Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Gluggayfirferð með BÁN-bræðrum
    Félagaskiptaglugganum á Englandi var skellt í lás klukkan 23:00 í gærkvöldi og voru sum félög að græja síðustu skiptin í blálok gluggans.
    Pierre-Emerick Aubameyang, Aaron Ramsey, Dele All, Donny van de Beek og fleiri öflugir skiptu um félag í gær.
    Þeir Aksentije Milisic og Egill Sigfússon ræða málin við Sæbjörn Steinke (BÁN-bræður). Farið er yfir félögin í ensku úrvalsdeildinni, rætt um skipti Alberts Guðmundssonar, stærstu skiptin á Ítalíu og aðeins spáð í spilin með sumargluggann.
    Þátturinn er í boði Domino's (fyrir alla) og White Fox (fyrir 18 ára og eldri).
    1 hr 25 min
  • Útvarpsþátturinn - Þjálfarahræringar, Damir og glugginn
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 29. janúar.
    Umsjón: Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas.
    Rætt er um fréttir vikunnar, þjálfaraleit ÍA, formannsslag KSÍ og fleira. Eggert Ingólfur Herbertsson, formaður ÍA, er á línunni og einnig Sæbjörn Steinke sem horfði á Stjörnuna vinna Breiðablik í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins.
    Gestur þáttarins er Damir Muminovic, varnarmaður Breiðabliks.
    Einnig er fjallað um enska boltann og félagaskiptagluggann.
    1 hr 40 min
  • Heimavöllurinn: Rússíbanaár hjá Svíþjóðarmeistaranum
    Guðrún Arnardóttir er gestur í jólaþætti Heimavallarins. Guðrún varð sænskur meistari með stjörnuprýddu liði Rosengård í haust eftir að hafa verið keypt til liðsins frá Djurgarden á miðju tímabili. Hún fer yfir frábært fótboltaár og rúmlega það með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
    1 hr 11 min
  • Enski boltinn - Átti markið að standa?
    23. umferðin í ensku úrvalsdeildinni fór fram um helgina og loksins fóru allir leikir fram!
    Þeir Magnús Þór Jónsson (Liverpool) og Birgir Ólafsson (Tottenham) fara yfir það helsta með Sæbirni Steinke.
    Tottenham þarf að bakka Conte upp, Liverpool þyrfti að fá miðjumann, West Ham olli vonbrigðum, City missteig sig, mark dæmt af Kane en ekki af Uxanum, sautján endursýningar, Hodgson kominn aftur, allt í rugli hjá Everton og margt fleira.
    Enski boltinn er í boði Domino's (fyrir alla) og White Fox (fyir 18 ára og eldri).
    1 hr 23 min
  • Heimavöllurinn: Atvinnukonurnar okkar, landsliðshópar og vetrarveisla í efstu deild
    Bára Kristbjörg aðstoðarþjálfari Selfoss og Aníta Lísa þjálfari Fram eru gestir Heimavallarins. Við förum yfir U23 og U19 ára landsliðshópana sem voru tilkynntir í síðustu viku ásamt því að rýna í stöðu nýrra atvinnukvenna erlendis. Við fáum einnig innsýn inn í hugarheim og vinnu þjálfara hjá gestum þáttarins.
    Það eru einnig 3 mánuðir í að Íslandsmótið verði flautað í gang. Við gátum ekki sleppt gestunum án þess að fara yfir liðin tíu sem mæta til leiks í apríl. Við förum yfir leikmannamarkaðinn hjá liðunum ásamt því að skyggnast í vetrarmótin.
    1 hr 45 min
  • Útvarpsþátturinn - Fyrsta ótímabæra spáin 2022
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. janúar.
    Algjörlega ótímabær spá fyrir Íslandsmótið 2022. Elvar Geir, Tómas Þór og Sverrir Mar ræða um öll liðin tólf í Íslandsdeildinni,
    Hverjir eru komnir og farnir og hverjir verða bestir næsta sumar?
    1 hr 47 min
  • Fantabrögð - Bruno Fernandes Special
    Ásgeir og Hemson tóku upp þátt yfir leik Brentford og Man Utd þar sem Hemson gat varla einbeitt sér, verandi með bandið á Bruno.
    - Á meðan Salah tekur frí frá Fantasy, þá stíga gömlu kanónurnar upp á móti. Bruno, Kane, De Bruyne mennirnir.
    - Er Aston Villa liðið til að horfa til núna? Gerrard að smíða stórvirki í Birmingham.
    - Er 7M€ fyrir Coutinho alltof lítið?
    - Er Fantasy orðið 50% heppni og 50% gæði?
    - Burnley á 5 leiki inni, hvort myndir þú velja Cancelo í einn leik eða Lowton með 5 leiki?
    - Hvernig á að plana fram í tímann við þessar aðstæður?
    - Hvenær við fáum fleiri tvöfaldar umferðir?
    Þetta og margt annað. Allt í boði Nemíu, Massabón en fyrst og fremst Patreon.
    Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella hér.
    1 hr 3 min
  • Enski boltinn - Vantar nýjan þjálfara og drulla mönnum burt
    Umferðinni í ensku úrvalsdeildinni lauk í gær, átta leikir af tíu fóru fram - tveimur var frestað út af svolitlu.
    Sæbjörn Steinke fékk þá Arnór Gauta Ragnarsson og Sigurð Gísla Bond Snorrason til að gera upp helgina með sér og ræða stóru málin.
    Benítez var látinn fara frá Everton, Manchester United tapaði niður tveggja marka forskoti, Manchester City vann stórleikinn, Liverpool kláraði Brentford og Leeds lagði West Ham á útivelli.
    Arnór er stuðningsmaður Southampton og ræddi um hvers vegna. Bond er stuðningsmaður Man Utd og hann sagði hvern hann vill sjá taka við liðinu í sumar.
    Þátturinn er í boði White Fox (fyrir 18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla).
    57 min
  • Útvarpsþátturinn - Enska hringborðið og Pálmi Rafn
    Elvar Geir og Benedikt Bóas sjá um útvarpsþátt vikunnar.
    Hringt er í Pálma Rafn Pálmason spilandi íþróttastjóra KR og Kristján Atli Ragnarsson mætir við enska hringborðið í annað fjórðungsuppgjör. Allt það helsta úr enska boltanum.
    Einnig er rætt um íslenska fótboltalandsliðið og gerð heiðarleg en misheppnuð tilraun til að hafa handboltahorn.
    1 hr 49 min
  • Ungstirnin - Football Manager Special
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Drengirnir eru ekki bara tveir í þættinum að þessu sinni en góðvinur þeirra Kristinn Helgi Jónsson er einnig.
    Aðalumræðuefnið í þessum þætti er fótboltaleikurinn vinsæli Football Manager og er rætt fram og til baka um hann. Mörg ungstirni sem koma við sögu í spjallinu.
    1 hr 19 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners