sér Góðgerðarpizzuna) og WhiteFox (fyrir 18 ára og eldri).
    1 hr 5 min
  • Ungstirnin - Prófessorinn og Thor
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson.
    Alejandro Garnacho (Man Utd) og Arda Guler (Fenerbahce) eru til umfjöllunar í þættinum að þessu sinni.
    Þá eru tvö viðtöl, við Ólaf Kristjánsson sem tók nýlega við sem yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki og Þorleif Úlfarsson, Thor, leikmann Houston Dynamo í MLS-deildinni bandarísku.
    1 hr 27 min
  • Fantabrögð - Frekjuköst og forföll

    Strákarnir í Fantabrögðum tóku upp þátt um leið og umferð 28 kláraðist í Fantasy Premier League. Þeir fóru stuttlega yfir síðustu umferð en einbeittu sér fyrst og fremst að komandi umferðum, 29 og 30.  Strákarnir tóku spurningar hlustenda, m.a.

    - Á að selja Reece James?

    - Á að kaupa Doherty og Kulusevski?

    - Hvenær er rétti tíminn til að nota Wildcard ef maður á það eftir?

    - Hvað er að gerast hjá Chelsea og hvernig hefur það áhrif á Fantasy?

    52 min
  • Enski boltinn - Chelsea í fordæmalausri stöðu
    Sérstakur aukaþáttur vegna stórfrétta dagsins af málum Chelsea. Rússneski eigandinn Roman Abramovich var beittur refsiaðgerðum af breskum stjórnvöldum og eignir hans frystar.
    Chelsea hefur notið mikillar velgengni í eignartíð Abramovich en nú eru framundan nýir og breyttir tímar.
    Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke fara yfir tíðindin og með þeim er stuðningsmaður Chelsea, Ágúst Reynir Þorsteinsson.
    32 min
  • Enski boltinn - Stöðnun hjá United og ömurleg líðan gegn West Ham
    Umferðinni í enska boltanum lauk með stórsigri Tottenham gegn Everton. Risaleikur umferðarinnar var á Etihad á sunnudag, City liðið sýndi mikla yfirburði og þá sérstaklega í seinni hálfleik!
    Þátturinn í dag var smá litaður af því að Blikinn Andri Rafn Yeoman ræddi um sína menn í Brighton og fá hlustendur innsýn inn í hlutina á Amex. Það var Blikaþema því Adam Örn Arnarson var hinn gesturinn. Adam er stuðningsmaður Liverpool og fóru Blikarnir yfir umferðina með Sæbirni Steinke.
    Coutinho, Dan Burn, Kiddi Jóns eða Reece James, Martin Ödegaard, posession og xG hjá Brighton, Harry Maguire og margt fleira til umræðu í þættinum.
    Síðustu mínúturnar er aðeins spáð í spilin fyrir risaleik Real Madrid og PSG og í blálokin er smá Blikatal.
    1 hr 36 min
  • Heimavöllurinn: Ævintýri á framandi slóðum og stóra málið í nefnd
    Viðburðarrík fótboltavika var að líða. Stelpurnar okkar tóku 2. sætið á She Believes Cup og U16 spreytti sig í Miðgarði. Vanda Sigursteinsdóttir var endurkjörin sem formaður KSÍ og ýmisleg mál voru rædd á nýafstöðnu ársþingi. Knattspyrnuspekúlantinn Daði Rafnsson mætti á Heimavöllinn og fór yfir allt það helsta ásamt þáttastýrunum þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
    1 hr 34 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners