Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Fantabrögð - Gylfi gefur góð ráð
    Fantabrögð fundi tíma til að taka upp þátt þegar 2 leikjum var ólokið í 35. umferð. Þrefalda umferðin hjá Manchester United fór ekki alveg eins og fantasy þjálfarar höfðu vonað. Ole róteraði liðinu nánast alveg milli leikja 1 og 2 og Greenwood var sá eini sem spilaði stærstan hluta beggja leikja og skoraði í báðum.
    Það var mikið um stig á bekkjunum hjá spilurum í þessari umferð og það birtist sannkallaður hausverkjarþráður á Facebook grúppunni Fantasy Bragðarefir þar sem menn eins og Stuart Dallas, Fraser Forster og Emile Smith-Rowe voru skellihlæjandi.
    En stærstu fréttirnar voru kannski þær að Gylfi sneri loksins aftur í stúdíóið og gaf hlustendum góð ráð, eins og hann gaf vini sínum Chris Wood um daginn. Gunni er eini spilarinn í heiminum sem átti Wildcardið eftir og opinberaði hann brakandi ferskt wildcard lið í þættinum.
    Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.
    1 hr 5 min
  • Ungstirnin - Ungir og efnilegir í Pepsi Max
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Aðal umræðuefnið í þessum þætti er Pepsi-Max deildin.
    Farið er yfir hvaða ungu leikmenn liðanna hafa verið að standa sig og jafnvel hverjir geta farið í atvinnumennsku eftir tímabilið.
    1 hr 23 min
  • Heimavöllurinn: Lygileg úrslit og 2. deild af stað
    Það voru heldur betur óvænt úrslit í 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar og nóg að ræða á kaffistofum landsins. Úrslitin í 1. umferð Lengjudeildarinnar voru ekki síður óvænt og nú bíðum við spennt eftir að keppni hefjist í 2. deild. Heimavöllurinn fær góðkunningjann Brynju Dögg Sigurpálsdóttur í heimsókn, fer yfir leiki liðinnar viku og tekur lokaupphitun fyrir 2. deildina sem fer af stað í kvöld.
    1 hr 26 min
  • Ástríðan - Fyrsta umferð gerð upp í 2. og 3. deild
    Þáttastjórnendur Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason komu saman og ræddu komandi sumar.
    Ástríðudeildirnar fóru af stað um helgina og var 1. umferð gerð upp. Meðal annars var rætt um leikstjóra á Kópavogsvelli, húsnæðismál á Austurlandi, 69. mínútu og leikmenn sem skilja ekki leikáætlun liðs síns í 3. deild.
    Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna.
    1 hr 28 min
  • Enski boltinn - Stór sumargluggi hjá Liverpool
    Það er Liverpool þema í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" að þessu sinni.
    Einar Matthías Kristjánsson, Magnús Þór Jónsson og Sigursteinn Brynjólfsson frá kop.is mættu í þátt dagsins og fóru yfir málefni Liverpool sem og aðra leiki helgarinnar.
    Meðal efnis: Liverpool þarf mann í hverja línu, Firmino skorar ekki lengur, stórt sumar framundan á félagaskiptamarkaðinum, varnarmennirnir færast aftar í röðinni, Meistaradeildardraumurinn á lífi, aftur skjálfti hjá Leicester, vill fá Grealish til Liverpool, stórleikur á fimmtudag, aulalegt víti Aguero, West Ham ævintýrinu að ljúka og margt fleira.
    40 min
  • Innkastið - Drama á lokamínútum og Toddi tapar
    Elvar Geir, Gunni Birgis og Ingó Sig gera upp 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Ekkert lið er með fullt hús og allir eru komnir á blað!
    Meðal efnis: Rautt í stórleiknum, stórskemmtun í Breiðholti, hreinskilinn Arnar virðir stigið, stemning í Kórnum, KA vill flytja á Dalvík, hringt í vin í Keflavík, Stjarnan í limbói, Gunni giskar, hátt spennustig í Mosó og Vestri rúllar yfir Selfyssinga.
    59 min
  • BÁN: Fyrsti útisigur á KR í 40 ár - Afi reiður og Bjössi sýslumannssonur
    Boltinn á Norðurlandi er mjög þéttur þenann sunnudaginn, fimm símtöl, púlsinn tekinn á Húsavík og staðan á Króknum krufin. Þeir Egill Sigfússon, Anton Freyr Jónsson, Nikola Dejan Djuric, Jóhann Kristinn Gunnarsson og Óskar Smári Haraldsson fóru yfir það helsta í þessu öllu saman.
    Yfirvaraskegg og Bjössi sýslumannssonr komu við sögu.
    KA, KF, Völsungur, Dalvík/Reynir og Þór/KA unnu sigra, Tindastóll gerði jafntefli en Þór og Magni töpuðu í miklum markaleikjum.
    Það eru þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Steinke sem stýra þættinum og hann er í boði PSA Studios, Kaffið.is og Vamos sem opnar á miðvikudag!
    1 hr 16 min
  • Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn og Atli Viðar
    Íslenski boltinn í tæplega tvo tíma. Atli Viðar Björnsson er sérstakur gestur þáttarins.
    Rætt er um Pepsi Max-deildina og farið ítarlega yfir sigur KA gegn KR og fréttir vikunnar. Guðmundur Andri gekk í raðir Vals og Finnur Tómas kom heim í KR. Rúnar Páll er hættur sem þjálfari Stjörnunnar. Hvað gerðist í Garðabænum?
    Skoðaðir eru næstu leikir í deildinni. Einnig er farið yfir fyrstu fjóra leiki Lengjudeildarinnar.
    1 hr 49 min
  • Heimavöllurinn: Power í Pepsi og Lengjudeildin byrjar!
    Fótboltasumarið er byrjað og það með látum! Heimavöllurinn fylgist spenntur með og fer yfir fyrstu umferðina í Pepsi Max og hitar upp fyrir Lengjudeildina sem hefst á morgun. Gestir þáttarins að þessu sinni eru knattspyrnuþjálfararnir Margrét Sveinsdóttir og Steinunn Sigurjónsdóttir.
    1 hr 30 min
  • Fantabrögð - Þreföld þristamús!
    Frestun á leik Manchester United og Liverpool gerði það að verkum að þessi umferð fór fyrir ofan garð og neðan. Harry Kane var langvinsælasti fyrirliðinn en honum tókst að safna heilum tveimur stigum gegn stálstrákunum frá Sheffield.
    Aron og Gunni mættu í stúdíóið til að tala um þreföldu umferðina sem blasir nú við Manchester United og þá tvöföldu sem blasir nú við mörgum öðrum liðum. Reiður hlustandi sendi svo inn lesendabréf og las einum þáttastjórnanda pistilinn. En við lifum og lærum.
    51 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners