Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Meistaradeildin - Enskur úrslitaleikur í kortunum
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er með sérstakan aukaþátt í hlaðvarpsformi þar sem fjallað er um 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir leikina, skoða undanúrslitin og spá í Evrópudeildarleikina framundan.
    53 min
  • Fantabrögð - Messi KingGod dregur vagninn
    Öllum að óvörum var Stuart Dallas stigahæsti leikmaður umferðarinnar í Fantasy Premier League, sem var óheppilegt því flestir sem áttu hann stilltu honum upp sem þriðja varamanni á bekk.
    Jesse Lingard a.k.a. Messi KingGod heldur áfram að vera ekkert eðlilega góður og er nú með tæp 13 stig að meðaltali síðustu 3 umferðir.
    Tottenham á tvöfalda umferð og við megum reikna með því að sjá svívirðilega tölu í fyrirliðavali á Harry Kane.
    Er kominn tími á að selja alla Manchester City leikmenn?
    Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.
    1 hr 9 min
  • Enski boltinn - West Ham bestir í London
    Baráttan um Meistaradeildarsæti verður harðari og harðari og það voru dramatísk sigurmörk í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
    Tómas Steindórsson, stuðningsmaður West Ham, og Guðmundur Gunnar Guðmundsson, stuðningsmaður Arsenal, og Mate Dalmay, markaðsstjóri Fótbolta.net, fóru yfir stöðuna í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag.
    Meðal efnis: Meðal efnis: Moyes á Zoom, Nolan drillaði liðið, fyndið þegar Lingard kom, Noble lyftir Meistaradeildardeidlarbikarnum, dýrt partý hjá Leicester, öflug endurkoma Man Utd, vantar miðvörð fyrir Lindelöf, Butterfly effect hjá Dagnýju, Trent hetja Liverpool, mikið af pylsum í Chelsea, Rudiger í WBA, sigurmarkið eins og í FIFA, Arsenal hélt loksins hreinu, Arteta rekinn ef þetta lagast ekki, dýrkeypt mörk hjá Fulham, Parker eins og Jói Kalli, West Ham stærsta liðið í London.
    44 min
  • Útvarpsþátturinn - Alfons, Rúnar Kristins og Meistaradeildin
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. apríl.
    Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum. Hringt er til Noregs þar sem Alfons Sampsted ræðir um stöðu mála. Alfons er ríkjandi Noregsmeistari með Bodö/Glimt en upphafi norsku deildarinnar var frestað vegna Covid-19 faraldursins.
    Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, er gestur þáttarins. Í ítarlegu spjalli ræðir um stöðu mála í Vesturbænum og Pepsi Max-deildina sem er framundan.
    Í lok þáttarins fer Kristján Atli Ragnarsson svo yfir Meistaradeildina og spáir í spilin fyrir seinni leikina í 8-liða úrslitum.
    1 hr 45 min
  • Fantabrögð - Whole Jota Love
    A-príl mánuðurinn mikli byrjaði heldur hægt og var það einungis fyrirliðinn Harry Kane sem bjargaði umferðinni hjá mörgum. Liverpool unnu 3-0 sigur á Arsenal þar sem Diogo Jota skoraði tvö mörk. Hann er nú eftirsóttasta varan í Fantasy Premier League og þjálfarar keppast við að kaupa hann.
    Spurningar hlustenda í þessum þætti af Fantabrögðum snerust að stóru leyti um Wildcard, enda þáttastjórnendur búnir að tala mikið fyrir því að spila því á þessum tímapunkti og a.m.k. einn þeirra búinn að virka það.
    Menn eins og Nat Phillips, Mahrez og Lingard komu við sögu ásamt fleiri góðum.
    Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.
    1 hr 25 min
  • Enski boltinn - Liverpool vaknar og Barcelona í dulargervi
    Boltinn byrjaði að rúlla á ný í ensku úrvalsdeildinni um helgina eftir landsleikjahlé.
    Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Hlynur Valsson, lýsandi hjá Símanum, fóru yfir stöðu mála.
    Meðal efnis: Eins og í tölvuleik, WBA eins og Barcelona í dulargervi, reynir á andlegu hliðina hjá Chelsea, Jorginho markahæstur, Liverpool réttir úr kútnum, Trent brjálaður, Arsenal gátu ekkert, misheppnuð tilraun með Aubameyang, Liverpool á góðan séns gegn Real Madrid, Man City vel gíraðir, hvaða framherja kaupir City í sumar?, gott tímabil hjá Manchester United, Solskjær sannar sig, Harry Kane á gatnamótum, Tottenham tapar niður forystu, Lingard á eldi, Moyes stjóri ársins, skrýtið að hafa Gylfa á bekknum, lykill fyrir Leeds að halda Bielsa, rosalegir leikir í Meistardeildinni.
    42 min
  • Ungstirnin - Uppgjör á riðlakeppni EM U21
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Í þessum átjánda þætti gera þeir upp riðlakeppni Evrópumóts U21 landsliða.
    Gleðilega páska!
    1 hr 9 min
  • Útvarpsþátturinn - Láki um landsliðið, Addi Grétars og Birkir Már
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977.
    Elvar Geir og Tómas Þór hringdu til Hong Kong í Þorlák Árnason yfirmann knattspyrnumála hjá knattspyrnusambandi Hong Kong til að ræða framtíð íslenska landsliðsins, Arnar Grétarsson talaði um KA og fótboltann í Covid og Birkir Már Sævarsson fór yfir áhugaverða landsliðsviku.
    1 hr 36 min
  • Innkastið - Hverjir spila í september?
    A landslið Íslands náði í fyrsta sigurinn í undankeppni HM í kvöld. Ísland vann Liechtenstein örugglega 4-1 á útivelli.
    Framundan eru fimm heimaleikir í röð í undankeppninni í haust og þar kemur betur í ljós hvort Ísland geti blandað sér í baráttuna um að komast á HM í Katar.
    U21 landslið Íslands tapaði 2-0 gegn Frökkum í dag og endaði án stiga á EM í Ungverajalandi.
    Tómas Þór Þórðarson, Gunnar Birgisson og Magnús Már Einarsson fóru yfir þessa leiki og stöðuna.
    59 min
  • Fantabrögð - Marserað inn í (a)prílmánuð
    Aron, Gunni og Gylfi fóru yfir stöðu mála í Fantasy leiknum. Landsleikjahléð er að klárast og nú hefst lokaspretturinn í deildinni. Leikjaprógrammið sveiflast hjá nokkrum liðum. Hvernig kemur Liverpool undan pásunni? Og fyrir þá sem hafa upp á lítið að keppa, hvernig er best að mótívera sig þannig að maður geti prílað upp töfluna. Hvaða mánuður er betri til þess en apríl?
    Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.
    1 hr

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners