Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Martraðarsumar framundan
    Tottenham tapaði gegn Manchester City í enska deildabikarnum um helgina og bið félagsins eftir bikar lengist.
    Stjóraskipti Tottenham, úrslitaleikurinn og staðan almennt í enska boltanum var til umræðu í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag.
    Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, voru gestir þáttarins í dag.
    Meðal efnis: Martraðarsumar framundan, Reykjalundur, spara pening með því að reka Mourinho, engin trú í úrslitaleiknum, flug á Chelsea, Ten Hag tekur við Tottenham, seivað í draft, ferðir til Englands, klúður hjá Liverpool, hvað gerir Kane?, framherjakapall í sumar, Pepsi Max-deildin, Árborg og margt fleira.
    47 min
  • Innkastið x Ástríðan - Lögreglumál og Púskas verðlaunasjálfsmark
    Mjólkurbikarinn er farinn af stað en aðeins einn leikur er eftir í 1. umferðinni. Í þessum sérstaka bikarþætti sameinast Innkastið og Ástríðan í yfirferð um bikarleiki helgarinnar.
    Elvar Geir, Sverrir Mar og Ingó Sig eru í hljóðveri.
    Meðal efnis: Lögreglan kölluð til, Púskas verðlaunasjálfsmark, Hjörtur á skotskónum, Svavar Elliði og félagar í Gullfálkanum brotlentu, Baldvin fékk rautt og vígsluleikur á Hellissandi.
    Einnig er aðeins litið á upphaf Pepsi Max-deildarinnar, opnunarleik Vals og ÍA sem verður á föstudaginn og spáð í aðra leiki umferðarinnar.
    41 min
  • Útvarpsþátturinn - Stóri Pepsi Max þátturinn
    Upphitunarþáttur Pepsi Max-deildarinnar 2021.
    Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Úlfur Blandon.
    Farið er yfir spá Fótbolta.net fyrir Pepsi Max-deildina 2021. Öll liðin eru skoðuð og menn setja ýmsar athugasemdir við spánna!
    1 hr 44 min
  • Heimavöllurinn - Of feimin til að mæta á æfingar, FH ætlar upp og Arna Sif dóminerar skosku háloftin
    Sumarið er komið og það er þétt dagskrá á Heimavellinum að þessu sinni. Karitas Tómasdóttir, splunkuný landsliðskona úr Rangárvallasýslu mætir í heimsókn auk FH-inganna Ernu Guðrúnar Magnúsdóttur og Selmu Daggar Björgvinsdóttur sem geta ekki beðið eftir fótboltasumrinu. Þá slá þáttastýrur á þráðinn til Glasgow þar sem okkar kona, Arna Sif Ásgrímsdóttir, er að gera gott mót.
    1 hr 19 min
  • Ungstirnin - Pepsi Max upphitun með Rikka G
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Þátturinn að þessu sinni er sérstakur upphitunarþáttur fyrir Pepsi-Max Deildina sem hefst 30. apríl nk.
    Útvarpsmaðurinn og íþróttafréttamaðurinn Ríkharð Óskar Guðnason mætir sem gestur og spáir fyrir hvar öll tólf liðin munu enda í ár.
    Magnús Hólm annar þáttarstjórnandi þáttarins fór yfir hvaða ungu leikmönnum liðanna þjóðin ætti að fylgjast með í sumar.
    1 hr 27 min
  • Ofurdeildin fjarar út og Woodward stekkur frá borði
    Annar aukaþáttur vegna Ofurdeildarinnar. Áætlanir um stofnun deildarinnar hafa runnið út í sandinn eftir að ensku félögin stukku frá borði. Elvar Geir og Magnús Már skoða málið með tveimur sérfræðingum.
    Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar Íslandsbanka, ræðir um hvað varð deildinni að falli.
    Gunnar Gunnarsson, ritstjóri Austurfréttar og sérfræðingur um Manchester United, fer yfir þau tíðindi að Ed Woodward sé hættur sem framkvæmdastjóri United og hvaða áhrif Ofurdeildin hefur á eigendur félaganna.
    40 min
  • Ítalski boltinn - Lítill spiltími Andra vonbrigði
    Hlaðvarpsþátturinn Ítalski boltinn er aftur mættur eftir smá hlé.
    Björn Már Ólafsson fer yfir allt það helsta sem er að gerast í ítalska boltanum og hvernig síðustu vikur hafa spilast.
    Skoðað er hvernig Íslendingarnir hafa verið að gera, rætt um stöðu mála í A-deildinni og allar helstu fréttir og sögusagnir skoðaðar. Zlatan, Ronaldo, Ofurdeildin og ýmislegt fleira.
    45 min
  • Enski boltinn - Óvæntur brottrekstur Mourinho og Ofurdeildin
    Brottrekstur Jose Mourinho, ný Ofurdeild og leikir helgarinnar voru til umræðu í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag.
    Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Manchester United, og Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, eru gestir þáttarins að þessu sinni.
    Meðal efnis: Sprengja milli Mourinho og Levy, óvæntur brottrekstur, hvað gerir ungur Mason við stýrir?, Mourinho gæti tekið við landsliði, peningagræðgi í Ofurdeildinni, stuðningsmenn mótmæla harðlega, mörg lið vilja ekki fara í Ofurdeildina, Tuchel tók Guardiola úr sambandi, Jorginho blómstrar, Greenwood í stuði á hægri kantinum, Man Utd þarf þrjá öfluga í sumar, frábær tenging hjá Gylfa og James, Ashley teiknar styttu af Bruce, óheppni Fulham og margt fleira.
    48 min
  • Allt nötrar út af Ofurdeildinni - NBA deild í Evrópu
    Stofnun nýju Ofurdeildarinnar kallar á sérstakan aukaþátt.
    Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar Íslandsbanka, fer yfir þessa nýju deild og peningana á bak við hana.
    Elvar Geir og Magnús Már ræða við Björn Berg um allt sem tengist þessum risastóru fréttunum.
    28 min
  • Útvarpsþátturinn - Siggi Höskulds, vetrarverðlaun og Spánarspark
    Pepsi Max-deildin fær stórt pláss í þætti Elvars Geirs og Tómasar Þór þessa vikuna.
    Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, er gestur þáttarins og þá eru Vetrarverðlaunin 2021 opinberuð þar sem bestu leikmenn undirbúningstímabilsins eru valdir.
    Einnig er rætt við Egil Arnar Sigurþórsson dómara og Magnús Val Böðarsson vallarstjóra.
    Þá er Spánarsparkið einnig til umfjöllunar en það er mikil spenna í La Liga. Mikael Marinó Rivera, stuðningsmaður Real Madrid, er á línunni.
    1 hr 30 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners