Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - 22 vítaspyrnur og Bielsa farinn
    Enski boltinn er gerður upp með tveimur leikmönnum Stjörnunnar. Þeir Eggert Aron Guðmundsson, stuðningsmaður Chelsea, og Ísak Andri Sigurgeirsson, stuðningsmaður Liverpool, fara yfir úrslitaleik Liverpool og Chelsea í enska deildabikarnum.
    Í tilefni af því að tveir Stjörnumenn voru mættir var einnig talsvert rætt um Stjörnuna.
    Þá er hringt í Mána Pétursson og farið yfir stjórabreytingu Leeds. Máni hafði eðlilega mikið um það að segja. Manchester United náði ekki að leggja Watford og City var stálheppið gegn Everton.
    Í lok þáttar er svo hringt í Þorvald Ingimundarson, stuðningsmann Derby, sem fer yfir stöðu mála hjá liðinu.
    Þátturinn er í boði WhiteFox (fyrir 18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla).
    1 hr 11 min
  • Ungstirnin - Nýr meðlimur og verðandi stórstjörnur
    34. þátturinn af Ungstirnunum er mættur. Kristinn Helgi Jónsson er nýjr meðlimur í tveggja manna teymi þáttarins en hann og Arnar Laufdal eru nú umsjónarmenn.
    Í þessum þætti er Savio sem er að ganga til liðs við Manchester City kynntur. Einnig er fjallað um Gabriel Carvalho nýjasta leikmann Atletico Madrid og svo Brenden Aaronson hjá RB Salzburgs sem mun 100% taka næsta skref í sumar og ganga til liðs við stærra félag.
    Rætt er um félagaskipti ungstirna í janúarglugganum og þá sérstaklega um Dusan Vlahovic sem fór til Juventus.
    Öll Ungstirni eiga að taka sér Ryan Gravenberch til fyrirmyndar. Svo er einnig rætt um UEFA Youth League en 16-liða úrslitin hefjast í byrjun mars.
    1 hr 22 min
  • Fantabrögð - Þreföld ánægja og spilataktík

    Aron og Gunni gerðu upp umferð 26 fyrir leik Arsenal og Wolves. Salah skilaði heldur betur sem þrefaldur fyrirliði hjá þorra þjóðarinnar í Fantasy samfélaginu með þá 84 stig. Burnley vann tvo leiki og hélt hreinu.

    Aðallega ræddu þeir samt hvað á að gera í umferðum 27-30, en þær eru allar með óhefðbundinn leikjafjölda.

    - Eiga allir að taka Free Hit í umferð 27?

    - Að hverju þarf að huga fyrir umferð 30?

    - Úr hvaða liðum á að kaupa menn þess á milli?

    - Hvaða leikmenn ættu að vera í öllum Free Hit liðum í umferð 27?

    Þetta og allt annað í nýjasta þættinum af Fantabrögðum. Takk fyrir að hlusta og styrkja okkur á Patreon

    57 min
  • Ítalski boltinn - Meistaratitill fæst gefins
    Toppliðin halda áfram að misstíga sig í hnífjafnri toppbaráttu. Mourinho lætur dómara finna fyrir syndum feðranna og er kominn í bann. Bandaríska innrásin heldur áfram og stuðningsmenn Cagliari og Napoli hata hvora aðra af undarlegum ástæðum. Silvio Berlusconi fagnar marki í Íslendingaslag með því að fara í sleik. Allt er eins og það á að vera í ítalska boltanum - þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila.
    33 min
  • Besta deildin - En er þetta Besta nafnið?
    Efstu deildir karla og kvenna hafa fengið nafnið Besta deildin. Þetta kom fram á kynningarfundi Íslensks Toppfótbolta í Bæjarbíói í dag.
    Í tilefni fundarins er hér aukaþáttur í hlaðvarpsformi af útvarpsþættinum Fótbolti.net. Tómas Þór og Elvar Geir ræða um kynningarfundinn, útlitið og nafnið á deildinni og sigurskjöldinn.
    Þá er rætt við Björn Þór Ingason, markaðsstjóra ÍTF, um þá undirbúningsvinnu sem ráðist var í og tilurð vörumerkisins.
    47 min
  • Lesendur spyrja - Vanda og Sævar í formannsbaráttu
    Á laugardaginn verður ársþing KSÍ haldið á Ásvöllum í Hafnarfirði. Það verður kosið kosið til formanns en Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, ákvað að taka slaginn og bjóða sig fram á móti Vöndu Sigurgeirsdóttur.
    Fótbolti.net gaf lesendum kost á því að senda inn spurningar á Sævar og Vöndu og setti svo saman lista með tólf spurningum. Við þökkum öllum þeim sem sendu inn spurningar og þó einhverjar hafi ekki komist á þennan spurningalista er ekki ólíklegt að þær verði notaðar síðar til umfjöllunar þegar formaður hefur verið kjörinn.
    Sævar og Vanda mættu á skrifstofu Fótbolta.net í sitthvoru lagi og svöruðu spurningalistanum.
    31 min
  • Enski boltinn - Tveir af skemmtilegri leikjum vetrarins
    Það var létt yfir mönnum í þætti dagsins. Þeir Ísak Máni Wium og Tómas Steindórsson sátu með Sæbirni Steinke og þá var Ingimar Helgi Finnsson á línunni, reif upp tólið á Tenerife.
    Ísak er stuðningsmaður Manchester United, Tómas heldur með West Ham og Ingimar er Tottenham-megin í lífinu. Rætt var um leiki umferðarinnar og aðeins spáð í leiki Liverpool, Man Utd og Chelsea í miðri viku.
    Hversu góður er Harry Kane? - Skiptingin á Paul Pogba - Kaupstefna West Ham - Wout Weghorst - Roy Hodgson og svo margt fleira.
    Enski boltinn er í boði WhiteFox (fyrir 18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla).
    1 hr 13 min
  • Útvarpsþátturinn - Nýir tímar í íslenska boltanum
    Útvarpsþátturinn 19. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Í upphafi þáttar er yfirferð yfir Lengjubikarinn og fréttir úr íslenska boltanum.
    Gestir þáttarins eru Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF og Þórir Hákonarson íþróttastjóri og sérfræðingur þáttarins. Rætt er um nýja samninga í íslenska boltanum, peningastreymi og komandi ársþing. Þeir spá jöfnum og spennandi formannskosningum.
    Í lok þáttar er síðan skoðað hvað er í gangi í enska boltanum.
    1 hr 44 min
  • Heimavöllurinn: Kemur alltaf einhver kona til að hleypa vindlareyknum út
    Gestir Heimavallarins að þessu sinni eru þær Ingunn Haraldsdóttir og Katrín Ómarsdóttir. Ingunn er nýkomin heim úr atvinnumennsku í Grikklandi og Katrín er orðin aðstoðarþjálfari Hauka. Stelpurnar okkar byrja á sigri í fyrsta leik á She Believes Cup og Dagný setti þar hraðamarkamet. Árið 2022 erum við enn að verða vitni að ótrúlegum atvikum en Þróttarar fengu engan bikar afhentan kvöldið sem þær urðu Reykjavíkurmeistarar. Slíkar uppákomur og ýmislegt annað hefur orðið til þess að Ingunn, Katrín og vaskur hópur fólk eru að endurvekja Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna og gestirnir segja frá þeim.
    0 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners